Árdís - 01.01.1936, Síða 31
29
prédika Guðs orð. — Jú það er að gera Guðs vilja og útlbreiða
kenningar Jesú í orðum og verkum. 'T. d. sönglist, bókmentir,
dráttlist, félagslíf, lækning meina, andlegra og líkamlegra — er
lífið í fylsta skilningi og við erum öll að reyna að læra að lifa. Og
þó þetta virðist erfitt til framkvæmdar er takmarkið þó háleitt.
Um allan hieim er meira af svona kristilegu starfi en nokkru
sinni ihefir verið. í smálbæjum er erfitt að koma því við, þar vant-
ar leiðsögn. En ef svo .skyldi fara, aö eitthvað þessu líkt yrði reynt
í þinni bygð eða bæ, þá veittu því aðstoð þó þér finnist árangurinn
smár. Passaðu umfram alt að níða það ekki niður í áheyrn íbarna
þinna, ef það eru fyritæki isem benda -í rétta átt.
í London á Englandi ier kirkja sem nefnd er “Clubland
Church”, hin fyrsta af því tagi. Árið 19.22 byrjaði ungur maður,
Butterworth að nafni, félagsskap með sex drengjum, komu þeir
saman á heimili hans. Fljótt bættust fleiri við, svo fundir voru
haldnir 1' kjallara á kirkju. Ekki leið á löngu þa,r til þeir þurftu
ennþá að stækka um sig, og von bráðar veittist þeim almennings
álit og styrkur, svo nú er stór bygging í þeirra urnsjá. í kjallaran-
um er fundarsaiur en uppi er kirkja. Auk þess eru margar stofur
með ýmsum tækjum, þar sem drengir og stúlkur koma saman að
iesa og læra á virkum dögum og kvöldum og á sunnudögum. Á
hverju kvöidi koma allir saman í kirkjunni um kl. hálf eilefu, til
að taka þátt í sálmasöng og bænagerð. Á sunnudögum er guðs-
þjónustum stjórnað af drengjum og stúlkum, þó aðal prédikunin sé
flutt af presti.
Og nú til að koma nær, vil eg minnast á félagsskap í Win-
nipeg, sem nefnist ‘‘Good Nieighbors” og var stofnaður fyrir nokkr-
um árum. Stór bygging þeim tilheyrandi, á McDermot Ave., var
fullgerð 11. nóv. 1933. Nú er sú bygging ekki nógu stór fyrir allar
bær kröfur um hjálp og tilsögn, sem þar er veitt atvinnulausu
fólki af ýmsum þjóðflokkum, og tilheyrandi ýmsum kirkjudeildum.
Konan sem kom þessu í gang, er ung kona, Mrs. Burchard. Henni
óanaði að sjá þreytu og vonleysis svipinn á mönnunum, sem löbb-
uðu um strætin dag eftir dag í atvinnuleit. Svo eitt sunnudags-
kvöld 1932, bauð hún öllum atvinnulausum að koma kl. hálf átta, í
stofnr Rauða Krossins á Kemnedy St. Ekki bjóst hún við. að
margir mundu sinna þessu og var því ekki viðbúin þeim fjölda.
sem streymdi þangað. Þar voru sungnir söngvar og kaffi veitt
öllum sem komu og allir siem vildu gátu hvílt sig inni í hlýindun-
um, því úti var grimdar frost.
N.æsta sunnudag voru stofurnar opnaðar kl. 3 og spil lágu á
borðum og blöð og bækur. Mennirnir komu hver á eftir öðrum
ogíhópum. Stundum varð samtalið ruddalegt, stundum kendi þav
vorileysis og gremju. iSumir tóku upp spilin, aðrir lásu og sumir
sátu og þögðu; alt var betra en að vera úti. Aftur var veitt kaffi og
brauð. Altaf var Mrs. Burchard við hendina og fleiri sem fylgdu