Morgunblaðið - 04.12.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.12.2008, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 Í ÖLLUM STÆRÐUM VINNUPALLAR Við bjóðum nú síðustu vinnupallana á gamla genginu. Hafðu samband í síma 422-7722 615-1515. Tryggðuþér eintak -frábærverð í boði topdrive.is Smiðjuvöllum 3230 Reykjanesbæ422 7722 - 615 1515 10 FIN LUBE TEFLON smur og varnarolía fyrir allan iðnað og sjávarútveg. Efnið myndar þurra himnu sem hefur langvarandi smureiginleika og er fullkomin vörn gegn tæringu. FIN LUBE þolir vatn, salt og breytilegt hitastig. Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík 10efni í einum brúsa S. 544 5466 / www.kemi.is FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnhildi Örnu Gunnardóttur gag@mbl.is FORMENN bankaráða nýju bank- anna gátu ekki svarað því í gær hvernig þeir myndu uppfylla tillögur ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja. „Þessum spurningum get ég ekki svarað fyrr en stjórn bankans hefur fjallað um málið,“ svarar Valur Vals- son, formaður bankaráðs Glitnis, í tölvupósti. „Það verður fljótlega.“ Í sama streng tekur Magnús Guð- mundsson, formaður bankaráðs Kaupþings. Stefnan verði mótuð á fundi stjórnar bankans sem fundar í dag og á mánudag. Ekki náðist í Ás- mund Stefánsson, formann banka- ráðs Landsbankans. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er nýju bankaráðunum gert að setja sér skýrar viðmiðunarreglur um fyr- irgreiðsu við fyrirtæki í landinu. Reglurnar eiga að taka til lengingar lána, niðurfærslu skulda, breytingar lána í eigið fé og sameiningar fyr- irtækja. Þær eiga að vera gegnsæjar og viðbrögðin samræmd. Bankaráðin eiga að efla innra eftirlit bankanna og skipa óháðan umboðsmann við- skiptavina í hverjum banka. Þá beindi ríkisstjórnin þeim tilmælum til bankaráðanna að hafa hliðsjón af meginreglum um samkeppnissjón- armið. Í skriflegri fyrirspurn Morg- unblaðsins var spurt hvort bankaráð- in vinni að sameiginlegum reglum. Einnig hve langan tíma tæki að setja reglurnar og hvenær bankarnir byrji að breyta skuldum fyrirtækja í eigið fé og hvenær umboðsmaður við- skiptamanna yrði skipaður. For- mennirnir voru spurðir hvort þeir myndu beina því til starfsmanna sinna að horfa heldur til samkeppn- issjónarmiða en þeirrar upphæðar sem boðin væri í fyrirtæki. Sam- kvæmt upplýsingum forsætisráðu- neytisins hefur bönkunum verið veitt undanþága til að skipa vinnuhóp um verklagsreglur. Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, sitja í vinnuhópi ríkisstjórnarinnar. Illugi segir viðmiðunarreglurnar þurfa að liggja fyrir eins fljótt og auðið er og að allir í bönkunum séu meðvitaðir um það. Illuga og Steinunni Valdísi er umhugað um að starfsemi nýju bank- anna njóti trausts og að starf þeirra þoli skoðun. Fyrirgreiðslupólitík sem tíkaðist í tíð gömlu ríkisbankanna megi ekki endurtaka sig. „Við setjum því bankaráðunum rammann og lát- um það í hendur þeirra hvaða fyr- irtæki eru metin lífvænleg og hvers vegna,“ segir Steinunn Valdís. Björgvin G. Sig- urðsson við- skiptaráðherra segir það ekki áfellisdóm yfir neyðarlög- unum að er- lendu kröfuhöf- unum sé nú boðið að breyta kröfum sínum í gömlu bönk- unum í hlutafé í þeim nýju, eins og ríkisstjórnin stefnir nú að. „Nei, þvert á móti. Þetta er úrvinnsla úr neyðarlögunum. Kjarni neyðarlag- anna var fyrst og fremst sá að tryggja innlenda bankastarfsemi og sparifjáreigendur og það tókst. Eftir á að hyggja er það nokkuð ævintýralegt að okkur skuli hafa tekist það en svo er okkar að vinna úr falli bankanna.“ Valgerður Sverrisdóttir, formað- ur Framsóknarflokksins, er ánægð með að semja eigi við erlendu kröfuhafana. „Með þessu er ekki verið að útiloka erlendu kröfurnar eins og virtist vera meiningin í orðum ýmissa ráðamanna sem töl- uðu fyrst eftir hrun bankanna. En greinilega er hér horfið frá því.“ Áfellisdómur yfir neyðarlögunum? Boltinn hjá bankaráðunum  Bankaráð nýju bankanna þurfa að vinna hratt að viðmiðunarreglum.  Þau eiga einnig að skipa umboðsmann viðskiptamanna í alla bankana þrjá. Morgunblaðið/RAX Móta reglurnar Reglumótun í miðjum aðgerðum er hlutskipti bankaráða, skilanefnda, eftirlitsstofnana og ráðu- neyta. Hér sátu forsvarsmenn fund um verklagsreglur fyrir skilanefndirnar í síðustu viku. Björgvin G. Sigurðsson FARÞEGUM sem fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflug- velli í nóvember fækkaði um tæp 36% miðað við sama mánuð í fyrra, úr 143 þúsund farþegum árið 2007 í 92 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fækk- aði rúmlega um 37% milli ára, en far- þegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækk- aði um tæp 25%. Þetta er mesta fækkun milli mán- aða í sögu flugstöðvarinnar. Í kjölfar hryðjuverkaárásanna í New York 11. september 2001 fækkaði farþeg- um umtalsvert. Mest var fækkunin í apríl 2002, en þá fækkaði farþegum um 27,4% miðað við apríl 2001. sisi@mbl.is Metfækkun í Leifsstöð Morgunblaðið/Ómar SÍÐUSTU 10 daga hafa komið upp 5 fíkniefnamál hjá lögreglunni á Ak- ureyri. Við fíkniefnaeftirlit hafa ver- ið höfð afskipti af nokkrum mönnum og sumir voru handteknir. Húsleit var gerð á nokkrum stöðum. Lögreglan telur að tveir þeirra sem hún handtók hafi stundað fíkni- efnasölu og að efni sem lagt var hald á hjá þeim hafi verið ætluð til sölu; kannabisefni og amfetamín. Síðastliðna þrjá mánuði hefur lög- reglan handtekið 16 manns sem hún telur hafa stundað fíkniefnasölu á Akureyri, þrjá þeirra oftar en einu sinni með fíkniefni. Lögreglan minnir á fíkniefnasím- ann 800-5005 þar sem koma má á framfæri upplýsingum um fíkniefna- mál. Þetta er símsvari þar sem fólk getur komið upplýsingum á fram- færi nafnlaust. Starfsmenn ríkislög- reglustjóra taka niður upplýsingar sem berast og koma þeim áleiðis til lögregluembættanna. Fíkniefna- salar teknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.