Árdís - 01.01.1936, Page 46

Árdís - 01.01.1936, Page 46
44 sambandi við kennarana og lagt til bækur og annað, sem til kenslunnar hefir þurft. Hefir nefnd sú úr félagi voru, sem þetta mikla velferðamál hefir haft með höndum, unnið að því með mikl- um dugnaði og hagsýni og samvizkusemi, enda hefir árangurinn orðið ágætur. Þá má ekki gleyma því, að skólakennararnir sem hér eiga hlut að máli, eru hér að vinna mikið verk, algerlega auk smna skyldustarfa, og án þess að taka nokkra borgun fyrir það. Bæði þeim sem tóku að sér að fara út um sveitir til að kenna börnum og unglingum kristindóm og sömuleiðis skólakennurum sem haldið hafa uppi kristindómsfræðslu, viljum vér nú votta ein- lægt þakklæti vort og virðingu fyrir þeirra góða og óeigingjarna verk. i|i:iL,^_ . i , í Á síðasta þingi var um það talað, að heppilegt mundi vera, að Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg, kysi nefnd kvenna, sem iiiefði þannig lagað samband við hin kvenfélögin, að þau hvert um sig létu þessa nefnd vita ef eitthvert fólk úr þeim Ibygðum flytti til Winnipeg til lengri dvalar. Var hugsunin sú, að þessi neind í Winnipeg. kæmist í kynni við það fólk, svo hægt væri að liðsinna því fólki á einhvern hátt, ef þörf væri á og leiðbeina. Þótti Mklegt að á þann hátt mætti vinna þarft og gott verk. Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar kaus svo tvær konur ,í nefnd í þetta mál. Skrifuðu þær öllum félögunum í Bandalaginu og óskuðu sam- vinnu þeirra, þannig, að þær létu sig vita um það fólk, sem þau kynnu að A'jta um, að væru að flytja til borgarinnar. Fékk nefndin að vita um allmargar. Hélt svo Kvenfélag Fyrsta lúterska safn- aðar skemtikveld og bauð þangað öllum þeim konum og stúlkum sem vitað var um að væru fyrir tiltölulega skömmu komnar til borgarinnar. Voru gestirnir um sjötíu og má fullyrða að þetta hafi verið verulega skemtilegt kveld og ánægjulegt. Er vonandi að þau kynni, sem þar urðu, leiði til meiri kynna. Væri mjög æskilegt að þetta nýmæli héldi áfram og hvert félag út um bygð- irnar gerði sér ant um það að láta nefndina í Winnipeg vita um það fólk, sem er að flytja til borgarinnar til dvalar. Það kann mörgum að sýnast, að þetta hafi ekki mikið að þýða, en það er áreiðanlega misskilningur. Það getur einmitt haft afarmikla þýðingu og má ekki leggjast niður. Ársritið Árdís er nú að koma út í þriðja sinn. Hafa þær Mrs. Ingibjörg J. ólafsson og Mrs. Ingiriíður Jónsson annast ritstjórn- ina. Er ritið að öllu leyti þannig úr garöi gert, að efni og frá- gangi, eins og á undanförnum árum, að naumast getur lijá því farið, að það haldi sínum vinsældum og þær fari vaxandi. Félagi voru er það nauðsyn að halda úti þessu riti og gera það þannig úr garði, að það sé uppbyggilegt og læsilegt. Án þess rits, eigum vér þess lítinn kost, að láta fólk vita nokkuð verulega um félag vort. En það er hverju félagi nauðsyn, sem eitthvað er að gera fyrir almenning, að fólk fái að vita um það og hvað það er að gera. Fjárhagslega hefir ritið fullkomlega Iborið sig hingað til og

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.