Árdís - 01.01.1936, Síða 16
14
söngvar og svo framvegis. Fyrir hvert lag sem minst er á er
“record”, sem á að spila eftir hverja lexíu. Þetta er gert til að
glæða hjá börnunum skilning og unun af þessari íþrótt, sem er
allra lista fegurst. Auðvitað er þetta yf'irlit aðeins partur af því
sem kent er í music, en þetta er indæll partur af því.
Eg vona að eg hafi ekki þreytt ykkur á þessum skýringum.
Mig langaði til að gefa ykkur nokkurn skilning um starf okkar
kennaranna. Auðvitað hefir ykkur verið kunnugt um þetta að
nokkru leyti. Þið heyrið ibörnin tala um það og sýnið áhuga fyrir
því; lesið sumt af því sem þau koma með heim, og ef til vill bætið
einhverju við frá ykkur sjálfum. En við heyrum alt of lfítið um
þá hlið málsins. Því ekki að koma á skólann og láta í ljósi hvað
af þessu ykkur þykir gott; hvað börnin eða barnið ykkar
skildi ekki rétt vel, og hvað það hefir mestan áhuga fyrir? Það
mundi gleðja hvern kennara stóriega, að finna ylhug og samhygð
frá foreldrunum — kenslan yrði léttari, skilningurinn á börnunum
betri, alt starfið yrði ánægjulegra.
Já, foreldrarnir ættu að reyna af fremsta megni að skilja
hvað börnin þeirra hafast að á skólunum; eins ættu kennarar að
kynna sér heimilis ástæður barnanna.
Og það eru ekki einungis skólarnir og hvað á þeim gerist, sem
foreldrar eiga að láta sér koma við, heldur líka hvaða kennarar
eru valdir og hvað þeim er borgað. Þess vegna er það skylda
allra foreldra að sækja skólafundi, því þar eru rædd mál sem
varða miklu fyrir börnin þeirra. Á þeim eru kosnir menn í nefnd,
sem er gefið vald til að ráða kennara, setja kaupið, og ýmisleg
önnur mikils varðandi mál. Liggur það ekki í augum uppi að
þessir menn verði, ekki einungis að vera vakandi fyrir velferð
skólans, heldur einnig hafa skarpan skilning og hæfiieika til að
rækja það starf vel? Því eru ekki konur oftar kosnar í skóia-
nefnd? Það eru mæðurnar sem bera mesta umhyggju fyrir börn-
unum á uppeldisárum þeirra. Þær skilja þau betur, og sýnast,
yfirleitt bera velferð þeirra meira fyrir brjósti. Og því ættu þá
ekki þessir hæfileikar þeirra að vera notaðir í þarfir1 skólans? —
Fyrir nú utan það, að stúlkur komast oft iengra áfram á skóla
en drengir, nú á dögum — það er að segja á landskólum og í
þorpum eins og þessu — svo að konur, af hinni yngri kynslóð að
minsta kosti, hafa oft notið betri mentunar en menn þeirra. Og
hvenær sem konur hafa tekið þátt í opiniberum málum, hafa þær
verið sinni stétt til sóm'a, svo því í ósköpunum reyna þær ekki að
vinna betur á þessum sviðum? Eg held þið getið látið karlana
sitja heima einstaka kvöld meðan þið eruð á fundum. Það er gott
fyrir þá að venja sig við. Það færist, hvort sem er, óðum nær sá
tími þegar konur verða forsprakkar í öllum opinberum máium!
Það er margt enn, sem mér finst að eg hefði þurft að minn-
ast á, til dæmis um stofnun ungmennafélaga til þess að draga