Bankablaðið - 01.12.1967, Side 48
SEXTÍU OG FIMM ÁRA:
r
Margrét Isólfsdóttir
Þann 11. apríl sl. átti frú Margrét ísólfs-
dóttir 65 ára afmæli. Margrét varð starfsmað-
ur Landsbanka Islands þann 14. desember
1923 og þjónaði þeirri stofnun og síðar
Seðlabanka Islands dyggilega, þar til á af-
mælisdaginn sinn, en þ áhætti hún störfum.
Margrét sá þessar stofnanir vaxa úr dverg í
risa, ef komast má svo að orði. Hún tók þátt
í vexti þeirra, og hafði á hendi margskonar
störf, m. a. var hún gjaldkeri útibús Lands-
bankans á Isafirði um ára bil. Frú Margréti
er margt til lista lagt, eins og heimili hennar
og eiginmanns hennar, Haraldar Olafssonar
fulltrúa í Búnaðarbankanum að Nökkvavogi
62, ber gleggst vitni. Þeir, sem þangað hafa
einu sinni komið gleyma því aldrei. Þar er
hlutur þeirra beggja jafn. Haraldur á ein-
stætt safn gamalla íslenzkra muna, sem hann
hefur skrásett og raðað á listrænan hátt. Hús-
móðirin hefur aftur á móti prýtt heimilið
á mjög smekklegan hátt, bæði með eigin
handavinnu og öðrum fallegum munum. Nú
þegar frú Margrét kveður þær stofnanir, sem
hún hefur þjónað af trúmennsku í rúm 43
ár, er öruggt að henni fylgja bezm óskir sam-
starfsmanna og þakklæti fyrir samveruna.
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
ALMENNAR TRYGGINGAR H.F.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFELAGA
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
ÞÓRODDUR E. JÓNSSON
HEILDVERZLUN
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
RAMMAGERÐIN - LISTMUNAVERZLUN
— Sendir um allan heim. —
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
46 BANKABLAÐIÐ