Bankablaðið - 01.12.1971, Side 17

Bankablaðið - 01.12.1971, Side 17
Horfnir félagar úr hópi bankamanna MINNINGARORÐ •j- Sigtryggur Klemensson fæddur 20. ágúst 1911 — dáinn 18. febrúar 1971. Sigtryggur Klemenzson, Seðlabankastjóri, andaðist 18. febrúar s.l. eftir langvarandi og þungbær veikindi. Hann var fæddur 20. ágúst 1911 og var því innan við sextugt, er hann féll frá. Nám stundaði Sigtryggur í Menntaskólanum á Akureyri og síðan í Háskóla Islands, þar sem hann lagði smnd á lögfræði. Auk þessa nam hann erlendis um eins vetrar skeið og kynnti sér þá tolla- og skattamál. Sigtryggur var frábær náms- maður og öllum sínum prófum lauk hann með miklum ágætum. Strax að námi loknu réðst Sigtryggur í þjónustu hins opinbera og gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum, sem hér verða ekki rakin, en lengstan tíma starfs- ævinnar helgaði hann sig fjármálaráðuneyt- inu, en því ráðuneyti stýrði hann samfleytt í 14 ár eða frá árinu 1952 til 1966, er hann var skipaður bankastjóri í Seðlabanka Is- lands. Starfsár Sigtryggs í Seðlabankanum urðu því miður alltof fá og voru þau lengstum mörkuð erfiðum veikindum, slíkum að reynzt hefðu ofraun hverjum venjulegum manni. Þessi síðustu æviár hans eru svo sérstæður kafli í lífi þessa merka manns, að við, sem eftir lifum, getum vissulega af þeim mikinn lærdóm dregið, og á ég þá við þetta, hvernig hann bauð sínum örlögum byrginn og stóð meðan stætt var, knúinn áfram af óþrjót- andi athafnaþrá, undir oki þess sjúkdóms, sem að lokum hlaut að sigra hinn mannlega mátt. Okkur, sem áttum náin samskipti við hann þessi ár, var það undrunarefni, hversu fádæma hugprýði og karlmennsku hann sýndi í starfi og framkomu og með hve óþrjótandi elju og áhuga hann gekk að hin- um daglegu viðfangsefnum eins og einskis væri vant í þreki og kröftum. Hugsunin jafnan skýr og skörp og dómar hans mótað- ir af réttlæti og sanngirni og þá aldrei misst sjónar af hinum mannlega þætti hvers máls. Einstrengislegar skoðanir og kreddur voru honum framandi. Mér eru ennþá í fersku minni fyrstu kynni mín af Sigtryggi Klemenzsyni haustið 1953, er ég átti við hann erindi vegna starfs þess, er ég tók við um þær mundir. Af þeim BANKABLAÐIÐ 15

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.