Bankablaðið - 01.12.1967, Side 42
HARALDUR JOHANNESSEN
aðalféhirðir
Haraldur Johannessen, aðalféhirðir Lands-
banka Islands, hefir látið af embætti eftir
42 ára starf hjá bankanum. Hann varð sjö-
tugur að aldri 5. apríl síðastliðinn, en
mundi þó hafa starfað áfram til næstu ára-
móta, ef ekki hefði komið til heilsubilun.
Haraldur Johannessen er fæddur 5. apríl
1897 í Reykjavík og ólst þar upp. Hann
stundaði nám við Verzlunarskóla Islands og
lauk þaðan prófi. Eftir það stundaði hann
verzlunar- og skrifstofustörf og rak eigin
verzlun um nokkurt tímabil. Hann starfaði
meðal annars í skrifstofu borgarstjórans í
Reykjavík og hjá Islandsbanka.
En hinn 4. desember 1925 gerðist Har-
aldur Johannessen starfsmaður Landsbanka
Islands og hefir starfað þar síðan. Hann
starfaði í ýmsum deildum bankans, spari-
sjóðsdeild, við gjaldkerastörf, dagbókarastörf
og í víxladeild og var lengi deildarstjóri þeirr-
ar deildar, eða þar til Seðlabankinn var skil-
inn frá Landsbankanum árið 1957, en þá
varð hann aðalféhirðir bankans og hefir
gegnt því embætti síðan.
Haraldur Johannessen er mjög áhugasam-
ur og starfsamur á sviði félagsmála. A yngri
árum var hann einn af helztu forystumönn-
um íþróttahreyfingarinnar hér í borginni og
lengi formaður Iþróttafélags Reykjavíkur.
Meðal samstarfsmanna sinna í bankanum
sýndi hann sama áhuga og dugnað á félags-
málasviðinu. Til marks um það skal þess að-
eins getið, að hann var einn af aðalhvata-
mönnum að stofnun Félags starfsmanna
Landsbanka Islands, hinn 7. marz 1928 og
var kjörinn í fyrstu stjórn þess. Hann var
einnig fyrsti forseti Sambands íslenzkra
bankamanna, sem var stofnað 30. janúar
1935. Hann tók alltaf síðan meiri og minni
þátt í félagsstarfinu og fylgdist af áhuga með
öllu og hann naut þeirrar ánægju að sjá sam-
tök bankamanna eflast og þroskast.
Haraldur Johannessen var einn þeirra, sem
setti svip á bæinn og bankann. Það er sjónar-
sviptir að honum úr bankanum.
Við söknum góðs félaga, brautryðjanda
og forystumanns í samtökum okkar banka-
manna. En bankinn og við öll sameigin-
lega söknum úr hópi okkar öruggs og
trausts embættismanns, sem allir treystu og
allir vissu að var óhvikull í hollustu sinni
við bankann og samfélag okkar allra.
Þess vegna kveðjum við hann með þakk-
læti fyrir samstarfið og störf hans fyrir bank-
ann og fyrir okkur og óskum honum heilla og
langlífis. E. H.
40 BANKABLAÐIÐ