Árdís - 01.01.1956, Qupperneq 32
30
ÁRDÍS
mikil hjálp í þá daga. Enn er líknarstarfsemi eitt aðaldagskrármál
félagsins, þó að nokkur breyting sá á fyrirkomulagi, er nú enginn
sérstakur sjúkrasjóður, en sjúkranefnd skipa fjórar konur, hafa
þær vald til að nota sjóð félagsins eftir þörfum. Árlega er lagt
meira og minna af mörkum í peningum til þeirra, sem hafa orðið
fyrir óhöppum og erfiðleikum. Blómsveigssjóður var stofnaður
1929 í minningu um Guðrúnu Önnu Reykdal. Er öllum gefið tæki-
færi að leggja í þann sjóð, jafnt utanfélagsfólki sem meðlimum, eða
félaginu sem heild, í minningu um látna ástvini og félagssystur.
Er þeim peningum aðallega varið til að gleðja sjúka, sorgmædda og
gamalmenni. Það er gert mestmegnis um jól og páska. Þá vinna
félagskonur að því að veita hjálp og huggun við fráfall ástvina.,
vinna að kaffiveitingum og öðru umstangi samfara jarðarförum,
þegar þess er þörf. Góðhugur og blessunarorð fólksins, sem nýtur
umönnunar þessara kvenna hvílir yfir félagsskapnum.
Eins og segir í fyrstu lagagrein ,er það markmið þessa félags
að styrkja söfnuðinn. Með einlægni og brennandi áhuga hefur verið
starfað í þágu safnaðar og kirkju. Undir eins í byrjun lagði félagið
fram nokkra peningaupphæð til viðgerðar félagshúsi bygðarinnar,
sem þá var eina kirkjan.
Árið 1907 var stofnaður Kirkjubyggingarsjóður. 3 maí 1910
afhenti félagið safnaðarnefnd $200.00. mátti það heita stór upphæð
í þá daga. Árlega eru lagðir fram ekki minna en $100.00 til safnaðar
og oft stærri upphæðir. 1 júní 1950 lagði félagið $1000.00 í byggingar-
sjóð safnaðarins. Komu þeir peningar í góðar þarfir, þegar byggt
var við kirkjuna.
Má svo heita að Kvenfélagið hafi klætt kirkjuna að innan,
gefið bekki, stóla, hljóðfæri, ljós, altaristæki, gólfdúka og margt
fleira til þæginda og prýði. Dýrmætir munir hafa verið gefnir
sem minningargjafir. Set ég hér nöfn þeirra, sem félagið hefur
heiðrað þannig: Sólrún Björnsson, altarisklæði; Ása og Metúsalem
Jónsson Kertastjakar; Tryggvi Ingaldson, Klukku; Vigdís Evangel-
ine Ólafsson, skírnarfont, og Finnbogi Finnbogason offur-diska.
Einnig hafa verið lagðir peningar í Blómsveigssjóð félagsins í
minningu um margar aðrar félagssystur og aðra vini. í Kirkju-
arðssjóð í minningu um Magnús Sigurdson frá Hofi. Til Sunrise
Lutheran Camp í blómsveigssjóð íslenzkra landnema í minningu
um látnar félagssystur $100.00, og í minningu um íslenzku drengina
okkar úr þessari byggð, sem létu líf sitt í heimsstyrjöldunum $75.00.