Morgunblaðið - 04.12.2008, Side 54
54 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
SIGRÍÐUR Ósk Kristjánsdóttir
messósópransöngkona syngur á
tvennum Mozart-tónleikum í Kings
Place tónleikahöllinni í Lundúnum
þessa dagana. Fyrri tónleikarnir
voru í gærkvöld, en þeir síðari
verða annað kvöld, á afmælisdegi
tónskáldsins. Sigríður Ósk kemur
fram með óperuflokknum Classical
Opera Company.
Tónleikarnir voru kynntir sér-
staklega í þættinum In Tune á
þriðju rás Breska útvarpsins, BBC,
á fimmtudaginn fyrir viku. Af því
tilefni var Sigríður Ósk fengin til
þess að koma fram í útvarpinu fyrir
hönd óperuflokksins í beinni út-
sendingu. In Tune er vandaður og
vinsæll tónlistarþáttur með mikla
hlustun. Þar er fjallað um það
helsta og merkasta í tónlistarlífi
Breta hverju sinni, en á aðra millj-
ón hlustenda fylgist með þættinum.
Lýkur meistaraprófi í vor
Sígríður Ósk lauk óperuskóla-
prófi frá Konunglega tónlistarskól-
anum í Lundúnum í vor, en á vori
komanda lýkur hún meistaraprófi
frá sama skóla.
Í vetur hefur Sigríður komið
reglulega fram með Classical
Opera Company, en flokkurinn set-
ur upp tónleika og óperur, meðal
annars í Wigmore Hall, Barbican
Center og í tónlistarhöllinni nýju
Kings Place með fremstu söngv-
urum ungu kynslóðarinnar í Eng-
landi. Hægt er að hlusta á þáttinn
á vefsíðu BBC 3.
Sigríður
Ósk í BBC
Söngkonan Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir messósópran.
Kynnti tónleika óp-
eruflokks sem hún
syngur með
http://www.bbc.co.uk/iplayer/
episode/b00fn7wk/
In_Tune_27_11_2008/
HELJARSTÖKK
Shakespeares er heiti
sýningar sem Leik-
félagið Láki sýnir á
tveim sýningum í Ís-
lensku óperunni kl. 20
og 22 annað kvöld.
Óþelló er viðfangsefni
sýningarinnar, sem er „parkour“ sýning, en um
„parkour“ segir hópurinn: „Parkour lýtur sömu
lögmálum og jaðarsportin bmx og hjólabretti
gera; að gera sitt nánasta umhverfi að leikvelli
sínum. Þetta er skemmtileg stefna og nýtt innlegg
í borgarmenninguna. Þetta snýst um frelsi. Að
gera það sem maður vill, fara þangað sem maður
vill, vera sá sem maður er.“ Nánar um sýninguna
og leikara á othelloparkour.blogspot.com.
Leiklist
Óþelló Sjeikspírs-
son í heljarstökki
STUND milli stríða er yf-
irskrift upplestrarkvölds sem
fer fram á Café Loka, Lokastíg
28, kl. 20 í kvöld. Fjórir höf-
undar munu þá lesa upp úr
bókum sínum. Vilborg Dag-
bjartsdóttir les upp úr bókinni
Dagbók Héléne Berr, sem
fjallar um örlög franskrar gyð-
ingastúlku á tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Auður
Ólafsdóttir les upp úr bók sinni
Afleggjarinn, sem tilnefnd er til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs 2009. Arndís Hrönn Eg-
ilsdóttir leikkona les upp úr bókunum Hvar er
systir mín? og Borða, biðja, elska og Helgi Guð-
mundsson les upp úr sinni bók, Til baka.
