Morgunblaðið - 04.12.2008, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson og Guðna Einarsson
UMTALSVERÐUR samdráttur hefur orðið hjá leigu-
bílastöðvunum á undanförnum mánuðum, að sögn Sæ-
mundar Kr. Sigurlaugssonar framkvæmdastjóra Hreyf-
ils/Bæjarleiða, sem er langstærsta stöðin með 370
leigubíla.
Að sögn Sæmundar var samdrátturinn í nýliðnum nóv-
ember 22% ef miðað er við sama mánuð í fyrra. Sam-
dráttur milli nóvember og október er 11%. Er þá miðað
við afgreiddar ferðir frá stöð.
Sæmundur segir að samdrátturinn nái bæði til einstak-
linga og fyrirtækja, sem notað hafa þjónustu leigubíla-
stöðvanna. Hann segir að mörg fyrirtæki, sem hafi verið
stórir viðskiptavinir stöðvanna, hafi dregið saman seglin.
Hækkanir á eldsneyti og aðkeyptri þjónustu, t.d. á verk-
stæðum, hafi komið illa við leigubílstjóra og þeir hafi ekki
nema að litlu leyti getað mætt þeim með hækkun taxta.
Þrátt fyrir þetta hafa engir leigubílstjórar hætt akstri.
Helmings samdráttur
„Vinnan hefur dregist saman alla vega um helming frá
því á liðnu vori,“ sagði Sólveig Þóra Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf. Minnkunin er á
öllum sviðum, lítið af búslóðaflutningum, fólk kaupir lítið
af húsgögnum og öðrum stórvörum. Allar framkvæmdir
liggja í láginni og lítið flutt af byggingarvöru, verslanir
hafa ekki leyst út vörur undanfarið. „Við endurspeglum
bara þjóðfélagið. Það er kannski helst að fólk panti bíl til
að flytja það sem keypt er í nytjamörkuðum. Fólk hefur
ekki peninga og allir að spara,“ sagði Sólveig.
Á Sendibílastöðinni hf. störfuðu 102 bílstjórar 1. októ-
ber s.l. Tíu þeirra eru hættir og þrír ætla að hætta um
áramótin en sendibílstjórarnir hafa mánaðar uppsagn-
arfrest. „Menn eru að þrauka en það getur bæst í hóp
þeirra sem hætta ef þetta heldur svona áfram,“ sagði Sól-
veig. Hún sagði suma bílstjóranna hafa verið með fasta
samninga um akstur. Þeir hafi ýmist haldið föstu
vinnunni eða henni verið sagt upp.
Reksturskostnaður bílanna hefur einnig rokið upp.
Bílaflotinn á Sendibílastöðinni er tiltölulega nýlegur og
margir keyptu bílana á myntkörfulánum. Sólveig sagði
að þeim hafi yfirleitt tekist að frysta lánin.
sisi@mbl.is og gudni@mbl.is
Verulegur samdráttur
Hár rekstrarkostnaður að sliga flestar helstu leigu- og sendibílastöðvar
Stórir viðskiptavinir draga saman seglin Samdráttur í nóvember um 22%
Í HNOTSKURN
»Kreppan í þjóðfélaginu erfarin að segja til sín hjá
bílstjórum leigu- og sendibíla.
»Rekstrarkostnaður hefurrokið upp að undanförnu
og minni eftirspurn er eftir
akstri með vörur og fólk milli
staða.
Morgunblaðið/Sverrir
Leigubílar Mikill samdráttur hefur verið í akstri leigubíla á undanförnum kreppuvikum.
HVATNINGARVERÐLAUN Öryrkjabandalags
Íslands (ÖBÍ) voru veitt í annað sinn í gær á
alþjóðadegi fatlaðra. Veitt voru þrenn verð-
laun, til fyrirtækis, stofnunar og einstaklings,
sem þykja hafa skarað fram úr og end-
urspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti,
sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélag-
inu. Guðjón Sigurðsson var verðlaunaður í
flokki einstaklinga fyrir dugnað og árangur í
málefnum fatlaðra. Tónstofa Valgerðar fyrir
frumkvöðlastarf í þá veru að nemendur með
sérþarfir njóti forgangs til tónlistarnáms. Ak-
ureyrarbær var verðlaunaður í flokki stofn-
ana, fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á „Indep-
endent living“ notendastýrðri þjónustu fyrir
fatlaða. Guðjón er fyrir miðri mynd. Honum á
hægri hönd er Valgerður Jónsdóttir skóla-
stjóri Tónstofu Valgerðar, en á vinstri hönd
Kristín Sigursveinsdóttir, framkvæmdastjóri
búsetudeildar Akureyrarbæjar.
silja@mbl.is
Verðlaunuð fyrir frumkvöðlastarf og dugnað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
ERLENT félag ætlar að gera bindandi tilboð í Kaupþing
í Lúxemborg og verður upplýst á föstudag hverjir það
eru. „Það er ekkert í hendi fyrr en ljóst er hvernig fer,“
segir Friðjón Einarsson talsmaður Kaupthing Bank í
Lúxemborg. Friðjón segir marga hafa sýnt bankanum
áhuga en þessi eini standi eftir.
