Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 38

Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 38
Norræna bankamannasambandið 50 ára RáSstefna 4.—5. september í Gautaborg. Ráðstefna Norræna bankamannasambands- ins í tilefni af 50 ára afmæli þess var haldin í Gautaborg 4.—5. september s.l. Þar voru saman komnir rúmlega 120 manns, stjórn- armenn, fulltrúar, áheyrnarfulltrúar og gest- ir. Þegar ráðstefnan árið 1923 var sett þann 15. júlí, voru þátttakendur 38 talsins. Það vekur sjálfsagt strax athygli manna ártalið 1923 og síðan 50 ára afmæli og að það komi ekki heim og saman. Því er til að svara, að stjórn N.B.U. taldi að telja mætti einnig með undirbúningsárin og heldur upp á afmælið nú í sömu borginni og á sama stað og fyrsta ráðstefnan var sett. Það skipti og máli, að Gautaborg hélt upp á 350 ára afmæli sitt í ár. Mynd af þátttakendun- um á afmælisráðstefnunni var tekin á tröpp- um háskólans í Vasagarðinum, nákvæmlega á sama stað og myndin frá 1923. Þá voru fulltrúar frá þremur bankamannasambönd- um í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, sem töldu þá 5000 félagsmenn. Nú voru fulltrú- ar frá sex samböndum bankamanna frá Finn- landi og Islandi auk fyrrgreindra landa og einnig frá sambandi Sparisjóðsstarfsmanna í Danmörku. Og nú eru félagsmenn N.B.U. orðnir 76000. Af frumkvöðlunum voru tveir mættir í Gautaborg að þessu sinni, Viktor von Zeipel, sem nú er orðinn 96 ára, frá Svíþjóð, og Reidar Wiland frá Noregi. Auk þeirra voru margir gamlir forystumenn bankamanna í hinum ýmsu löndum boðnir á þessa hátíðar- ráðstefnu N.B.U., og meðal þeirra var Ein- varður Hallvarðsson frá Islandi. I afmælis- hófinu í Börsen, sem er móttökustaður borg- arstjórnar Gautaborgar, fluttu margir þess- ara gömlu forystumanna ræður og rifjuðu upp viðfangsefni liðinna ára, jafnframt því sem þeir árnuðu N.B.U. framtíðarheilla. Ráðstefnan var sett með viðhöfn í sam- komusal háskólans, sem áður er á minnzt, Vormenn bankamannasam- bandanna í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Ragnar Braaten Gustaf Setterberg Asbjörn Groth 36 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.