Bókmenntir
Stund milli stríða á
upplestri í kvöld
Auður Ólafsdóttir
BROTHÆTT leðja er heitið á
samsýningu nemenda á fyrsta
og öðru ári í mótun í Mynd-
listaskólanum í Reykjavík sem
verður opnuð í kjallara Iðu-
hússins við Lækjargötu á
morgun, föstudag, kl. 17. Leir
og tengd efni er tveggja ára
fullt nám á háskólastigi í ker-
amík við Myndlistaskólann í
Reykjavík. Verkefni fyrsta árs
var að rannsaka og skoða upp-
runa leirsins og leirkersins. Viðfangsefni annars
árs á haustönn var líkaminn í sinni fjölbreyttustu
mynd. Sýningin verður opin frá kl. 13 til 18 um
helgina, og svo á sama tíma frá og með 11. til og
með 14. desember.
Myndlist
Brothætt leðja í
Iðukjallaranum
Leir í mótun
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„MARKMIÐIÐ er að skiptast á
þekkingu, og að leiða saman ólíka
hópa sem koma að þessari stafrænu
miðlun: safnafólk, tæknifólk, hönn-
uði og hugbúnaðarfyrirtæki. Til að
setja saman sýningu með stafrænni
miðlun þarf allt þetta fólk að vinna
saman.“ Margrét Guðmundsdóttir
verkefnisstjóri Hugvísindastofnunar
er að tala um NODEM-ráðstefnuna
um stafræna miðlun sem var sett í
Þjóðminjasafninu í gærkvöldi. Hún
er verkefnisstjóri ráðstefnunnar,
þeirrar fjórðu sem haldin er, en NO-
DEM stendur fyrir Nordic Digital
Excellence in Museums, eða fram-
úrskarandi notkun á stafrænum
miðlum í safnastarfi. Um sjötíu er-
lendir gestir eru komnir á ráðstefn-
una, sem Þjóðminjasafnið, Minja-
safn Reykjavíkur, FÍSOS, Gagarín,
Hugvísindastofnun og menningar-
miðlun innan HÍ sameinuðust um.
Ráðstefnan er haldin í Öskju og er
þema hennar upplifanir í náttúru og
menningararfi. Innan þemans rúm-
ast fjölbreytilegir fyrirlestrar og
kynningar, frá safnafólki, fræði-
mönnum og hönnuðum. Helstu fyr-
irlesarar eru Joachim Sauter, pró-
fessor í nýmiðlun og hönnun í Berlín,
sýningarhönnuðurinn Kevin Wal-
ker, Margrét Hallgrímsdóttir Þjóð-
minjavörður og Torfi Frans Ólafs-
son framleiðandi hjá CCP.
Íslensk verkefni verðlaunuð
Á síðustu árum hafa komið fram
nýjar lausnir við framsetningu
menningarverðmæta og hafa íslensk
fyrirtæki og söfn þótt standa vel á
því sviði. Íslensk verkefni hafa verið
verðlaunuð á fyrri ráðstefnum.
„Gestirnir hafa mikinn áhuga á að
kynnast hér tengslum náttúru og
menningararfs,“ segir Margrét.
Guðný Káradóttir, fram-
kvæmdastjóri Gagarín ehf, sat í und-
irbúningshópi ráðstefnunnar. Hún
segir að þau hjá Gagarín hafi verið í
þessari hringiðu síðustu árin, en árið
2001 ákváðu þau að einbeita sér að
miðlun á menningararfinum.
„Við höfum unnið að ýmsum sýn-
ingum og erum sérhæfðust hér á
landi í þessu fagi,“ segir hún. Hún
segir að þau hjá Gagarín hafi verið
heppin með þau verkefni sem þau
hafa glímt við.
„Nýjasta verkefnið er fyrir Orku-
veitu Reykjavíkur, á Hellisheiði.
Orkuveitan hefur látið vinna margs-
konar fræðsluefni, um það hvernig
þeir vinna með orkuna og um Hellis-
heiði; sögur, náttúruna og útivist.
Þetta er viðamesta verkefni sem við
höfum unnið við að undarförnu.
Þá fékk sýningin Reykjavík 871
verðlaun á síðustu ráðstefnu, en við
unnum að henni með þýsku fyr-
irtæki,“ segir Guðný .