Yfirvöld í Lúxemborg hafa umsjón með dótturfyrir-
tækinu og réðu endurskoðunarfyrirtækið KPMG til
verksins. Bankinn fór í greiðslustöðvun eftir fall bank-
anna hér en hann er fyrsti erlendi bankinn í eigu Íslend-
inga, stofnaður 1998.
Enn er unnið að því að leysa vanda Landsbankans og
Glitnis í Lúxemborg, sem einnig eru í greiðslustöðvun, og
óljóst hvert framhaldið verður. Aðeins hluti þeirra Ís-
lendinga sem unnu í Landsbankanum sækir vinnu dag-
lega. Í Glitni störfuðu fjórir Íslendingar. Þeir eru allir
enn við störf. Íslensku skilanefndirnar sjá um uppgjör
bankanna.
Opna tilboð í Kaupþing
Morgunblaðið/Ólafur
UM 80% af
starfsfólki á fast-
eignasölum hefur
verið sagt upp á
þessu ári.
„Ástandið á fast-
eignamarkaðin-
um er mjög alvar-
legt og eigendur
allflestra fast-
eignasala róa líf-
róður í þeirri von
að markaðurinn taki eitthvað við sér
strax á næstu mánuðum,“ segir
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala.
Hann segir að ástandið sé alvar-
legra og svartara en það hafi nokkru
sinni verið frá upphafi fasteignasölu
á Íslandi. Það sé sorglegt að sjá
hæft, vel menntað og öflugt fólk á
þessu sviði í algerri óvissu hvað verði
um það.
Taki fasteignamarkaðurinn ekki
við sér á næstu mánuðum muni það
leiða til algers hruns fasteignasala-
stéttarinnar.
Krísunefnd sett á laggirnar
Grétar segir að búið sé að setja á
laggirnar sérstaka krísunefnd skip-
aða reyndum fasteignasölum.
Nefndin, sem kemur saman í dag,
muni „huga að mögulegum úrræðum
í þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er
þegar nánast engin fasteignavið-
skipti eiga sér stað. Og um leið þá
hættu sem þjóðarauðurinn er í, en
hann hefur að stærstu leyti að
geyma fasteignir fólksins í landinu“.
Verði fasteignamarkaðurinn fros-
inn miklu lengur muni verðmæti
fólks í fasteignum þess skaðast enn
meira en þegar hafi gerst.
Hann segir að það sé nauðsynlegt
að brugðist verði við því frosti sem sé
á markaðinum og að lögboðið hlut-
verk Íbúðalánasjóðs, um að aðstoða
fólk að eignast þak yfir höfuðið, verði
tryggt.
Um 80%
hafa misst
vinnuna
Grétar
Jónasson
Alvarlegt ástand á
fasteignamarkaðinum
HAFRANNSÓKNASKIPIÐ Bjarni
Sæmundsson heldur um helgina til
síldarrannsókna. Verða þá tvö skip
við rannsóknir og mælingar á síld-
arstofninum og er það gert í ljósi að-
stæðna, en þriðjungur síldar sem
hefur verið landað undanfarið hefur
verið sýktur.
Dröfn heldur til rannsókna í
Stakksfirði og á Breiðafirði á föstu-
dag. Í kjölfarið heldur Bjarni Sæ-
mundsson til rannsókna og leitar frá
Vestmannaeyjum og vestur um á
dýpri slóð heldur en Dröfnin.
Hoffell SU leitaði að síld fyrir
norðan landið og kastaði í fyrradag í
Steingrímsfirði. Síldin var sýkt.
Tvö skip
rannsaka
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
50%
AFSLÁTTUR
90 x 200 cm
120 x 200 cm
150 x 200 cm
180 x 200 cm
Verð frá kr. 44.450,-
Verð frá Kr. 55.950,-
Verð frá Kr. 67.450,-
Verð frá Kr. 80.950,-
Verðdæmi með afslætti:
af öllum rúmum
út desember
VERÐHRUNPatti húsgögn