Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Síða 15

Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Síða 15
ÚTVARPSTIÐINDI. 351 aðeins átu þeir eftir það, er við þá var mælt. Á leiðinni frá Hljóðaklettum suður í Hólmatungur iná sjá margar kynjamynd- ir í klettum og fjölbreytni í gróðri- Má hér sjá eina þá mynd, er þar ber fyrir augu. Sér hér í norður eftir Jök- ulsá og kletta nokkra beggja megin henn- ar, litlu sunnan við Hljóðakletta. Sömuleiðis má hér sjá fingur tvo, er réttast upp í loftið á eyrinni vestan Jök- ulsár, einnig skammt sunnan Hljóða- kletta. Eru þeir furðulega miklir og tröllslegir, svo að nema mundi hæð turna stærstu kirkna. Þriðjudagsnótt dvöldum við í tjaldi okkar í Hijóðaklettum, í góðu yfirlæti. Á þriðjudagsmorgun skoðuðum við enn þessa undra-klettaborg, og hefðum get- að haldið því áfrain dögum og yikum saman, og þó séð alltaf eitthvað nýtt. Við lögðum samt af stað til baka klukkan rúmlega níu og gengum sömu leið og við komum, út á móts við Ás- byrgi innarlega. Þar beygðum við vestur á brún Byrgisins. Var þaðan undra til- komumikið og vítt yfir að líta. Við gengum síðan norður Byrgisbrún- ina og komum í Byrgi klukkan hálft eitt. Borðuðum- Gengum Austur að Jökulsár- brú og rædduin við hliðvörðinn um stund. Þá til baka. Drukkum kaffi. Sett- umst síðan út í tún í sólskini og blíðu og biðum Austfjarðabílsins, sem við ætluðum að komast með til Húsavíkur. Kiktum út á Sandana, hvar hillingar bar liátt á loft. Var að sjá eins og risa- skógur teygði sig þar upp úr hafinu og upp úr honum hingað og þangað að sjá sem stærðar hallir með súlum og turn- um og allskonar kynjamyndum. Klukkan hálffimm komu þrír Aust- fjarðabílar, allir fullir. Sátum við á palli eins þeirra niður í Lindarbrekku, en þar losnuðu sæti, svo við komumst inn. Komum heim klukkan hálfátta og þóttumst hafa gert góða ferð — þrátt fyrir allt. Stórmerkilegt rit um ÓDÁÐAHRAUIM eftir Ókf Jónssoa á Akureyri- Ritið er í þremur bindum, um 1300 blaðsíður, í sama broti og Söguþættir land- póstanna — og í því eru um 300 myndir. Þarna fá menn í einu riti land- fræðisögu og landafræði Odáða- hrauns og Mývatnsöræfa, jarð- sögu, sagnir um eldvörp, hraun- gerðir og eldgos, ýmsar frásagn- ir, þjóðtrú og sjóðsagnir tengd- ar þessum öræfum, ferðasögur og margt fleira. Hér er um að ræða eitt af öndvegisritum íslenzkra bók- mennta og hefur höfundur- inn unnað að því svo árum skiftir. Bókin um Ódáðahraun er mjög vönduð að öllum ytri frágangi, prentuð á bezta fáanlegan papp- ír og bundin í fagurt band. NORÐRI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.