Unnið með menningararfinn
Hún segir fyrirtækinu mikilvægt
að taka þátt í ráðstefnu sem þessari
og kynna verk sín erlendis.
„Síðan við vöktum fyrst athygli
erlendis höfum við tekið á móti fólki
sem hefur komið hingað til að skoða
söfnin, Þjóðminjasafnssýninguna,
sem við unnum að, og Reykjavík 871,
til að skoða hvaða tækni við nýtum.“
Guðný segir fjármögnun á marg-
miðlunarsýningum vera vandamál
og standa þeim fyrir þrifum.
„Við höfum unnið að undirbúningi
margra verkefna sem hafa enn ekki
orðið að veruleika. Nú ætla stjórn-
völd að stuðla að mannaflsfrekum
verkefnum; þau þurfa ekki bara að
snúast um að grafa skurði og byggja
brýr, það þarf líka að fara í mann-
aflsfrek verkefni í hinum stafræna
heimi. Það á eftir að gera svo margt
með menningararfinn.“
Margmiðlun í safnastarfi
Um 70 erlendir gestir á NODEM-ráðstefnunni, um stafræna miðlun í söfnum
Kynna sér tengsl náttúru og menningararfs Gríðarlegir möguleikar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Möguleikar Margmiðlun getur opnað nýja heima, segja Guðný Káradóttir
og Margrét Guðmundsdóttir. Þær voru við uppsetningu sýningar í Öskju.
SÝNING á nýlegum málverkum og skúlptúrum í
eigu Gerðarsafns í Kópavogi var opnuð í safninu á
laugardaginn var. Einnig var þá tekið til sýningar
Lífshlaup Jóhannesar Kjarvals, úr safni Þorvaldar
Guðmundssonar. Eru það veggmyndirnar stóru úr
vinnustofu listamannsins í Austurstræti, þar sem
birtast mörg þau minni sem hann vann með allan
sinn feril.
Á neðri hæð safnsins eru sýndar valdar vatns-
litamyndir úr eigu Gerðarsafns og úr safni Þorvald-
ar Guðmundssonar, m.a. eftir Snorra Arinbjarnar,
Ásgrím Jónsson, Svavar Guðnason og Barböru
Árnason.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sápuverk Titty, Wink og Eyfull ásamt Ajax og Mr. Propper.
Verk eftir Valgerði Guðlaugsdóttur frá 2004. Blönduð tækni.
Ný aðföng í Gerðarsafni
Smíðaskúlptúr Ónefnt verk eftir
Katrínu Sigurðardóttur frá árunum
2004-2005. Úr krossviði og linditré.
Líkneski Eftir Gabríelu Friðriks-
dóttur frá 2002. Tvö af fjórum, úr
gifsi, sagi, lími og tauefni.
Nýjustu
verkin
Á sama tíma og NODEM-
ráðstefnan, um stafræna miðlun í
safnastarfi, er haldin í Öskju, nátt-
úrufræðihúsi Háskóla Íslands, eru
þar kynnt ýmis áhugaverð verkefni
í opnu rými. Sum sýna lausnir fyrir
heilar sýningar en önnur einstakar
lausnir eða tæknilegar útfærslur.
Þátttakendur eru rannsókn-
arhópar, sýnendur og söfn, hönn-
uðir og hugbúnaðarfyrirtæki.
„Íslendingar eru framarlega á
þessu sviði,“ segir Margrét Guð-
mundsdóttir. „Með stafrænni
miðlun er upplifunin víkkuð út hjá
gestum. Hægt er að setja hluti í
nýtt samhengi. Á sýningunni er
gamalt málverk frá Stokkhólmi
sem fólk getur farið inn í og kynnt
sér myndheiminn. Annað verkefni
gengur út á að leyfa fólki að sigla
fornu skipi í sýndarveruleika.“
Upplifunin víkkuð út hjá gestum
Nú geturðu tekið til
við að særa restina
af djöflunum í burtu...60
»