Árdís - 01.01.1936, Page 57
55
Fræðslustarf Bandalagsins
Starf nefndarinnar sem hefir haft með höndum kristindóms-
fræðslu í sveitum sem ekki eru aðnjótandi prestþjónustu, hefir
verið Mkt og undanfarin á.r. Þó varð sú 'breyting síðastliðið ár
(1935) að starfað var eingöngu með eldri börnum á fermingar
aldri. Ágætur kennari, Miss Lilja iGrUttormsson, tók að sér aö
uppfræða og búa börn undir fermingu að svo miklu leyti sem hún
gat á því tímabili sem henni var afskamtað. Hafði beiðni komið
fná Vogar og Oak View og afréði því nefndin að leggja fram aila
krafta í sumar í þessa átt.
Miss Guttormsson lagði af stað frá Winnipeg 20. júní og stóð
námsskeið hennar yfir frá 22. júní til 6. júlí. Tuttugu og fimm
börn nutu uppfræðslu hjá henni og voru flest síðar fermd af
forseta kirkjufélagsins sem þjónaði í því bygðarlagi fyrir hönd
kirkjufélagsins um tíma. Bftirfylgjandi börn voru fermd: Karl
Halldórsson, 15 ára; James Frímann, 17 ára; Margrét Halldórs-
son, 16 ára; Helgi Frímann, 13 ára; Anna 'Halldórsson, 13 ára;
Helen Steinthorson, 15 ára; Helga .Steinthorson, 14 ára; Konráð
Pétursson, 14 ára; Clarence Pétursson, 16 ára; Fríða Pétnrsson,
16 ára; Grace Sveistrup, 17 ára; Anna Magnússon, 15 ára; Pétur
Davidson, 14 ára; Jósep Kernested, 17 ára; Clifford Kernested, 15
ára; Ella Eiríksson, 12 ára; Margrét Eiríksson, 17 ára; Ernest
Eiríksson, 15 ára; Giísli Hallsson, 14 ára; Guðmundur Johnson,
14 ára. Nokkur börn sem námsskeiðið sóttu voru, fyrir ein-
hverjar ástæður, ekki fermd. í skýrslu Miss Guttormsson segir
hún: “'Sunmudagsskóli var vel sóttur þrátt fyrir rigningar og vond-
ar brautir. Sum börnin keyrðu um sjö mílur á hverjum degi, en
öðrum sem lengra áttu að, var komið fyrir. Yfírleitt sýndu þessi
börn áhuga fyrir lærdómnum, hugsuðu um að læra það sem þeim
var sett fyrir, og virtust hafa góðan skilning á því sem þau lásu.
Þau börn sem notið höfðu klukkutrma kenslu í hverri viku yfir
skólat£mann voru fróðari en hin, og veittist starfið því léttara ,þiar
sem tímin var svo stuttur.”
Þegar Miss Guttormsson fór, skildi hún eftir s.skóla lexíu
blöð og bækur sem nefndin hafði skaffað henni, hjá liinum ýmsu
skólakennurum sem starfað höfðu að kristindómskenslu einu sinni
í viku í sambadi við skólastarf sitt.
1 september skrifaði nefndin aftur kennurum hinna ýmsu
skóla í þeirri von að áframhald yrði á því starfi. Einnig vo,ru
lexíublöð og bækur sent til allra sem þurftu þess við. Jóla kveðjur
frá B. L. K. og myndabækur voru einnig sendar til allra barna sem
þátt hafa tekiö í s. skóla Bandalagsins. Einnig lítið Nýja Testa-
menti sent að gjöf til barnanna sem fermd voru. Nokkuð stærri