Morgunblaðið - 04.12.2008, Qupperneq 18
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ekki
ákveðið hvort sýknudómi yfir sr.
Gunnari Björnssyni, sóknarpresti á
Selfossi, verður áfrýjað.
Sr. Gunnar var í fyrradag sýkn-
aður af ákæru um kynferðisbrot
gegn tveimur stúlkum og brot gegn
barnaverndarlögum. Eftir að málið
kom upp veitti biskup Íslands sr.
Gunnari lausn frá embætti um
stundarsakir. Ákvörðun um lausn
frá embætti gildir þar til endanleg
niðurstaða liggur fyrir í málinu, skv.
upplýsingum Biskupsstofu.
Femínistar fordæma sýknudóm
Femínistafélag Íslands fordæmdi
í gær sýknudóminn yfir sr. Gunnari.
Í yfirlýsingu frá félaginu er minnt á
að 25. nóvember hafi verið ýtt úr vör
16 daga alþjóðlegu átaki gegn kyn-
bundnu ofbeldi.
„Á sama tíma fellur enn einn
sýknudómur hérlendra dómstóla.
Gunnar Björnsson, sóknarprestur á
Selfossi, var úrskurðaður saklaus af
ákæru um kynferðisbrot og brot
gegn barnaverndarlögum gagnvart
tveimur unglingsstúlkum. Að auki
var bótakröfum vísað frá dómi. Orð
og upplifun stúlknanna var að engu
höfð og líkamsréttur þeirra og
mannréttindi virt að vettugi af dóm-
stólum.
Femínistafélag Íslands fordæmir
kynferðislegt ofbeldi og þar með
sýnkudóm héraðsdóms Suðurlands.
Femínistafélagið gerir þá kröfu að
ríkisstjórn Íslands geri það að for-
gangsatriði að uppræta kynbundið
ofbeldi og standi við alþjóðlegar yf-
irlýsingar. Það nægir ekki að bar-
áttan gegn ofbeldi sé í innantómu
orði; hún þarf að vera borin á borð,“
segir í yfirlýsingunni. runarp@mbl.is
Sr. Gunnar ekki til
starfa að svo stöddu
Í HNOTSKURN
» Samkvæmt upplýsingumfrá ríkissaksóknara verð-
ur ákvörðun um áfrýjun flýtt
eftir mætti þar sem sr. Gunnar
hefur ríka hagsmuni af skjótri
úrslausn málsins.
» Eftir að málið kom uppvar sr. Gunnari veitt lausn
frá embætti um stundarsakir.
» Sú ákvörðun biskups gild-ir áfram, a.m.k. þar til
ákvörðun um áfrýjun liggur
fyrir.
Skeifan 550-4110, Smáralind 550-4140, Kringlan 550-4130, Hafnarfjörður 550-4120, Selfoss 550-4190, Vestmannaeyjar 550-4180, Egilsstaðir 550-4160, Akureyri 550-4150, Ísafjörður 550-4170
Í VERSLUNUM
OFFICE1
SES
Barnaföndur
Spil
Púsl
Erlendar kiljur
Gjafapokar 3 2FYRI
R
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Í AUGLÝSINGUM um nýjar regl-
ur um skoðun ökutækja eru öku-
menn varaðir við því að ef þeir fari
ekki með bíla sína í skoðun á rétt-
um tíma geti þeir átt von á 15.000
króna sekt. Sjaldnast er tekið fram
að þetta á einungis við um þá sem
eiga bifreiðar með skráningarnúm-
eri sem endar á 0 en draga skoð-
unina fram yfir áramót. Upplýs-
ingafulltrúi Umferðarstofu segir að
auglýsingarnar séu ekki villandi
heldur hvetjandi.
Í auglýsingunum er jafnan vísað
til þess að nánari upplýsingar sé
hægt að fá á heimasíðu Umferð-
arstofu. Þar kemur fram að sekt-
irnar byggist á breytingum á um-
ferðarlögum sem tóku gildi 1.
október sl. og ákvæðin um sekt-
irnar taki gildi 1. janúar 2009.
