Bankablaðið - 01.12.1987, Síða 28
28
Af erlendum vettvangi
BankaríKína:
Talnagrindur
og 7 daga
vinnuvika
Talnagrindur og spjöld eru helstu verkfærin í Banka alþýðunnar i Kína.
Flestir Kínverjar spara árum saman
til að geta keypt sér kæliskáp, sjón-
varpstæki eða þvottavél. Spariféð
hleðst upp í bönkunum, á sama tíma og
iðnaðarfyrirtækin eru keyrð áfram á
hámarksafköstum til að mæta sívax-
andi löngun Kínverja til að eignast raf-
magnstæki.
Shun Quai vinnur við talnagrindina.
Gulu kúlurnar kastast fram og til baka í
trégrindinni, á meðan hún blaðar kerf-
isbundið í gegnum stóran bunka af við-
skiptareikningum.
Vaxtafærslurnar eru vandlega skrif-
aðar inn með lindarpenna og reikning-
unum síðan raðað í þrjár stórar skjala-
möppur - eina fyrir venjulega spari-
reikninga, eina fyrir ávísanareikninga
og eina fyrir Hong-Kong Kínverja, sem
reka fyrirtæki og leggja inn peninga í
Kínverska alþýðulýðveldinu.
Tölvur og reiknivélar eru óþekkt
fyrirbæri 1 útibúi Alþýðubankans í út-
jaðri Chengdu, milljónaborgar í suð-
vestur-Kína.
Útibúið er líkast skúrbyggingu, 30
fermetrar að stærð. Innréttingin er eins
einföld og hugsast getur. Afgreiðslu-
borð þvert yfir skrifstofuna, borð og
stólar fyrir starfsmenn og járnrimlar
til varnar þjófum. Vopnuð rán eru afar
fátíð í Kína, en þjófnaðir gerast æ al-
gengari.
Alþýðubankinn rekur útibú um allt
Kínaveldi, eins og aðrar peningastofn-
anir, t.d. Bank of China. í raun er um
sparisjóði að ræða, því að viðskipta-
mennirnir geta aðeins nýtt sér peninga-
stofnanirnar í einum tilgangi: til að
leggja inn fé, spara peninga.
Kínversk stjórnvöld leyfa ekki útlán
til einkanota. Um þá hlið mála sér hins-
vegar lítill her sjálfskipaðra „útlán-
ara“. Refsingar fyrir ólöglega útlána-
starfsemi eru harðar. Og vextirnir á
svarta lánamarkaðinum eru líka háir -
milli 20 og 50 prósent á ári.
Aldrei helgarfrí.
Zhen Jing er 29 ára gamall. Hann er
útibússtjóri Chengdu-útibús Alþýðu-
bankans. Með honum vinna fjórir banka-
starfsmenn. Þeir þjóna alls um 8000
föstum viðskiptavinum.
- Við vinnum átta klukkustundir á
dag, alla daga vikunnar. Það er venjan í
kínverskum peningastofnunum. Við fá-
um aldrei frí um helgar, segir hann.
Hann gekk í skóla í átta ár. í byrjun
áttunda áratugarins tók hann miðskóla-
próf og var svo sendur út á land ásamt
milljónum annarra unglinga.
- Borgarbúar eiga að læra af bænd-
um, það var dagskipunin. Ungmennin
komust brátt að því að sú lexía saman-
stóð af erfiðri, líkamlegri vinnu, póli-
tískri innrætingu og launum, sem voru
nálægt lágmarksframfærslumörkum.
Árið 1978, tveimur árum eftir dauða
Maós, snéri Zhen Jing aftur til stór-
borgarinnar, sótti bankaskóla í hálft ár
og hefur síðan starfað í Alþýðubank-
anum í Chengdu, fyrst sem óbreyttur
starfsmaður og nú sem útibússtjóri.
Kröfur þær sem gerðar eru til banka-
starfsmanna hafa aukist síðan hann var
ráðinn. Lágmarksskólaganga er 10 ár
og að auki hálft ár í barnaskóla. En
flestir velja þriggja ára bankafræðslu
í tækniskóla, þegar miðskólaprófi lýkur
eftir 10 ára skólagöngu.
Lágir vextir.
Viðskiptavinir Alþýðubankans geta
valið á milli reikninga sem eru bundnir
að minnsta kosti í hálft ár og í mesta
lagi átta ár. Jafnframt skuldbinda þeir
sig til að greiða ákveðna upphæð inn á
reikninginn mánaðarlega. Ársvextir eru
frá 0,5 prósentum (hálfs árs binditími)
til 0,84 prósenta (átta ára binditími).
Verðbólgan hefur undanfarin ár sveifl-
ast milli fimm og sex prósenta.
Alþýðubankinn kínverski lánar fé til
ríkisfyrirtækja og samvinnufélaga,
með jafn lágum vöxtum og sparifjár-
eigendur fá. „Alþýðan" styður með
öðrum orðum við bakið á ríkinu með
sparnaði sínum.
- En hvernig stendur á því að fólk
leggur peninga á bók með svo lágum
vöxtum?
- Öryggið. Það er hrætt við að geyma
féð heima. Og Banki alþýðunnar er
þekktur fyrir að vera traustur banki.
Ef menn vilja lifa nútímalífi, verða þeir
að leggja peninga á banka. Sjálfur legg
ég til hliðar af mánaðarlaunum mínum,
sem nema tæpum 1400 ísl. krónum,
segirZhen Jing.
Hann giskar á að helmingur Kínverja
leggi sparifé sitt á banka, - til að geta
keypt sjónvarpstæki, kæliskápa, þvotta-
vélar, segulbandstæki, reiðhjól, skelli-
nöðrur - og brúðkaupsveislur! Svart-
hvítt sjónvarpstæki kostar t.d. um 4900
krónur, kæliskápur um 5600 kr., reið-
hjól kostar frá 1700 kr. til 2800 kr., en
að halda almennilegt brúðkaup kostar,
samkvæmt dagblaðinu China Daily,
hvorki meira né minna en 37.500 ísl.
krónur!
Zhen Jing hefur meðallaun og örlítið
betur. Hann er kvæntur og á þriggja
ára dóttur. Húsaleigan er 45 krónur á
mánuði, og næstum 80 prósent launanna
fara í að fæða og klæða fjölskylduna.