Árroði - 01.01.1937, Side 4

Árroði - 01.01.1937, Side 4
4 A R R 0 Ð I gerði að upphafaorðum mála minB í greindu efni. Að endingu máls minB skal ég minnaat á, að ég drap áður á, í blaði mínu, Árroða, hvert væri, frá mínu sjónarmiði, hið rétta og sanna í málefni þeasu, og það var, að varpa hlutkesti um, í nafni Drottins vors Jesú Krists, hvar hans eigin kyrkja skal standa. Á kyrtil prjónaðan ljóst með list lögðu þeir hlutfall djarft. (h. p.). Hentuglega féll hlutur sá. (h. p.). Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa. Sannleikurinn heflrætíð reynzt sagna beztur. Sannleik- urinn hefir ætíð sigrað., og mun bera ægishjálm yfir lýgi og villu að eilífu. Með vinsemd og virðing. Ásmundur JónBSon, frá Lyngum. VERS um síðasta dag. Lag: Alt eins og blómstrið eina. Þegar að dómadægur dunar af himna-trón, Vertu 088, Jesú, vægur, veittu oss þessa bón, fyrir þá sorg og sárin, sjálfur, sem leiðstu hér: 08S gef ununar-árin i eilífri dýrð hjá þér. Amen. SKILNAÐAR-VÍSUR Orktar af séra Jóni sál. Steingrims- syni, prófasti, á Siðu i Vestur-Skafta- fellssýslu. Eru komnar frá frú Val- gerði Gisladóttur, sem lærði þær i æsku hjá ömmu sinni, Valgerði Ólafsdóttur, i Skógum undir Eyjafjöllum, er var dóttir Helgu, dóttur hans, sem þær eru ortar til. V Allt er á reiki í heimi hér. Hverful lukkan eins og gler. Mig að sama brunni ber, Burt eru gleðidagarnir. Oðum mitt nú yndi dvin; Æ, mitt barn, ég sakna þín, í faðmlög Jesú, fögur og fin, Far þú, ástkær dóttir mín! Guð þér verði í öllu allt! Allt annað er mjög fallvallt! Við hans orðið hvern dag halt. Haltu þetta ráðið snjallt. Þó við skiljum svo um sinn, Sé þinn Drottinn leiðtoginn, Leiði hann þíg loksins inn I lifs eilífan fögnuðinn! Ykkur, börn min, aftur þar Ég mun sjá — án skilnaðar — í yndis-veru eilífðar — Eftir liðnar hörmungar!

x

Árroði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/757

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.