Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Side 8

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Side 8
344 ÚTVARPSTÍÐINDI einskonar leynillegur ritskoðari, án þess að Björnson liafi hugmynd um það, og lætur hún bréfspjöldin hverfa í kyrrþey, ef Björnson hefur verið of stórorður. í jafnmilli kyrrþey lætur hún þau bréf liverfa, sem eru allt of móðgandi fyrir Björnson. Dag nokkurn varð Björnson mjög undrandi, þegar hann frétti að nokkur bréf hans liefðu aldrei komið til skila. „Það er nú ljóta ringulreiðin á póstinum hérna í Noregi“, sagði hann. „Já, ástandið er ekki gott“, svaraði frú Karólína, um leið og hún réði honum frá því að skrifa skammargrein um sleif- ariagið á póstmálunum, þar með var málið útrætt. Þegar Björnson hefur lesið póstinn, fer liann að Jíta eftir búskapnum, en það gerir hann daglega. Og þegar hann hefur borið saman ráð sín við ráðs- manninn, gengur liann út á akra og engi og lítur inn í gripahúsin- Oft ber liann exi eða reku í hendinni, því hann hegg- ur visnar greinar af trjánum eða rífur steina upp úr ökrunum. Úg hefi einnig séð hann hamast við uppskeruna, svo að svitinn Iiogaði af honum. Lífsorka lians er ódrepandi. Hann hatar iðjuleysi. Og vei þeim kaupamanni sem Björnson sér ganga iðjulausan, það verða ekki eintóm sólskynsorð, sem hann velur þeitn syndasel. Það eru engar ýkjur þó sagt sé um Björnson, að mesta gleði, sem honum hlotnaðist, var að sjá náttúruna í fullum blóma, að sjá ávöxt sinna eigin athafna. Kvöld nokkurt, þegar hann var að sýna gestum sínum nýplægða akur- spildu sagði hann: „Til þessa erum við mennirnir skapaðir. Ilver sá, sein eklci vinnur að landbúnaðarslörfum, vísar á bug Jiollustu og ófölskustu gleði, sem til er. Akuryrkjjan er mér kærust af öllum landbúnaðarstörfum, og mér þykir jafn- vel vænna um hana, en bækurnar mín- ar“. Og hann bætti viö: „Þegar öllu er á bolninn hvolft, er ég fádæma ham- ingjusamur maður. Ég liefi öðlast margt af því, sem ég óskaði mér í æsku- Þegar ég var ungur stúdent, dáðist ég að stóru bændabýlunum og fallegu hestunum. Ég óskaði mér einskis fremur en að eignast slíkt stórbýli og aka tvíeyki. Og nú lief- ur mér orðið að ósk minni . . .“ Og víst er um það, að aldrei gleymir Björnson skepnunum og dýrunum, þegar hann er í hinni daglegu eftirlitsgöngu sinni. — Björnson er ákafur dýravinur, og fara margar lijartnæmar sögur af því. Dag nokkurn sá hann, að lítill fugl hafði gert sér lireiður rétt fyrir ofan aðaldyrnar á Auestad. Hann gerði sér þá lítið fyrir og læsti hurðinni og bann- aði öllum stranglega að koma nálægt dyrunum, meðan fuglinn lægi á. öðru sinni var uppi fótur og fit í Aulestad, Björnson var algjörlega liorfinn og hafði ekki sést snefill af honum í nokkurn tíma, að lokum fannst hann úti í hænsna- kofa- Það liafði verið lceyptur nýr hani, og þar stóð Björnson, til þess að sjá um, að gamli haninn gerði ekki út af við liann. Hanarnir áttu að venjast liver öðr- um og verða síðan vinir. En svo fór þó ekki, þrátt fyrir umhugsunarsemi Björn- sons. Gamli haninn fór alveg halloka fyrir hinum unga samherja sínum og var að lokum svo illa á sig kominn, að frú Karólína Björnson lét högyva hann og matbúa, án þess að Björnson vissi. Þegar hann var á borð borinn, snerti Björnson ekki við matnum. Frú Kar- ólína spurði hann þá hvort liann væri veikur. ,,Nei“, sagði Björnson. „Ég er ekki veikur, en maður borðar aldrei gamla vini sína“. Hér er eitt dæmi í við- bót, sem sýnir vel kærleika Björnson i garð dýranna, — þó kærleikurinn hafi ekki verið endurgoldinn í þetta skipti. Það var dag nokkurn, að Björnson sá sér lil mikillar gremju, livar geithafur nokkur var tjóðraður langt í burtu frá liinum skepnunum. Hann spurði þá hvers vegna hafurinn væri látinn dúsa þarna, og fékk það svar að hafurinn réð- ist á alla, sem hann næði til. „Það kem- ur af því, að það er ekki farið nógu vel að honum“, svaraði Björnsson- „Hér hímir hafurinn og hefur einu sinni ekk- ert að eta“, þvínæst tók hann heytuggu og gekk til hafursins, sem öllum til mik- illar undrunar át með beztu lyst ú” hnefa Björnsons, og var hinn vinalegasti. Björnson ljómaði af gleði. „Þarna getið þið séð, að ég liefi rétt fyrir mér“, sagði

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.