Bankablaðið - 01.12.1987, Page 22
22
Fræðslumál
FRÆÐSLU STARF SIB 1987
Vegna þess hve starf trúnaðarmanns-
ins á vinnustöðunum er mikilvægt fyrir
stéttarfélag eins og SÍB hefur nánast
allt fræðslustarfið gengið út á fræðslu
fyrir þá.
í febrúar 1987 var í fyrsta sinn haldið
Trúnaðarmannanámskeið III. Var það
fyrsta námskeiðið sem haldið var í hin-
um nýju og glæsilegu húsakynnum
Bankamannaskólans. Námskeiðið stóð
í tvo daga og sóttu það um 65 trúnaðar-
menn, sem höfðu lokið námskeiðum I
og II. Á námskeiðinu var fjallað um
starfsumhverfi og vinnuvernd og var
sá þáttur í umsjá Harðar Bergmann,
fræðslufulltrúa hjá Vinnueftirliti ríkis-
ins. Síðan tóku við sálfræðingarnir
Gunnar Árnason og Sigtryggur Jónsson
og fjölluðu þeir um mannleg samskipti.
Á námskeiðinu flutti einnig Jan-Erik
Lidström framkvæmdastjóri Norræna
bankamannasambandsins erindi um
norrænt samstarf bankamanna.
27. mars var haldinn kynningardagur
fyrir trúnaðarmenn og stjórnarmenn í
starfsmannafélögunum. Mættu um 20
manns í Tjarnargötuna og hittu starfs-
menn SÍB.
Trúnaðarmannanámskeið I var haldið
í Munaðarnesi í maímánuði. Námskeið-
ið stóð í fjóra daga og voru þátttakendur
27. Á námskeiðinu var veitt tilsögn í
ræðumennsku og hópstarfi. Diðrik
Haraldsson hefur séð um þessa fræðslu
og nýtur hún mikilla vinsælda. Kynning
á SÍB, kjarasamningurinn og réttindi
og skyldur trúnaðarmanna eru atriði
sem mikil áhersla er lögð á á þessu
námskeiði. Þetta var í umsjón heima-
manna, þ.e. Hinriks Greipssonar, Ein-
ars Arnar Stefánssonar og Kristínar
Guðbjörnsdóttur. Þá settu þátttakendur
sjálfir á svið ýmis vandamál úr daglega
lífinu og leystu þau. Tilgangurinn með
þessu er að þátttakendur geti leyst
vandamál, ef einhver koma upp á vinnu-
staðnum.
í október var síðan haldið Trúnaðar-
mannanámskeið II. Námskeiðið var
haldið í húsakynnum SÍB að Tjarnar-
götu 14 og voru boðaðir þátttakendur
af námskeiði I í maí. Kom í ljós að hóp-
urinn hafði þynnst mjög og mættu 15 af
þeim sem voru í Munaðarnesi og 2 sem
áður höfðu lokið námskeiði I. Dagskrá
þessa námskeiðs sem stóð í fjóra daga
var mjög f jölbreytt. Fyrir utan upprifj-
un á kjarasamningum og réttindum og
skyldum trúnaðarmanna, sem þau Hin-
rik Greipsson og Kristín Guðbjörns-
dóttir sáu um og fræðslu um fundar-
sköp og fundarstörf sem Diðrik Har-
Hlustað af athygli. Hluti þátttakenda á Trúnaðarmannanámskeiði 1 1987.
Slakað a á milli dagsrárliða á Trúnaðarmannanamskeiði II og skoðaðar myndir frá vornam-
skeiðinu.