Morgunblaðið - 04.12.2008, Side 1
F I M M T U D A G U R 4. D E S E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
332. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
VIKINGUR HEIÐAR LEIKUR MEÐ SINFÓ
VIÐ BARTÓK
ERUM VINIR
ELÍN JÓNSDÓTTIR HEIÐURSFÉLAGI
Faldbúningurinn
endurvakti áhuga
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
–
2
3
8
6
Leikhúsin
í landinu >> 57
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
DAVÍÐ Oddsson
seðlabankastjóri
segir í viðtali við
Bent A. Koch í
danska dag-
blaðinu Fyens
Stiftstidende, að
hann ætli sér að
gegna stöðu
seðlabankastjóra
í nokkur ár til við-
bótar.
„Þá hyggst ég hætta af sjálfsdáð-
um með sama hætti og ég gerði þeg-
ar ég lét af starfi forsætisráðherra.
Verði ég hins vegar þvingaður úr
starfi horfir málið allt öðruvísi við.
Þá mun ég snúa aftur í stjórnmálin,“
segir Davíð.
Í viðtalinu, sem ber yfirskriftina
„Blóraböggull fólksins: Ég varaði
við, en enginn vildi hlusta“, segist
Davíð hafa hreina samvisku, enda
hafi hann lengi varað við því hvert
stefndi og verið mjög gagnrýninn í
garð nýju auðmannanna en ávallt
talað fyrir daufum eyrum. „Ef við
hefðum haft frjálsa fjölmiðla, sem
hefðu getað og viljað veita hinum
raunverulegu valdamönnum aðhald,
þá hefðum við ekki leiðst út í ofviðrið
sem nú ríkir,“ segir Davíð og tekur
fram að hann skilji vel að gremja
fólks beinist að sér þar sem hann sé
tákngervingur valdakerfisins í stöðu
sinni sem seðlabankastjóri.
Spurður hvort hann telji að Ísland
eigi að sækja um aðild að ESB segist
Davíð sjálfur ennþá vera andvígur
því. „En ef flokkur minn kemst að
þeirri niðurstöðu að sækja eigi um
aðild þá mun ég ekki leggjast gegn
því,“ segir hann.
„Þá mun ég snúa aftur“
Davíð boðar endurkomu í stjórnmál verði
hann látinn hætta sem seðlabankastjóri
Í HNOTSKURN
» Fyens Stiftstidende hefurverið gefið út undir núver-
andi nafni síðan 1852, en frá
árinu 1772 kom blaðið út und-
ir nafninu Kongelig Privilige-
rede Odense Adresse-Contoirs
Efterretninger.
»Bent A. Koch var aðalrit-stjóri Fyens Stiftstidende
á árunum 1982 til 1995.
»Lesa má viðtalið við DavíðOddsson í heild sinni á vef
blaðsins: www.fyens.dk.
Davíð Oddsson
ÞORBJÖRN Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, óttast að
3-4 þúsund byggingamenn verði at-
vinnulausir í byrjun næsta árs. Þeg-
ar flest var um mitt síðasta ár voru
yfir 15 þúsund manns við störf í
bygginga- og mannvirkjagerð.
„Við teljum eðlilegt að um 11
þúsund manns séu við þessi störf og
fækkun niður í þann fjölda starfs-
manna hefði verið aðlögun að eðli-
legum aðstæðum.
Nú erum við ekki að tala um að-
lögun heldur hrun og sér ekki fyrir
endann á því,“ segir Þorbjörn.
Bendir hann á að nú séu um 700
faglærðir, íslenskir iðnaðarmenn
skráðir atvinnulausir. »8
Verða 3-4 þúsund bygg-
ingamenn atvinnulausir?
GENGI krón-
unnar mun frá
og með deginum
í dag ráðast á
markaði, þó inn-
an þeirra marka
sem lög og regl-
ur um gjaldeyr-
ishöft segja til
um.
Viðmælendur Morgunblaðsins
eru ekki sammála um hvort krónan
muni lækka í fyrstu, en segja að
markmiðið með fyrirkomulaginu sé
vissulega að styrkja krónuna. Þeg-
ar til lengri tíma sé horft sé hins
vegar allt útlit fyrir að krónan taki
við sér á ný. »Viðskipti
Takmörkuð fleyting
krónunnar hefst í dag
HUGSANLEGUR kostnaður sam-
félagsins vegna hruns bankanna
gæti orðið á bilinu 3.200-4.400 millj-
arðar króna. Inni í þeirri upphæð
er áætluð fjármögnunarþörf rík-
isins, tap hlutabréfaeigenda í bönk-
unum og tap vegna peningamark-
aðssjóða. Kostnaður á hvern
Íslending er því um 13 milljónir.
Til að setja þessar fjárhæðir í
samhengi má geta þess að heildar-
fasteignamat alls húsnæðis í land-
inu var samtals um 4.060 milljarðar
króna við síðustu áramót. Þar af
var fasteignamat alls íbúðar-
húsnæðis í landinu um 2.700 millj-
arðar króna. »Viðskipti
Kostnaður við kreppuna
allt að 4.400 milljarðar
ÞEIR sem fengu mat í úthlutun Mæðrastyrksnefndar í gær hafa án efa
borið blendnar tilfinningar í brjósti. Þeim sem leita til nefndarinnar hefur
fjölgað stórlega og eru ný andlit áberandi, að sögn starfsmanna. Ragnhild-
ur G. Guðmundsdóttir, formaður nefndarinnar, segir marga hafa misst
vinnuna nýlega. Margir störfuðu áður í byggingariðnaði en eins hafa
banka- og verslunarmenn leitað til nefndarinnar að undanförnu. | 26-27
Erill hjá Mæðrastyrksnefnd í upphafi aðventunnar
Morgunblaðið/Golli
Hundruð matarpoka bíða úthlutunar