Árdís - 01.01.1936, Síða 30

Árdís - 01.01.1936, Síða 30
28 vel”, segir séra Lyman Aibbott frá Brooklyn, “mundu kirkjurnar ekki geta nnnið á sama hátt, þó það yrði umsvifameira?” Þiegar þessi maður (séra Abbott) haíði verið prestur í fimtán ár, var hann beðinn að gefa álit sitt' á starfi kristninnar. Hann ferðaðist víða og heimsótti þessar ofangreindu stofnanir og marg- ar fleiri, er unnu í sömu átt, en með mismunandi móti. Þegar hann var að enda við ferðalagið, var hann staddur í ibæ, þar sem voru níu mótmælanda kirkjur. í einni ræðu sinni sagði hann eitthvað á þ(fjsa leið: “Eg vildi mega koma til baka í þennan ibæ eftir tuttugu eöa þrjátíu ár og í'inna hér hin sömu samtök með kirkjunum og eg liefi fundið með öðrum félagsskap, sem ekki hefir verið kirkjum háður. Eg trúi að sá tiími komi, treysti þeim sem nú njóta þess- arar samvinnu og treysti æskunni. Til að útskýra Ibetur þessa hugmynd mína, ætla eg í anda að koma hingað eftir tuttugu ár, ætla að ganga inn í fallegustu kirkjuna hérna, hún er ibrúkuð algerlega fyrir guðsþjónustur — ekki sem Meþódista, Baptista eða Lútersk kirkja, heldur bara öem kirkja Krists. — Kl. tlíu árdegis ter bænabókin brúkuð og söfnuðurinn stór — kl. 11 tekur einhver til máls og prédikar — ekki til að sannfæra neinn flokk né einstakl- inga, fremur til að minna á orðin: “Verið gjörendur orðsins en ekki aöeins heyrendur.” Síðari hluta dags og að kvöldinu, eru aörir í prédikunarstólnum — og aðrir eða sömu áheyrendur og annað ræðuefni. Á milli guðsþjónustanna er kirkjan opin og þeir sem vilja tiibiðja guð í kyrð, koma og fara ef'tir vild. Önnur kirkjan, sú stærsta, yrði notuð fyrir fyrirlestra og ann- að þessháttar á virkum dögum og sunnudögum. Uppbyggilega fyrirlestra um landnám, vísindi, bókmentir eða því um líkt, allir sprotnir af háleitum hvötum. Þriðju kirkjunni yrði ibreytt í samkomuhús, fyrir góða sjón- leiki, hreyfimyndir, samkomur og jafnvel dans. Fjórða kirkjan yrði gerð að lestrarsal með bókasafni og kenslustofum, þar sem ýmsar námsgreinar, svo sem saumaskapur, matreiðsla o. fl. yrði kent. Við hlið þessarar kirkju yrði stór leikvöllur fyrir allskonar linattleiki, iþar væri einnig iborðsalur, þar mætti kaupa máltíðir með vægu verði.. Fimta kirkjan er orðin að hjúkrunarstofu, þar borða hjúkrun- arkonur og læknar. Störf'uðu og veittu hjálp sína, hefðu umsjón á “clinics” o. fl. Allar þessar fimm kirkjur hafa einn fáhirðii og allur kostnaðiur borgaður úr eimum sjóði. Þeir sem hlyntir eru einni hlið þessa starfs, en kæra sig ekki um aðrir hliðar þess, gæfu þó í sjóðinn sem viðheldur þeim öllum.” Sumir munu nú liugsa, að þetta fyrirkomulag sé ekki að

x

Árdís

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.