Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Page 14

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Page 14
350 ÚTVARPSTÍDinDI inu, og hún snerist ekki. Næst Meiða- velli, þar við veginn lá reiðhjól, sem ekki snerist heldur. En Jóel á Tóvegg var að fara með ullina sina austur fyrir á og fór hægt. Við gátum samt farið hægar, með því, að setjast niður, svo hann varð sæll. Þá er Byrgi. Þar var matur. Fiskaboll- ur svo pipraðar, að okkur sveið langt út fyrir tún. Fyrirtaks rabbarbaragrautur og ka'ffi á eftir- Tjölduðum sunnan við fjárhús í rign- ingu. Rigning um kvöldið, rigning um nótt- ina, rigning um morguninn. Rigning á sunnudaginn. Aldrei þurrt, aðeins mis- jafnlega blautt. Keyptum morgunkaffi heima í Byrgi. Gengum síðan inn í Byrgið, þá var minna blautt. Fóruin þó ekki nema inn fyrir eyjuna. Síðan heim í tjald og átum. Lugum síðan um stund hvor í annan. Sváfum síðan um stund. Drukkum kaffi um stund. Sváfum aft- ur um stund- Átum síðan litla stund. Gengum síðan út um stund og heim að Byrgi, þar var okkur boðið kaffi. Drukk- um það og dvöldum þar inni um stund. Gengum síðan út í tjal.d 0— IösIjjtusI Klettar viS Jökulsá. Svínadalur. fyrir. Sofnuðum. Ég svaf langa stund en Ásmundur stutla — að eigin sögn. Vöknuðum klukkan scx á mánudags- morgun. Þá var rigningarlaust. Hituð- um og drukkum kakaó og lögðum síðan bagga á bak og tjald i hönd og örkuðum sem leið liggur upp hjá Ási og svo fram- vegis. Þá fór að rigna — og okkur fannst það vera að verða svart, maður. Héldum þó áfram suður að Hljóðaklettum. Tjöld- uðum þar og átum- Skoðuðum okkur samt fyrst um í Idukkustund. Meðan við vorum að borða, skein sólin á tjaldið í tvær mínútur og þrjátíu og sex sek- úndur. Það var allt sþlskinið þann dag- inn. En það varð til þess, að við ákváð- um að skilja tjaldið og draslið eftir og ganga lausir áfram suður i Hólmatung-- ur. Hvað við og gerðum, með viðkomu í Svínadal. Þar hittum við Pál bónda Jónsson, er þar býr einn, utan hvað eitt svart hund- kvikindi hefst þar við með honum. Sæk- ir Páll mat, sem sendur er austan yfir Jökulsá á streng frá Hafursstöðum einu sinni i viku. f Hólmatungum höfðum við eilitla dvöl til umskoðunar, en snerum síðan útleiðis aftur og komum mátulega heim í tjaldið í kvöldmatinn, er við neyttum með þakklátu og frómu hjartalagi, enda var lystin orðin góð. Að máltíð lokinni gengum við enn um klettana nokkra hríð og leizt okkur þeir margir, undra miklir og haglega gerðir, og það jafnvel svo, að þeir höfðu manna mál og svöruðu, ef á þá var yrt. Nokkuð mun þá þó hafa skort hugkvæmni, því

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.