Árdís - 01.01.1949, Blaðsíða 24
22
ÁRDÍ S
Hvernig getur konan bezt styrkt
heimsfriðinn
Erindi efíir Mrs. Rannveigu K. G. Sigbjörnsson
(Framhald frá síðasta hefti Árdísar)
Heimilið er stórkostlegt ríki og því meir sem konan og maðurinn
geta lagt í það, að viðhalda þar sönnum friði og hamingju, því meir
styrkja þau friðinn útá við auk þess sem þau auka hamingju sína.
Foreldrar auka sína eigin hamingju með því að sýna börnum sínum
samúð og samhygð í því sem barninu finst vera vandamál. Eitt af
stóru spursmálunum gagnvart börnum, er þolinmæði foreldrisins.
Gefa þeim alla þá vel stemdu mentun, sem þau mögulega geta og
sem kraftar barnsins og eðli útheimtar. Nothæf mentun til munns
og handa, er lífsvopn vaxandi únglings. Um leið og barninu er inn-
rætt prýðileg framkoma í daglega lífinu, þá er nauðsyn að innræta
því samhygð með málleysingjunum ekki síður en mönnunum. Vekja
athygli þeirra á því að málið var gefið þeim til þess, meðal annars,
að tala máli þeirra, sem ekki geta talað. Bæði ábyrgð og yfirburðir
fram yfir málleysingjann, felast í málinu. Minnumst áva'lt þessara
orða: Lífið er dýrmæt gjöf Drottins og til þess ætlað að vér verjum
því Guði til dýrðar og mönnum til gagns og til þess að undirbúa
sjálfa oss undir æðra líf. Mig minnir að þessi grein væri 1 Helga
kverinu. Hún virðist vera nokkuð góð enn. Foreldrar geta ekkert
gert betra fyrir börn sín en að upplýsa þau í Guðs orði og dygðanna
vegi, á heimilinu og viðhalda kirkjunni- ákveðinni trúarjátningar
kirkju með Sakramentunum, sem Drottinn skildi oss eftir.
Börnin í dag, eru borgarar ríkisins á morgunn, og ef „Drottinn
byggir ekki húsið, þá erfiða smiðirnir til einkis.“ Þetta gildir um
höll og hreysi.
Stundum er það, að konan þarf að fara frá heimilinu að vinna
og það er oft að hún getur alls ekki fylt pláss sitt vel. Ef hún er sönn
móðir, þá má vel fara ef börnin tapa ekki við það; en krefji nauðsyn,
þá er ekki til neins að tala um það. En það er mikill skaði þegar svo
ber undir.
Enn er eitt atriði, sem hvert foreldri ætti að innræta barninu.
Það er djúpa virðingu fyrir borgara réttinum. Þegar ég lít yfir þau