Árdís - 01.01.1936, Blaðsíða 36

Árdís - 01.01.1936, Blaðsíða 36
34 í Matt. guðspjalli 28. kap., 19—20 v. “Farið og kennið öllum þjóð- um og skírið þær í nafni föður, sonar og heilags anda, og bjóðið þeim að gæta alls þess er eg hefi boðið yður; og sjá eg er með yður alla daga, alt til veraldarinnr enda”. Koma þessi orð frá frelsaranum sjálfum og vissulega getur engin sem hefir tekið hann sem frelsara sinn, og þess vegna orðið guðs barn, vanrækt þessa skipun eða skotið henni á annara herðar. Jesús talar hér til lærisveina sinna, en hverjir eru þeir? í Jóhannesar guðspjalli í 8. kap. og 31. versi standa þessi orð: “Jesús sagði við þá Gyðinga sem á hann höfðu trúað: ‘Bf að þér haldið stöðugt við mitt orð, þá eruð þér sannarlega mínir lærisveinar’.” Hver sá sem elskar drottinn sinn hlýtur að hafa mikinn áhuga fyrir orðum hans. Ef að vér virkilega trúum að vér höfum í biblíunni sannleikan um eilíf efni, og ef versið: “Enginn kemur til Föðursins nema fyrir mig”, hefir nokkra þýðingu fyrir oss, þá ættum vér ekki síður en hinir fyrstu fylgjendur frelsarans að veira fúsir til að útbreiða þennan gleðiboðskap. Nú skulum vér taka dálitla stund til að líta yfir trúboðssög- una. Að mínu áliti er það eftirtektaverð saga. Vér höfum séð hverjir voru hinir allra fyrstu trúboðar. Þér munið eftir sögunni •um Kornelíus — útlendinginn sem, ásamt öllu húsi sínu, fann Guð. Engill hafði birst honum og sagt honum að senda menn til Siimonar Péturs. En hvað um Pétur? Hann hafði verið lærisveinn Jesús í þrjú ár, og var einn af þeim sem fyltust heilögum anda á Hvítasunnudag. Það var Pétur sem hóf upp raust sína og talaði til fjöldans. Við þann fjölda sem áður hafði hlustað á hann bætt- ust nærri þrjár þúsundir manna á þeim degi. En Pétur var Gyðingur og þurfti þessvegna að hreinsa margar kreddur úr huga sínum. Drottinn kendi honum nú' í vitrun, sann- leika sem oss ætti að vera mjög kær. Þér munið eftir að öll dýrin sem voru í líndúknum voru óhrein og vanhelg í augum Gyð- inga. Verðum vér þar af leiðandi ekki hissa á orðum Péturs þegar honum er boðinn matur: “Nei, Drottinn, engan vegin, þvlí aldrei hefi eg étið neitt vanheilagt eða óhreint.” En svarið var: “Það sem Guð hefir gert hreint, skalt þú ekki meta vanheilagt.” Þetta var hinn mikli nýi sannleikur sem Pétur þurfti að læra. Þegar nú menn Kornelíusar komu og sögðu erindi sitt, leggur Pétur strax á stað með þeim að heimsækja heimili sem engin ann- ar Gyðingur mundi hafa komið inn í. Þegar Kornelíus sér Pétur fellur hann á kné fyrir honum, en Pétur segir: “Stattu upp, eg er einnig maður.” Og er hann hafði heyrt mál Kornelíusar, mælti hann: “Sann • arlega er eg kominn að raun um, að Guð fer ekki í manngreinar- álit.” Var Kornelíus og alt hans heimilisfólk skírt þennan dag. Var þetta hið fyrsta trúboð til heiðingja. Og Pétur hélt áfram að útbreiða boðskap Krists; bréf hans voru skrifuð til hinna útvöldo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Árdís

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.