Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 29
in tækni. Landsbankinn hefur frá öndverðu
átt því láni að fagna, að hafa jafnan átt góðu
starfsliði á að skipa. Vil ég á þessum merkis-
degi bankans fyrir hönd stjórnar hans þakka
öllum þeim, sem unnið hafa af hollustu og
ósérhlífni í þágu hans bæði fyrr og síðar.
Og til þess að sýna hug sinn í verki hefur
bankaráð ákveðið að leggja 200 þúsund krón-
ur í nýstofnaðan sjúkrasjóð starfsmanna
bankans á móti jafnmiklu framlagi frá starfs-
mönnum sjálfum. Auk þess hefur verið
ákveðið að leggja 500 þúsund krónur til
kynningarsjóðs starfsmannafélagsins.
Ymislegt annað mun gerast á jx'ssum
merkisdegi. Vil ég þar sérstaklega geta af-
hjúpunar listaverks eftir frú Nínu Tryggva-
dóttur. Við fögnum því sérstaklega, að eig-
inmaður listakonunnar og dóttir, Una Dóra
Copley og Dr. Alfred L. Copley gátu komið
hingað og verið viðstödd afhjúpun listaverks-
ins á þessum merkisdegi bankans. Skal Dr.
Alfred jafnframt Jxikkuð aðstoð hans við
eftirlit með gerð myndarinnar. Þegar Lands-
banki íslands tók hið nýja hús sitt í notkun
árið 1924, voru tveir fremstu listamenn
landsins á J>eim tíma fengnir til að skreyta
salarkynni bankans, þeir listmálararnir Jón
Stefánsson og Jóhannes Kjarval. Landsbank-
inn hefur jafnan síðan viljað sýna hug sinn
til íslenzkrar listar og menningar með því
að leita til íslenzkra listamanna um slíkar
skreytingar. Svo er einnig að þessu sinni.
Hin nýju húsakynni, sem nú verða tekin í
notkun, hafa verið skreytt fögru listaverki
eftir frú Nínu Tryggvadóttur, sem öllum
landsmönnum er kunn fyrir afrek sín á sviði
myndlistar. Yrkisefni er sótt í Egils sögu
Skallagrímssonar, og á að sýna það, er Aðal-
steinn Englakonungur rétti fram gullhring-
inn til Egils Skallagrímssonar, sem bróður-
bætur eftir Vínheiðarorustu. Er sá atburður
mikilfenglegur og kunnur úr sögunni. Þessi
glæsilega brotamynd verður nú afhjúpuð
hér í dag í tilefni af því, að nú verða hin
nýju salarkynni bankans við Hafnarstræti
formlega tekin í notkun.
I afgreiðslusal
Landsbankans.
BANKABLAÐIÐ 27