Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1966, Side 31
29
fjölda utanaðkomandi áhrifa, sem virðast geta orsakað CL/CP.
Hér verður stuttlega minnzt á þessi atriði: 1. Næringarskortur
móðurinnar um meðgöngutímann. 2. Hormónatruflanir. 3.
Mislingar. 4. Röntgengeislun.
Af augljósum ástæðum verða allar athuganir á utanaðkom-
andi áhrifum, sem orsakað geta CL/CP, að fara fram á til-
raunadýrum. Hale12 var manna fyrstur til þess að benda á
næringarskort móðurinnar um meðgöngutímann sem orsök
CL/CP. Hann veitti því eftirtekt, að gyltur, sem nærðust á
lóðri, sem snautt var af fjörefninu A, eignuðust afkvæmi með
CL/CP 0g aðra líkamsgalla. Warkany og Nelson13) sýndu
fram á, að skortur á riboflavin (vítamín B2) í fæðu móður-
innar gat orsakað ýmsa meðfædda líkamsgalla í afkvæminu.
f3ótt orsök meðfæddra líkamsgalla í tilraunadýrum sé ekki
nauðsynlega hin sama og í manninum, eru þessar tilraunir
niikils virði og geta efalaust varpað ljósi yfir hugsanlegar or-
sakir CL/CP í manninum. Nokkrir vísindamenn hafa tengt
þessar niðurstöður við reynslu sína i baráttunni við þetta
vandamál. Douglas14) er þeirrar skoðunar, að mikil uppköst
1 byrjun meðgöngutímans geti orsakað skort á nauðsynlegum
frumefnum, sem leitt geti til afmyndunar í fóstrinu. Hann
mælir eindregið með næringaruppbótum fyrir ófrískar mæð-
UL sem áður hafa eignast barn með líkamsgalla.
Baxter og Frazer15) voru manna fyrstir til þess að benda
a’ ab afkvæmi músa, sem var gefið cortisone um meðgöngu-
Urnann, fæddust með CL/CP. Greinar hafa einnig birzt, þar
Sem sagt er frá „framleiðslu“ CL/PL með inngjöf af hydro-
c°rtisonelc) og ACTH.17)
Síðan Gregg18) benti á, að margar mæður, sem fengið
böfðu mislinga (Rubella) snemma á meðgöngutímanum,
fa'ddu vansköpuð börn, hefur „teratogenecity“ þessa sjúkdóms
verið gaumgæfilega athugað. Það er nú almennt viðurkennt,
að mislingar í móðurinni geta orsakað vanskapnað á hjarta,
augum og heila. Mislingar virðast þó ekki vera algeng orsök
f-'L/CP; í vísindabókmenntum getur aðeins um ellefu tilfelli,
Sern fengd hafa verið mislingum móðurinnar.