Árdís - 01.01.1956, Page 34

Árdís - 01.01.1956, Page 34
32 ÁRDÍS Mrs. Alma Bjarnason var líka forseti þessa félags. Jafnvel þótt mörgu væri að sinna heima fyrir starfaði Alma með sinni óþreyt- andi elju og dugnaði í þágu félagsins og Sunnudagaskólans. Við minnumst líka fögru söngraddarinnar hennar og hversu oft hún hreyf okkur með einsöng og sem meðlimur kirkjusöngflokksins. Mrs. Vigdís Jack hefur verið meðlimur félagsins síðan þau hjónin komu frá íslandi. Hún hefur starfað með okkur eftir mætti, þó að hún hafi oft verið lasin og haft þung heimilisstörf. Við þökkum frú Vigdísi samstarfið. Við vonum, að hún muni eftir okkur með hlýhug, þegar hún er komin heim til ættjarðar sinnar. Ég veit að við munum lengi eftir litlu drengjunum, hvað það var gaman og hressandi að heyra þá tala íslenzku. Við viljum þakka þeim prestskonum, sem hér hafa starfað með virðingu og kærleika. Einnig vil ég minnast allra félagssystra, sem hafa starfað með okkur, en síðan flutt burt úr okkar byggð. Margar þeirra voru gæddar sérstökum hæfileikum, sem þær notuðu í ríkum mæli í þarfir félagsins. Við viljum votta þeim okkar hjartans þakkir. Enn er mikið verkefni framundan. Verksviðið færist einatt út á við, sjóndeildarhringurinn víkkar. Enn er brýn þörf á að vinna af kappi og elju. En baráttan eykur orku mannsins. Mestu og beztu verkin eru oftast unnin af þeim sem hafa við erfiðleika að stríða. Við horfum vonglaðar fram á veginn og megi Drottins blessun hvíla yfir öllu starfi Kvenfélags Árdalsafnaðar. í minningu um 50 ára starf Kvenfélags Árdalssafnaðar var haldin afmælisveizla í kirkjunni sunnudaginn 28. ágúst 1955. Það var yndislegur sólskinsdagur og kirkjan var skreytt með fögrum blómum. Séra Robert Jack stýrði veizlunni. Fyrst var sunginn sálmurinn „Starfa því nóttin nálgast11; svo las séra Robert Biblíu- kafla og flutti ræðu. Innihald ræðunnar var starf kvenna vestan hafs í þágu kirkju- og kristindómsmálefna. — Með vel völdum orðum heiðraði hann kvenfélagskonur fyrir umfangsmikið og blessunarríkt starf. — Á skemtiskrá var vel valinn og yndislegur söngur. Hermann Fjelsted söng einsöngva og Johnson stúlkurnar,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.