Útvarpstíðindi - 10.12.1945, Síða 16
352
ÚTVARPSTIÐINDI
Stök itr S)temclc
oró
STIiINDóR SIGURÐSSON skáld sendi
Útvarpstíðindum nokkraí stökur 1 vísna-
samkeppnina í sumar, en þær komu of
seint til þess að koma til greina í sam-
keppninni, því miður. Alls voru stök-
urnar átta og fara sjö þeirra hér á eftir:
1. Þetta sé þilt leiðarljóð
lífs á vegferðinni:
Gulli er betra að geyma í sjóð
glaðra stunda minni-
2. Misvindur og kyljuköst,
koldimm stundarhryðja.
Eg hefi lent í úfnri röst
og inn í hana miðja.
3. Ennþá hefi ég ekki „vent“,
ætla að láta „slóa“;
einhverntíma eg hef rent
upp í stærri sjóa.
4. Meðan beygða björkin kól,
blöð er sveigði að glugga,
grunur eygði í glaðasól
glotta feigð í skugga.
».
(A söngskemmtiin).
5. Silfurrómi sungið er,
sorgarhljómar engir;
himinljómi um hugann fer,
hjartans óma strengir.
6- Dimmir á ný í döprum rann,
dagana burtu hlóann.
Hvítum seglum siglir hann
suður allann flóann-
(Tækifœrisstaka).
7. Eru á flakki sæla og sorg
svona eins og gengur.
En hér er engin Ingi-Rjörg
og ekkert gaman lengur.
Á næstunni koma út:
A HREINDÝRASLÓÐUM
hrífandi fögur bók, er seg-
ir frá lífi hreindýranna á
öræfum ísi'ands, veiðisögum
og svaðilförum. — Fjöldi
mynda v— og margar þeirra
litprentaÖar prýða bókina.
Hafa flestar þeirra verið
teknar í tveimur leiðangr-
um, sem Norðri hefur gert
út til hreindýranna upp á
hálendi Austurlands.
„ÞEYSTU ÞEGAR í NÓTT'
nefnist sænsk skáldsaga í
þýðingu Konráðs Vilhjálms-
sonar, sem mun vekja at-
hygli og verða mikið um-
töluð. — Bókin verður í
sama broti og „Glitra dagg-
ir — grær fo!d“ og prýdd
mörgum fallegum myndum.
NORÐRI