Bankablaðið - 01.12.1971, Blaðsíða 40
lslenzkir bankamenn á gleðifundi í Gautaborg.
af formanni Sænska bankamannasambands-
ins, Gustaf Setterborg, en undirbúningur
þingsins var unninn af sænskum bankamönn-
um, og þeim til mikillar prýði. Því næst
ávarpaði fulltrúi borgarstjórnar Gautaborg-
ar, Hanson skipherra, ráðstefnuna og bauð
þátttakendum og konum þeirra til opinberr-
ar móttöku í Börsen. Loks flutti fram-
kvæmdastjóri N.B.U., P. G. Bergström,
skýrslu um starfsemi sambandsins á liðinni
hálfri öld. I byrjun fyrsta fundar ráðstefn-
unnar voru kjörnir embættismenn þingsins,
og var Hannes Pálsson kjörinn annar fund-
arstjóri, hinn var Gustaf Setterberg.
Umræðuefni þingsins voru margs konar,
en hér skal aðeins minnzt á nokkur þeirra.
Þá er fyrst að minnast á lýðræði á vinnu-
stað og framtíðarhorfur þess. Lögð voru
fram yfirlit um þetta umfangsmikla mál frá
hverju sambandanna fyrir sig og síðan rætt
um horfur á framkvæmdum í hinum ýmsu
löndum. Kom það skýrt fram í umræðum,
að allmörg sjónarmið voru uppi og heildar-
framkvæmd tæplega á næsta leiti. Þó er nauð-
synlegt að ræða málið enn ýtarlegar og afla
upplýsinga, sem að gagni mætm koma, mál-
inu í heild til framdráttar. Olafur Ottósson
tók þátt í þessum umræðum af hálfu S.I.B.
Rætt var um þátttöku félagsmanna í félags-
legu starfi og möguleika þeirra til áhrifa á
framvindu mála. I sambandi við þetta um-
ræðuefni má geta þess, að því var skipt í tvö
aðalatriði, sem vísað var til sitt hvors hóps-
ins, er í var einn þátttakandi frá hverju sam-
bandanna og voru borðsamtöl um hvort um-
ræðuefnanna. Þau voru þannig, að í fyrri
38 BANKABLAÐIÐ