Árdís - 01.01.1956, Page 40

Árdís - 01.01.1956, Page 40
38 ÁRDÍS Kvenfélagið Undína, Hecla, — SJÖTÍU ÁRA — Eftir ÖNNU JONEES Þegar félagssystur mínar fóru þess á leit við mig að skrifa stutta ritgjörð um kvenfélagið okkar í Árdís í tilefni af 70 ára afmæli félagsins fann ég til vanmáttar míns, því margt mætti segja félaginu til gildis eftir svo langan starfsdag. Félagið er elzti félagsskapur á Mikley, að söfnuðinum undanteknum, sem er sjötíu og átta ára. Mér skilst að það sé þriðja elzta kvenfélagið vestan hafs. Stofnfundur félagsins var haldinn 4. marz 1886. Þessar konur mættu þar og skrifuðu sig í félagið: Jóhanna Jónsdóttir, Hólmfríður Jósefsdóttir, Margrét Thorar- insdóttir, Þorbjörg Guðmundsdóttir, Sigríður Þorsteinsdóttir, Val- gerður Sveinsdóttir, Elinborg Elíasdóttir, Sesselja Friðjónsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Guðný Sigmundsdóttir, Björg Kristjáns- dóttir, Margrét Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir. I stjórnarnefnd voru þessar konur kosnar: Forseti, Guðný Sigmundsdóttir; skrifari, Margrét Jónsdóttir; féhirðir, Björg Kristjánsdóttir. Hið nýstofnaða félag var nefnt Kvenfélag Mikleyjar. Síðar var nafninu breytt og hlaut það þá nafnið Undína. Félagið var óháð með það markmið að styrkja öll góð málefni innan bygðar- innar, hjálpa eftir mætti þeim, sem áttu við fátækt, veikindi eða aðra öruðleika að stríða. Þess má geta, að fyrir 70 árum var eyjan að heita mátti nýbygð og efnahagur fólks mjög takmarkaður og og ef til vill sums staðar regluleg fátækt, enda sýnir gjörðabók félagsins að 1887 hélt félagið samkomu og skipti ágóðanum algerlega á milli þeirra heimila, sem fátækust voru á eyjunni. Sína fyrstu samkomu hafði það haft tveimur vikum eftir að félagið var stofnsett. Var þar skemtiskrá og tombóla, drátturinn seldur á 15c., inngangur 15c. fyrir fullorðna og lOc. fyrir börn. Það er örðugt að skilja hvað þessi litli félagsskapur áorkaði miklu með að hjálpa þeim, sem bágt áttu þar sem inntektir voru aðeins ársgjald meðlima (sem var 25c.) og ein samkoma á ári. Fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.