Mun gilda um alla
Að sögn Einars Magnúsar
Magnússonar, upplýsingafulltrúa
Umferðarstofu, þýðir þetta að í
janúar verður hægt að sekta þá
sem áttu að láta skoða bíla sína í
október 2008 (skráningarnúmerið
endar á 0). Engin heimild er hins
vegar til þess að leggja sektir á þá
sem áttu að láta skoða bílinn í
september 2008 eða fyrr en tröss-
uðu það. Þá hafa þeir sem áttu að
láta skoða bílinn í október frest til
desemberloka. Það verða með öðr-
um orðum engar sektir lagðar á
fyrr en í fyrsta lagi 2. janúar, og
þá aðeins á þá sem eiga bíla með
skráningarnúmeri sem endar á 0.
Á næsta ári þegar reglurnar
hafa tekið gildi leggjast sektir á
alla sem koma of seint með bíla í
skoðun, þ.e. meira en tveimur
mánuðum frá réttum skoð-
unarmánuði.
Sjaldnast minnst á fyrirvarann
Samgönguráðuneytið hefur und-
anfarið auglýst þessa yfirvofandi
breytingu. Í fáum auglýsinganna
er minnst á að aðeins þeir sem
eiga bíla með skráningarnúmerinu
0 geti átt von á sekt. Umferð-
arstofa tók þátt í gerð auglýsing-
anna.
Einar Magnús fellst ekki á að
auglýsingarnar séu villandi. „Það
er sagt að þú getir átt von á sekt,
við fullyrðum ekkert um það,“
sagði Einar Magnús. „Ég vil frek-
ar segja að þetta sé hvetjandi.“
Hafi menn á annað borð dregið að
fara með ökutæki í skoðun felist
ákveðin vakning í auglýsingunum.
Fái viðkomandi enga sekt geti það
verið ákveðin gleðitíðindi. Einar
Magnús sagði að erfitt væri að
koma öllum smáatriðum að í stutt-
um auglýsingum. Ef allt ætti að
koma fram yrðu auglýsingarnar að
vera lengri og þar af leiðandi dýr-
ari.
Auglýsingar ekki vill-
andi heldur hvetjandi
Á næsta ári sektað fyrir að koma með bílinn of seint í skoðun
Morgunblaðið/Kristinn
Skoðun Umdeildar eru auglýsingar Umferðarstofu um skoðun ökutækja.
HJÁ samgönguráðuneytinu er unnið
að nýrri reglugerð um skoðun öku-
tækja. Í drögum að henni er m.a.
gert ráð fyrir að skoðunartíðni öku-
tækja breytist þannig að nú verði
ökutæki skoðað fyrst á fjórða ári frá
skráningu en síðan á tveggja ára
fresti. Þetta er í samræmi við til-
skipun Evrópusambandsins frá
1996. Stærri bifreiðar og atvinnu-
bifreiðar verða skoðaðar árlega.
Mikilvæg breyting frá núverandi
reglugerð er að þess verður ekki
krafist að skoðunarstöðvar séu fag-
giltar. Þess í stað skal skoðunarstofa
uppfylla tiltekin ákvæði í reglugerð
og stöðlum. Þessi breyting gerir bif-
reiðaverkstæðum kleift að skoða bif-
reiðar. Ástæðan fyrir því að nú
stendur til að sekta þá sem koma
með bifreiðar sínar of seint í skoðun
er sú að samkvæmt upplýsingum
Umferðarstofu eru mörg þúsund
bílar í umferð sem ekki eru með
gilda aðalskoðun. Algengt er að
bílar séu færðir til skoðunar nokkr-
um árum of seint, skv. meðfylgjandi
töflu sem byggist á upplýsingum frá
Umferðarstofu. „Það er allra hagur
að ekki séu ökutæki í umferðinni
sem uppfylla ekki ströngustu kröfur
í umferðinni,“ segir Einar Magnús
Magnússon, upplýsingafulltrúi Um-
ferðarstofu. Hann hvetur alla til að
láta skoða bíla sína á réttum tíma.
!
Breyting til samræmis
við 12 ára tilskipun