Árdís - 01.01.1936, Page 19

Árdís - 01.01.1936, Page 19
17 Eiga konur að prédika? Eftir Nellie McClung. Þýtt af Finni Johnson Það var einu sinni ekki langt frá, að fjölmennasta kirkjan í Canada leyfði konum að taka prestavígslu og prédika. Það hefði ver.ið stórt spor í þá átt, að veita konum fullkomið jafnrétti. Þetta var árið 1928. Það er hægt að muna árið 1928, þó flestum af okkur finnist reyndar óra langur tími síðan. Allir höfðu peninga og alt var í há'Uí verði. Allir ætluðu að verða rfkir á olíu og málmum, eða þá á hlutabréfum í einhverju gróðafyrirtækinu. Jafnvel drengirnir á lyftivélum og unglingsstúlkurnar innan við búðarborðin, voru farin að láta sig dreyma um mikinn auö. Það var erfitt að festa sig við nokkurt algengt verk. Þegar gróðavegirnir voru svona margir og auðfarnir. Ungir menn hættu við sitt, háskólanám til að v.inna hjá miðlurum. Prestarnir hættu við prestskapin og fóru aö mynda ný gróöafélög — ekki Nýja Jerúsalem. Kirkjufélögin fóru að hafa mikiar áhyggjur út af sínu trú- boösstarii, bæði heima fyrir og erlendis. Innan Sameinuðu kirkj- unnar í Canada höfðu verið bygðar kirkjur á fimtíu og fimm stööum sem engin prestur fékst til að þjóna, ekki einu sinni stúdentar. Það voru fimtíu og fimm prestaköll í Vestur-Canada, sem höfðu engan sunnudagsskóla, engan til að vinna meðal unga fólksins, engan til að skíra börnin og jarða þá sem dóu. Heima- trúboðinu bárust mörg bréf', sem voru eitthvað á þessa leiö. “Kirkj- an okkar er lokuð. Kóngulóin spinnur vef sinn um altarið og bilbilan á prédikunarstólnum er þakin þykku ryki. Getið þið ekki sent okkur einhvern? Okkur þætti vænt um þó það væri bara kvenmaður.” Pyrir 1928 liöfðu margar órólegar sálir, og eg má segja að eg var ein af þeim, mikið um það hugsað hvenær hin mi'lda Samein- aöa kirkja mundi gefa konum aðgang að prestsstöðunni. Kirkju- höfðingjarnir höfðoi ávalt, þegar þeir voru um það spurðir, svarað með mikilli varfærni: “Bíðið þið við þangað til einhver kona biður um pre.-tvígslu, og þá skulum við athuga málið og fara með það eins og ástæður standa til.” Og svo kom loksins að 'þessu á hinu viðburðaríka ári 1928 á kirkjuþingi sem haldið var í Winnipeg af hinni Sameinuöu kirkju í Canada. Nú var stundin komin. Ung kona bað um prestvígslu. Hún hafði lokið guðf'ræða námi nokkrum árurn áður við Saint Andrews í Saskatoon. Hún

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.