Árdís - 01.01.1949, Page 88
86
ÁRD í S
ánægju af starfinu og notið mikils góðs af því hvað andlegan
þroska snertir, sérstaklega vegna þess, að ég hafði tækifæri til
þess að starfa með slíkum forseta sem Mrs. Ólafsson er. Hún er
í mínum augum fullkominn forseti, eins og hún er mikilhæf per-
sóna í alla staði. Ég er þakklát fyrir það tækifæri að hafa fengið
að starfa með henni. Ég þakka henni samvinnuna, leiðsögnina og
hlýju orðin, sem hún talaði til mín í skýrslu sinni. Einnig þakka ég
öllum öðrum nefndarkonum, sem hefir verið svo ánægjulegt að
starfa með, á þessum átta árum.
En þó að ég sé að gefa upp skrifara embættið, þá mun ég
samt fylgjast með málefnum Bandalags Lúterskra Kvenna og
starfa það sem ég get sem einstaklingsmeðlimur þess, því ég þekki
engan félagsskap með háleitari hugsjónir eða með meira varðandi
málefni á dagskrá.
Guð blessi Bandalagið og alt starf þess á ókomnum árum.
Hecla, 14. júní, 1949.
Lilja M. Guttormsson
☆ • ☆ ☆ ☆
Compliments oj . . .
H. R. Tergesen
DRUGGIST
GIMLI MANITOBA
Compliments oj . . .
Thorkelson Bros. Fisheráes Limited
(LAKESIDE TRADING COMPANY)
Phone 8
Gimli, Manitoba