Bankablaðið - 01.12.1967, Page 38
Vísna- og kvæðaþáttur
Bankablaðið hvetur alla sem hafa undir
höndum kveðskap, sem kastað er fram í
bönkunum við ýmis tækifæri, að senda hann
til birtingar í blaðinu.
Vísur þær, sem hér eru birtar og orktar í
nafni númera, eru starfsmenn í Landsbank-
anum. Númer þau sem um ræðir eru stimpil-
klukkunúmer viðkomanda. Næsta fróðlegt
væri að vita nöfn þeirra, en raunar skipta
þau ekki höfuðmáli.
í orðastað
Frá nr. 7.
Mikið langar mig í vísu
Magnús Konráðsson.
Blíð þá verður brá á skvísu,
ef bragar á hún von.
Til nr. 7.
Blíðka vil ég brá á skvísu
beggja svo að verði hags.
Meðhöndlun á mína vísu
mundi hana lækna strax.
Til nr. 7, 49, 176.
Ein er sein og önnur verri
og sú þriðja lítil bót.
Arna þótt sig aðeins derri
ekki batna hætis hót.
Ort í Bakkaseli í sumardvöl 1967
Landsbankinn þau lét í té,
lista góðu sumar skýlin.
Starfsmannanna eign það sé.
Við Alftavatnið standa býlin.
Bjó ég þar i birtu og yl,
bjarka ilm og fugla kvaki.
Þakkir flytja þeim ég vil,
þessu er lyftu Grettis-taki.
Magnús Pálmason.
FELUR MJÖLL
Fellur mjöll á freðna jörð,
fyllast öll af klaka skörð,
skriðuföll úr fjöllum hörð,
falla um völl og móabörð.
M. P.
Árstíðavísur
Þegar blómin fögru falla,
og fellir laufið eikin traust,
snjóa tekur, fram til fjalla
fölnar gróður, þá er haust.
Þegar stormar sterkir nceða,
stirðnar allt er frosið getur,
hríðarbyljir ólmir ceða
yfir landið, þá er vetur.
Þegar lækir fagrir falla,
og fennir sjaldnar í vor spor,
blómum skrýðast brekkur fjalla,
björkin laufgast, þá er vor.
Blessun fylgi Bakkaseli
og bústöðunum sels í vík.
Naumast finnst á norðurhveli
nokkur inni þessum lík.
Þegar birtu um nœtur nýtur,
niðar lækur, fossinn þrumar,
angan blóma aldrei þrýtur,
ilmar grasið, þá er sumar.
36 BANKABLAÐIÐ