Morgunblaðið - 30.12.2008, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2008
Morgunblaðið/ÞÖK
Þorskastríð? Aukinn þorskveiðikvóti myndi án efa gleðja margan sjómanninn en ólíkar hugmyndir um úthlutun hans geta hins vegar fengið blóðið til að þjóta.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
SKIPTAR skoðanir eru um hvernig
eigi að haga málum ef ákvörðun
verður tekin um að auka þorskveiðar
að nýju. Karl V. Matthíasson, vara-
formaður sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefndar Alþingis, sagði í viðtali
við Morgunblaðið nýlega að yrðu
auknar veiðar heimilaðar ætti að
bjóða kvótann upp á markaði. Innan
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er
talið skýrt að viðbótarkvóti eigi að
ganga til þeirra sem misstu kvóta
við skerðinguna.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor-
maður Samfylkingarinnar, segir að
Karl hafi væntanlega verið að tjá
sína persónulegu skoðun. Ekki eigi
að útiloka þessa leið en Samfylking
og Sjálfstæðisflokkur þyrftu þá að
ná sátt um hana. „Það hefur alltaf
verið rauði þráður Samfylking-
arinnar að fiskistofninn sé í eigu
þjóðarinnar og við höfum lengi
gagnrýnt að kerfið sé of lokað og
jafnræðis ekki gætt,“ segir Ágúst
Ólafur og bætir við að samkomulag
hafi náðst um að gera úttekt á
reynslunni af aflamarkskerfinu og
vonast hann til þess að sú vinna fari
að hefjast.
Væru svik við greinina
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og formaður sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarnefndar,
segir alltaf hafa legið fyrir að yrði
þorskkvóti aukinn gengi hann til
þeirra sem skorið var niður hjá, þ.e.
útgerðanna. Í sama streng tekur
Valgerður Sverrisdóttir, fulltrúi
Framsóknar í nefndinni. „Það yrðu
alger svik við greinina að setja við-
bótarkvóta á markað,“ segir hún og
bætir við að samdrátturinn hafi bitn-
að á útgerðinni og þess vegna væri
undarlegt að láta aðra reglu gilda við
aukningu „Þetta er ekki ábyrg af-
staða og ætli Samfylkingin að fylgja
þessari línu held ég að mikið muni
ganga á við ríkisstjórnarborðið, seg-
ir Valgerður.
Innan hinna stjórnarand-
stöðuflokkanna tveggja kveður við
annan tón. Atli Gíslason, fulltrúi VG
í sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefnd, segir flokkinn ekki hafa
tekið afstöðu til þess að setja kvót-
ann á markað en að sú hugmynd sé
skoðunarverð. Ef auka eigi þorsk-
kvóta þurfi að taka tillit til atvinnu-
ástandsins og stöðu byggðanna.
Auka eigi landsbyggðakvótann en
VG hefur einnig talað fyrir stór-
auknum krókaveiðum. Atli segir
stóra málið núna vera að allur afli
verði unninn hér á landi, meðan at-
vinnuleysi er sem mest. „Í fyrra fóru
56 þúsund tonn til Bretlands og það
er stærra mál að halda í hann en að
auka veiðarnar um 30 þúsund tonn,“
segir Atli.
Skref í rétta átt
Grétar Mar Jónsson, fulltrúi
Frjálslynda flokksins í nefndinni,
segir hugmyndina um að bjóða við-
bótarkvóta út vera skref í rétta átt
en að Frjálslyndi flokkurinn vilji
ganga lengra. „Við viljum innkalla
allar veiðiheimildir á Íslandsmiðum,
búa til auðslindasjóð og leigja heim-
ildirnar út. Ríkið fær þá leiguna til
sín,“ segir Grétar Mar og leggur
áherslu á að ekki þyrfti að greitt
væri eftir á fyrir heimildirnar þann-
ig að það væru ekki bara þeir „sem
eiga greiðan aðgang að bankakerf-
inu“ sem gætu nýtt auðlindina.
Þorskurinn veldur deilum
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn telja skýrt að viðbótarkvóti færi til útgerðanna
Átök í ríkisstjórn ef Samfylkingin vill aðra leið, segir Valgerður Sverrisdóttir
Í HNOTSKURN
» Hámarkskvóti er gefinnút fyrir hvert fiskveiðiár
en það hefst 1. september.
» Árið 2007 var farið aðráðgjöf Hafró og þorsk-
veiðikvótinn minnkaður úr
193 þúsund tonnum í 130 þús-
und tonn. 1998-2000 var kvót-
inn hins vegar um 250 þúsund
tonn.
» Nú þegar illa árar er talaðum að auka við veiðarnar
að nýju en deilt er um með
hvaða hætti það skuli gert.
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Atli
Gíslason
Karl V.
Matthíasson
Grétar Mar
Jónsson
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Valgerður
Sverrisdóttir
HELSTA stefnumið Íslendinga á for-
mennskutímanum í Norrænu ráð-
herranefndinni á árinu 2009 er að efla
samstarf um verndun Norður-
Atlantshafsins og um málefni Norð-
urskautsins. Liður í því er að hrinda
úr vör verkefni um gerð vákorts fyrir
Norður-Atlantshafið.
Vákortið á að vera grundvöllur fyr-
ir samræmdar aðgerðir, komi til um-
hverfisslyss. Upplýsingum um nátt-
úrufar og viðkvæm vistkerfi, sem
gætu verið í hættu, verður safnað í
gagnagrunn með hafkortum, áhættu-
mati og viðbragðsáætlunum á haf-
svæðunum milli Noregs, Færeyja, og
Íslands og Grænlands. Með vákort-
inu er verið að bregðast við auknum
umsvifum og siglingum í norður-
höfum, meðal annars vegna aukinnar
ásóknar í auðlindir á heimskauta-
svæðum. Gert er ráð fyrir að vákortið
verði tilbúið eftir tvö ár.
Íslendingar taka við formennsku í
ráðherranefndinni um áramótin.
Rauði þráðurinn í formennskuáætl-
uninni er að stórefla samstarf um
rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á
sviði loftslags-, orku- og umhverf-
ismála. Stefnt er að því að styrkja
samstarf og verkaskiptingu Norð-
urskautsráðsins og ráðherranefnd-
arinnar. Leitað verður eftir samstarfi
við Kanada, Skotland og Írland.
helgi@mbl.is
Vákort
fyrir hafið
Samstarf um verndun
Norður-Atlantshafsins
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18
Opið
þorláksmessu
11-19.
Starfsfólk
Feminin
Fashion
óskar
viðskiptavinum
sínum
gleðilegra jóla
árs og friðar.
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið í dag kl. 10-18, opið
gamlársdag í Bæjarlind kl. 10-12.
Opnum föstud. 2/1 kl. 12:00
Við óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs nýs árs, með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Ú T R Á S A R V Í K I N G A R N I R
Kveðjum árið með nýju
Víkingatertunni!
Þú færð
límmiðana
hjá okkur
Íslensk
framleiðsla!
Á
fr
am
Ís
la
nd
-V
el
ju
m
ís
le
ns
kt
!
Hafðu samband
við sölumann
í 567 88 88
Plast, miðar og tæki -www.pmt.is
Reykjavík
Sími 588 9090 • Síðumúla 21
108 Reykjavík
www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Skrifstofuhúsnæði óskast til leigu
Traustur aðili óskar að taka á leigu 250 fm
skrifstofuhæð. Æskileg staðsetning er Miðborgin,
Múlar eða Borgartún. Til greina kemur að leigja
skrifstofupláss með öllum húsgögnum.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
löggiltur fasteignasali í síma 861-8514