Árdís - 01.01.1956, Page 65
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
63
minna og barna þeirra. AÖ því búnu hallaði hún sér út af aftur og
lét þess þá getið, að hún væri að fara á spítalann, ekki að hún væri
veik, heldur lúin og þyrfti að hvíla sig. En varla hafði ég skilað
þessum kveðjum, er mér barst lát þessarar góðu frænku minnar, er
verið hafði mín elskulega, stóra systir í meir en hálfa öld.
SVEINN ODDSSON
Þorbjörg Mýrdal
Fædd 28. júní 1860 — Dáin 17. júní 1954
Þorbjörg Mýrdal var fædd í Mýrasýslu á íslandi þann 28. júní
1860, og var því nærri 94 ára, er hún dó 17. júní 1954, á heimili
dóttur sinnar og manns hennar, Mr. og Mrs. Benjamín Daníelsson.
Þorbjörg var tvígift. Fyrri mann sinn misti hún á íslandi frá
þremur ungum börnum. Um aldamótin fluttist hún vestur um haf
til Dakota og þar giftist hún 1903 Magnúsi Mýrdal. Þau fluttu
bráðlega til Árdals-byggðar 1 grend við Árborg og áttu þar heima
þar til Magnús dó 1937. Þau eignuðust tvö börn. Einnig ólu þau upp
tvær dótturdætur Þorbjargar.
Síðustu árin átti hún heima hjá Láru dóttur sinni og naut þar
góðrar umhyggju.
Þorbjörg var þerkmikil kona og bar vel langa og oft erfiða ævi.
Fram til þess síðasta hafði hún sjón til þess að lesa og hafði ætíð
yndi af góðum bókum og las eins mikið og kringumstæður leyfðu.
Sérstaklega var hún laghent að prjóna og sauma. Hún tilheyrði
kvenfélagi Árdalssafnaðar í mörg ár og studdi það og söfnuðinn af
mikilli tryggð allt fram á síðustu stund. Hún var góð kona og
móðir. Blessuð sé minning hennar.
EMILY VIGFÚSSON