Bankablaðið - 01.12.1967, Síða 36
GUNNAR MÁR HAUKSSON:
ÆskulýSsstarí bankamanna á NorSurlöndum
í byrjun fundarins gerði hvert land fyrir
sig grein fyrir því starfi, sem nú er unnið til
að kynna ungu fólki félagslífið í bönkunum.
Oll samböndin, að Islandi undanteknu, senda
nýbyrjuðu fólki bækling um félagsstarfsem-
ina og á hvern hátt félögin geti komið starfs-
mönnunum að liði. Annað verkefni bækling-
anna er, að láta nýliðana finna, að þeir eru
velkomnir og gjaldgengir í hóp hinna eldri.
Forráðamenn sambandanna hafa lengi haft
af því áhyggjur, að ungt fólk taki ekki nógu
mikinn þátt í félagsstarfinu. Þetta vanda-
mál verður æ erfiðara viðfangs vegna þess,
að starfsemin dreifist meira og meira í fleiri
og fleiri útibú, þar sem hætta er á, að starfs-
fólkið einangrist. Og svo einkennilega sem
það hljómar, þá skapast sama ástandið í hin-
um yfirþyrmandi stóru aðalbönkum, þar sem
fólksmergðin er svo mikil, að hver starfs-
maður einangrast í sinni deild og þekkir fáa
utan hennar. 011 hin samböndin hafa nám-
skeið fyrir trúnaðarmenn sína á vinnustöð-
um, en Svíar og Norðmenn hafa einnig gert
tilraunir með sérstök ungdómsnámskeið, sem
þeir telja að hafi tekizt mjög vel. Sem dæmi
um það nefna Svíar, að á fyrsta námskeiðinu
hjá þeim, sem haldið var 1963, voru 27
þátttakendur og þeir eru í dag allir starf-
andi í stjórnum starfsmannafélaga bankanna.
Nú hafa um 300 manns tekið þátt í þessum
námskeiðum í Stokkhólmi. Norðmenn hafa
haft ungdómsnámskeið frá 1965 og hefur
þátttakan verið mjög góð og töldu Norð-
mennirnir þetta starf ómissandi þátt í starf-
semi N.B.U. Danir hafa engin sérstök nám-
skeið fyrir ungt fólk, en trúnaðarmannanám-
skeiðin eru opin öllum aldursflokkum (það
eru þau að sjálfsögðu hjá hinum sambönd-
unum líka). Einn Dananna áleit, að óþarfi
væri að eltast við sérnámskeið fyrir ungt
fólk, heldur ætti að hvetja það til að sækja
námskeiðin fyrir trúnaðarmennina. Þessu var
mótmælt af öðrum þátttakendum ráðstefn-
unnar, sem sögðu, að hlutverk þessara nám-
skeiða væru mjög ólík og auk þess væri
unga fólkið feimið innan um eldri og reynd-
ari starfsbræður og léti því ekki að sér kveða.
Efni námskeiðanna.
Námskeið þau, sem Svíar og Norðmenn
hafa haldið, eru yfirleitt skipulögð þannig,
að þátttakendurnir taki sem virkastan þátt í
starfinu. Fyrst eru haldnir fyrirlestrar um
bankamannasamböndin, starfsemi þeirra og
lög, um launareglugerðir og réttindi starfs-
manna gagnvart bönkunum. Einnig er veitt
fræðsla um fundarstjórn og ræðumennsku.
Eftir þessi erindi er hópnum skipt í grúppur
eða nefndir, sem fá ákveðin verkefni til að
glíma við, t. d. að semja nýja launareglu-
gerð og jafnvel semja við aðra grúppu, sem
kemur þá fram sem fulltrúi atvinnurekenda.
Einnig er stundum kosin skuggastjórn, þ. e.
a. s. ein grúppan er látin vinna eins og hún
sé stjórn bankamannasambandsins og er lát-
in gera tillögur um framtíðarstarf sambands-
ins o. s. frv.
Tilbögun námskeiðanna.
Þessi námskeið hafa ýmist verið haldin
sem helgarnámskeið eða kvöldnámskeið.
34 BANKABLAÐIÐ