Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 6

Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is FARÞEGAR á vegum Ferðaskrifstofu Íslands þurfa ekki að óttast að komast ekki heim vegna fjárhagsvanda fyrirtækisins. Vandinn hefur nú verið leystur. Þetta segir Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri fyrirtækisins. Flugvél, sem leggja átti af stað til Íslands frá Tenerife í gærmorgun klukkan 7, tafðist fram á kvöld og tengdist sú seinkun fjár- hagsvanda fyrirtækisins. „Seinkunin fléttast inn í fjárhagserfiðleikana. Þetta er hluti af stærri mynd,“ segir Þorsteinn. Talið er að um 150 farþegar hafi þurft að bíða eftir flugvélinni í gær sem samkvæmt heimildum Morgunblaðsins átti að leggja af stað heim til Ís- lands klukkan 21.15 í gærkvöldi. „Auðvitað þykir okkur mjög leiðinlegt að flugið hafi frestast en fararstjórarnir okkar úti eru með- vitaðir um stöðu mála og senda ekkert fólk út á flugvöll fyrr en á réttum tíma. Þessi seinkun varð alveg á lokasprettinum á endurfjármögnuninni og þá þurfti að bóka nýja áhöfn og allt tengt fluginu. Þess vegna varð hún svona löng.“ Endurfjármögnun á lokastigi „Við erum að klára að endurfjármagna fyrir- tækið og erum á lokastigi þess ferlis og það mun koma fjársterkur aðili inn í félagið. Ekki er þó hægt að greina frá því hver það er fyrr en eftir helgi.“ Þorsteinn segir ennfremur að búið sé að ganga frá öllu flugi næstu daga og starfsemi fé- lagsins muni haldast óbreytt. Undir Ferðaskrifstofu Íslands heyra Úrval-Út- sýn, Sumarferðir og Plúsferðir. Um 70 manns starfa hjá fyrirtækinu. Allir starfsmennirnir hafa minnkað starfshlutfall sitt um 50 prósent frá því í nóvember. Þorsteinn kveðst ekki gera ráð fyrir því að þurfa að segja starfsmönnum upp fyrst um sinn. „Við þurfum að sjá hvernig árið fer.“ Farþegarnir komast heim Í HNOTSKURN »Undir Ferðaskrifstofu Íslands heyraÚrval-Útsýn, Sumarferðir og Plúsferð- ir. Hjá fyrirtækinu starfa um 70 manns. »Flug á vegum fyrirtæksins, sem átti aðleggja af stað frá Tenerife til Íslands í gærmorgun, frestaðist fram á kvöld. Frest- unin var í tengslum við fjárhagsvanda fyr- irtækisins. »Samkvæmt upplýsingum frá ÞorsteiniGuðjónssyni, forstjóra fyrirtækisins, hefur nú tekist að endurfjármagna fyr- irtækið og það muni því halda áfram óbreyttri starfsemi sinni. HELLISHEIÐI breyttist í slysagildru í gær- dag þegar skyndilega snöggkólnaði og gler- hálka myndaðist á örskotsstundu. Fimm slys urðu á heiðinni á skömmum tíma. Jeppabifreið fór út af veginum við Skíða- skálann í Hveradölum og valt. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild og er talinn alvarlega slasaður. Fáum mínútum áður fór önnur jeppabifreið út af veginum á svipuðum stað og valt. Þrír voru fluttir á slysadeild en meiðsli ekki talin alvarleg. Þá fór bíll út af veginum við Kambabrún en ekki er vitað um meiðsli. Loks fór jeppi með kerru út af veg- inum við Lambafell í Þrengslum. Ekki urðu slys á fólki. Morgunblaðið/Júlíus Hættuleg hálka myndaðist á Hellisheiði FRÉTTASKÝRING Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is SKIPTAR skoðanir eru innan stjórnarflokkanna og þeirra í milli um hvort rétt sé að efna til einnar þjóðaratkvæðagreiðslu eða tveggja um aðildarviðræður og mögulega aðild að Evrópusambandinu (ESB). Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur viðrað þá hugmynd að þjóðin greiði atkvæði um hvort farið skuli í aðildarviðræður við ESB. Síðan yrði líka kosið um niðurstöðuna. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur það einnig koma til greina, enda hafi engin þjóð sem sótt hafi um aðild að ESB staðið frammi fyrir því að afsala sér stjórn jafnmikilla auð- linda og Íslendingar. Ófrávíkjanleg skilyrði fyrir aðild þyrftu þá að liggja fyrir, að mati Björns, og sam- þykki þjóðarinnar að fást fyrir þeim. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, varaformaður Sjálfstæð- isflokksins, hefur ekki látið uppi hvort hún telji þörf á tveimur at- kvæðagreiðslum en sjálfstæð- isþingmennirnir Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson hafa lagt til að efnt verði til einnar þjóð- aratkvæðagreiðslu að loknum aðild- arviðræðum. Kosningar á spýtunni Innan Samfylkingarinnar eru miklar efasemdir um að greiða at- kvæði um aðildarviðræður. „Ég ótt- ast að kostirnir verði þá ekki nægj- anlega skýrir,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Sam- fylkingarinnar. „Hættan er þá sú að annars vegar verði mikið gert út á fordóma í garð ESB og að hins veg- ar verði alið á óraunhæfum vænt- ingum um hvað gæti fengist með að- ild,“ bætir hún við og bendir á að ef niðurstaðan úr atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður yrði neikvæð þá myndi fólk aldrei vita hvað því stóð til boða. Það myndi ekki draga úr ágreiningi um málið. Á spýtunni hangir einnig mögu- leikinn á Alþingiskosningum en Ingibjörg Sólrún segir að eigi að greiða atkvæði um mögulegar aðild- arviðræður gæti verið rétt að efna til Alþingiskosninga samhliða því. