Bankablaðið - 01.12.1971, Qupperneq 48
Starfsánægja
Fyrir nokkrum árum varði finnskur mað-
ur doktorsritgerð við háskólann í Helsing-
fors. Bar ritgerðin heitið „Rannsókn á starfs-
ánægju meðal sænskra bankamanna."
Niðurstöður þessarar rannsóknar voru mik-
ið ræddar meðal bankamanna, en þær voru
í stuttu máli þessar:
1. Bankafólk, er náð hefur þeirri starfs-
þjálfun, sem nauðsynleg er sem undir-
staða frekari frama í starfi, er ánægðara
en hitt, sem ekki hefur náð slíkri starfs-
hæfni.
leggja sig í líma til þess að inna starf sitt
sem bezt af hendi. A þann hátt veitist hon-
um mest ánægja af starfinu, viðskiptamenn
bankans fá þá lipru og góðu þjónustu, sem
þeir eiga skilyrðislausa heimtingu á, og þann-
ig verður hagur bankans einnig bezt tryggð-
ur.
Þá væri æskilegt, að starfsfólk bankanna
kynntist betur og hefði meira saman að
sælda en nú er. Mér er ljóst, að það mál er
allt annað en auðvelt viðfangs. Hvert sem
við lítum eru ótal hendur á lofti til að laða
fólk að hinum og þessum störfum og skemmt-
unum. Það er barizt um hvern einstakling
og, því miður, oft í því skyni að hafa af hon-
um fé fyrir skröpur einar.
Verkefnin, sem fyrir samtökum banka-
manna liggja, eru svo mörg og stór, að
mann sundlar við. En Róm var ekki byggð
á einum degi, og því dugir ekki annað en
berjast áfram. Og einmitt í baráttunni getum
við einnig fundið lífshamingjuna.
2. Fjárhæð launanna, miðað við aðrar
starfsstéttir, hefur hér mikið að segja.
3. 33.7% alls bankafólks hefur einhverja
aukavinnu með höndum.
4. Því minni sem skrifstofan er, þar sem
unnið er, þeim mun meiri er starfsánægj-
an.
5. Ánægjan með starfið stígur í hlutfalli
við starfsaldurinn. Mest er hún síðustu
tíu starfsárin.
6. Hjá vinsælum yfirmönnum eru veik-
indadagar starfsfólksins færri.
7. Starfsánægjan er þeim mun minni því
lengri og betri skólalærdóms, sem notið
hefur verið.
8. Ogifta fólkið nýtur betur samvistanna
við vinnufélagana.
9- 39% af öllu bankafólki hugsar í frí-
stundum sínum ýmist oft eða mjög oft
um starf sitt.
10. Spurningunni „Mynduð þér vilja taka
að yður stöðu í öðrum banka í sama
byggðarlagi og við sömu kjör?" svöruðu
56%: „Hreint ekki".
11. Er spurt var, hvort menn myndu taka
stöðunni væru hærri laun í boði, svör-
uðu 63.5% játandi, 18% voru í vafa,
en 18.5% vildu það ekki, jafnvel þó
að tvöfalt hærri laun væru í boði.
12. 62% kváðust halda áfram starfi í bank-
anum þrátt fyrir það þó að þeim félli
mikill arfur í skaut.
Nú gætu íslenzkir bankamenn velt því
fyrir sér, hver árangur kynni að verða, væru
samskonar rannsóknir gerðar í íslenzkum
bönkum.
46 BANKABLAÐIÐ