Árdís - 01.01.1936, Síða 59
57
Kallaðar heim
Þann þrítugasta maí 1935 lézt í Winnipeg ágætiskonan iSig-
ríður Thorarinson, ekkja Thorsteins heit. Thorarinssonar, hafði
hún verið heilsuveil um langt skeið. Hún var meðlimur kven-
félags Fyrsta lút. safnaðar í Winnipeg.
Sesselja Eggertsson, kona Ás'björns Eggertssonar lézt í Win-
nipeg 7. júlí 1935, fimtiíu og þriggja ára að aldri. Mrs. Eggertsson
var hin ágætasta móðir, starfaði með prýöi á sínu heimili, hin
síðari ár var hún starfandi meðlimur Kvenfélags Fyrsta lút. safn-
aðar í Winnipeg.
Guörún Jóhannsson, kona Gunnlaugs Jóhannsson kaupm. í
Winnipeg lézt 16. júlí 1935 í Winnipeg, sextíu og þriggja ára að
aldri. Var hún liin mesta ágætiskona og ötull meðlimur Kvenn-
félags Fyrsta Lúterska Safnaðar í Winnipeg.
Margrét Brynjólfsdóttir iSveinsson ekkja Gísla heit. Sveins-
sonar frá Gimli lézt á Almennaspítalanum í Winnipeg 10. október
1935. Um eitt skeið var hún meðlimur kvennfélagsins “Fram-
sókn” Gimli. Margrét sál. var merkiskona og ógleymanleg öllum
sem þektu hana.
Guðfinna (Bjamadóttir) Bjarnason, fædd 10. júní 1865. Kven-
félag Herðubreiðar safnaðar á Langruth varð fyrir þeirri sorg að
missa úr sínum hóp, félagssystur þeirra Guðfinnu Bjarnason, sem
dó snögglega 11. nóv. 1932.
Guöfinna sál. haföi verið miðlimur félagsins frá því að það
var fyrst stofnað 1916, er þá var líknarfélag, óháð trúanbrögðum,
en síðan breytt í safnaðar kvennfélag, og var forseti þess fyrir
tíma. Starfaði hún vel og dyggilega í báðum félögum og var með
þeim framkvæmdarmestu konum kvenfélagsins fram að því
síöasta. Hennar er mikið saknað. Blessuð sé minning hennar.
Helga (Jóhannnsdóttir) Erlendson, fædd 9. nóv. 1889. Helga
sál. var meðlimur kvenfélags Herðuibreiöar safnaðar frá fyrsta
stofnun þess 1916, þar til hún flutti ásamt eiginmanni og fjöl-
skyldu, alfarin í maí 1929 til Winnipeg og síðar til Cormorant,
þar sem hún lézt 9. feb. 1935. Var hennar mikið saknað. Hafði
hún verið forseti kvennfélagsins síðan því var breytt í safnaðar
kvennfélag 1924, þar til hún flutti frá Langruth. Var hún dýrmæt
félagssystir og bezti leiðtogi. igkildi hún eftir sig fimm börn og
eiginmann, Finnbogi Erlendsson sem lézt ári síðar, 3. feb. 1936.
Kvenfélegið minnist Helgu sál. með sárum söknuði.
Guð blessi minningu þessara félagssystra.