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali í Fréttablaðinu í gær að það væri einkennileg hugmynd og myndi kalla á tvennar þingkosn- ingar. Vísaði Þorgerður til þess að breyta þurfi stjórnarskrá og tvö þing þarf til að samþykkja slíkar breytingar. Ingibjörg Sólrún segir hins vegar að með vorinu mætti vel setja lög um þjóðaratkvæðagreiðslu og gera um leið einfalda breytingu á stjórnarskrá. „Málin horfa öðruvísi við ef við förum í aðildarviðræður fljótlega á nýju ári. Þá myndu Al- þingiskosningar geta farið fram samhliða atkvæðagreiðslu um nið- urstöðuna,“ útskýrir Ingibjörg en þá yrði væntanlega ekki efnt til þingkosninga fyrr en í fyrsta lagi eftir eitt ár. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra telur hins vegar að breyting á stjórnarskrá yrði alltaf lokaskrefið í aðildarferlinu og að hans mati væri óskynsamlegt að blanda saman þjóðaratkvæðagreiðslu og þingkosn- ingum. Umræðurnar yrðu þá ómarkvissari. Beðið eftir landsfundi Endanleg ákvörðun verður vænt- anlega ekki tekin á vettvangi ríkis- stjórnarinnar fyrr en að afloknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins í lok janúar og vonast Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylk- ingarinnar og annar formanna Evr- ópunefndar ríkisstjórnarinnar, til þess að afstaða flokksins verði af- gerandi. Hann varar við tvöföldu at- kvæðagreiðsluleiðinni. „Svo að þjóð- in sjái kostina þarf að liggja fyrir samningur sem kjósa má um,“ segir Ágúst Ólafur en Illugi Gunnarsson, sem er hinn formaður Evrópunefnd- arinnar, segist ekki myndu setja sig upp á móti tveimur atkvæða- greiðslum ef sátt næðist um það. „Hin raunverulega atkvæðagreiðsla hlýtur hins vegar að vera á grund- velli einhvers konar samnings,“ seg- ir Illugi en telur ekki rétt að setja alla orkuna í ESB við þessar að- stæður. „Við leysum ekki núverandi vandamál með aðild að ESB.“ Ekki náðist í Geir H. Haarde, for- sætisráðherra og formann Sjálf- stæðisflokksins, vegna málsins. Einar eða tvennar kosningar? Ekki er einhugur milli stjórnarflokkanna um hvort efna eigi til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildar- viðræður að Evrópusambandinu eða láta nægja að greiða atkvæði þegar samningur liggur fyrir ENGIN fordæmi eru fyrir því í ríkj- um Evrópusambandsins að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild- arviðræður að sambandinu, að sögn Aðalsteins Leifssonar, lekt- ors við Háskólann í Reykjavík. „Þetta hefur verið rætt í Noregi í ljósi reynslunnar. Þar hefur aðild verið hafnað tvisvar sinnum í þjóð- atkvæðagreiðslu og hugmyndin væri þá að fá umboð til að hefja viðræður í þriðja sinn. En það er ekki einhugur um þetta þar,“ segir Aðalsteinn og bætir við að at- kvæðagreiðslan myndi bæði hafa kosti og galla. „Svona atkvæða- greiðsla er töluvert mikið mál og það má spyrja hversu markviss hún verður ef fólk hefur engan samning í höndunum. Þá er hætt við því að menn skipi sér strax í fylkingar og fari í harða andstöðu eða stuðning við eitthvað sem enginn veit hvað verður að lokum. Á móti kemur að atkvæðagreiðsla myndi senda skýr skilaboð um að Íslendingum væri full alvara með umsókninni,“ segir Aðalsteinn. Engin fordæmi fyrir tvöfaldri atkvæðagreiðslu MIKIÐ af síld var í og við höfnina í Hafnarfirði í gær. Íbúar í Hafn- arfirði fylgdust með torfunum sem sumar voru alveg við ströndina. Síld sást í höfnunum í Vest- mannaeyjum og Keflavík fyrir nokkrum dögum. Sýni voru tekin úr síldinni við Eyjar, en mikið af henni reyndist vera sýkt. Ljóst er að síldartorfurnar í höfnunum eru að drepast. Síld í Hafnar- fjarðarhöfn Síld Veiði var í höfninni í Eyjum. SKÁKMENNIRNIR Björn Þor- finnsson og Jón Viktor Gunnarsson geta sannarlega unað sáttir við sitt en þeir urðu efstir og jafnir í b- flokki Reggio Emila-mótsins sem lauk á Ítalíu í gær. Jón Viktor vann ítalska meist- arann Alberto Pomaro en Björn tapaði gegn Marco Corvi. Báðir hlutu þeir 6½ vinning og hækka um rúmlega 10 stig hvor á mótinu. Að loknu þessu móti er Björn kominn í hóp alþjóðlegra skák- meistara. Efstir og jafnir á Ítalíu Félagaskák Björn og Jón Viktor mættust í fyrstu umferð á mótinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.