Bankablaðið - 01.12.1967, Qupperneq 49
FIMMTUGUR:
Bjarni G. Magnússon
Hinn 26. okt. s.l. átti Bjarni Gunnar
Magnússon deildarstjóri í Landsbanka Islands
fimmtugsafmæli.
Hann er Vestmannaeyingur í foreldraætt-
ir og ólst þar upp. Nam í Gagnfræðaskóla
Vestmannaeyja. Fór eftir það til framhalds-
náms í Samvinnuskólann í Reykjavík, lauk
þaðan brottfararprófi með góðum vitnis-
burði 1938.
Erfitt var þá fyrir unga námssveina að afla
sér atvinnu, á þrengingartímum kreppuár-
anna. Bjarni lét erfiðleikana ekki brjóta sig
á bak. Hann hóf að námi loknu starf, um-
boðsstarf fyrir Brunabótafélag Islands í
Vestmannaeyjum. Aflaði sér trausts og virð-
ingar fyrir lipurð og vel unnin störf. Þau
rækti hann af alúð og samvizkusemi.
Arið 1943 fluttist Bjarni G Magnússon til
Reykjavíkur og réðist í þjónustu Landsbanka
íslands. Fyrstu árin og lengst framan af starf-
aði Bjarni í endurskoðunardeild bankans.
Deildarstjóri í hlaupareikningsdeild Lands-
banka Islands hefir hann verið frá 1960, og
starfar þar. Ég veit að viðskiptamenn Lands-
bankans kunna vel að meta störf og fyrir-
greiðslu Bjarna Magnússonar í hinu vanda-
sam starfi, er hann hefir með höndum í
þágu bankans.
Bjarni G. Magnússon er félagshyggjumað-
ur, góðviljaður, velhugsandi og fyrirgreið-
andi í vandamálum.
I aldarfjórðung höfum við átt samstarf að
félagsmálum bankamanna. Oðrum marghátt-
uðum félagsstörfum hans hefi ég ekki kynnzt.
Ég má þó vita að allsstaðar hefir hann komið
fram á þann hátt, er ég hef þekkt hann bezt.
Traustgefandi og góður vinur.
Bjarni G. Magnússon hefir lengi átt sæti
í stjórn Félags starfsmanna Landsbanka Is-
lands. A þeim tíma verið formaður félagsins
í fjögur ár. I stjórn Sambands íslenzkra
bankamanna hefur hann átt sæti mörg kjör-
tímabil, allt frá 1949, og verið formaður
samtakanna um tveggja ára skeið.
Eitt ber þó af um afburðastörf og fórnfýsi
Bjarna G. Magnússonar í þágu samtaka
bankamanna. Hann hefir verið ritstjóri
Bankablaðsins í tuttugu ár og ávallt haldið
lífi í blaðaútgáfu okkar bankamanna, með
liprum penna, lifandi starfi og áhuga án
endurgjalds.
Þetta muna bankamenn afmælisbarninu í
dag. Adolf Björnsson.
GLEÐILEG JÓL!
Farsœlt nýtt ár!
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
BANKABLAÐIÐ 47