Morgunblaðið - 05.01.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 05.01.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ENGINN skortur er nú á starfs- fólki til umönnunarstarfa hjá Hrafn- istuheimilunum og Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. „Við fáum fleiri umsóknir frá Ís- lendingum heldur en áður,“ sagði Helga Jóhanna Karlsdóttir, starfs- mannastjóri á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund. Hún sagði marga hafa spurt um vinnu í októ- ber og byrjun nóvember en síðan hafi aðeins dregið úr fyrirspurnum. Nú eru fyrirliggjandi 10-15 umsókn- ir fólks sem óskar eftir að fá vinnu í janúar. Þessir umsækjendur eiga fjölbreyttan starfsferil og menntun að baki. Helga sagði að mörgum um- sóknum væri hafnað strax þegar ljóst þætti að viðkomandi hentaði ekki til starfanna sem í boði væru. „Það er fullt eins og er. Eins er skólafólk í vinnu yfir jólin sem var búið að raða sér inn á vaktir í haust,“ sagði Helga. Íslendingum hefur verið að fjölga hlutfallslega í starfsmannahópnum á Grund. Helga sagði mikilvægt að þeir sem ynnu við aðhlynningu aldr- aðra töluðu góða íslensku og því væru Íslendingar fremur ráðnir en útlendingar sem ekki tali málið. Fólk af útlendu bergi brotið sem lært hefði íslensku væri þó metið al- veg jafngilt íslenskum umsækj- endum um störf. Mikil breyting í haust Magnea Símonardóttir, í mann- auðsdeild Hrafnistu, sagði að Hrafn- istuheimilin fjögur væru alveg full- mönnuð nú en þar starfa um þúsund einstaklingar. „Það varð mikil breyting í haust og alveg flóð af umsóknum bæði frá Íslendingum og útlendingum,“ sagði Magnea. Starfsumsóknum fjölgaði mjög í október og nóvember sl. en frá byrjun desember hefur umsókn- um fækkað. Ekki fengu mjög marg- ir vinnu því vel gekk að manna Hrafnistu á liðnu hausti. Breytingin í að fá fólk til starfa er mjög mikil á einu ári. „Í fyrra fór ég milli menntaskóla og hengdi upp auglýs- ingar til að fá starfsfólk um jólin. Ég þurfti ekki að gera það núna,“ sagði Magnea. Umsóknir um störf á Hrafnistu eru geymdar í þrjá mánuði og eru nokkrir tugir umsækjenda nú á bið- lista. Aldursviðmið vegna ráðninga hefur verið 18 ár og hefur það held- ur verið hækkað fremur enn hitt, að sögn Magneu. Hún sagði að nokkuð væri um að umsóknum væri hafnað strax af ýmsum ástæðum. Hjá Hrafnistu hefur útlent starfs- fólk aðallega verið ráðið í stoðdeild- ir, t.d. eldhús og ræstingu. Sú regla hefur gilt að fólk sem vinnur við að- hlynningu tali íslensku. Nokkrar út- lendar konur hafa hætt upp á síð- kastið vegna þess að mennirnir þeirra hafa misst vinnuna og þau ákveðið að fara af landinu. Núna er enginn hörgull á starfsfólki Morgunblaðið/ÞÖK Breytt staða Undanfarin ár hafa hjúkrunarheimilin átt í miklum erf- iðleikum með að fá nægt starfsfólk til starfa. Eftir skyndilega breytingu í efnahags- og atvinnumálum hefur staðan gerbreyst. Nú eru allar stöður mannaðar og fólk á biðlista eftir að fá vinnu. Mun stærra hlutfall starfsfólks á hjúkrunarheimilunum er núna af íslensku bergi brotið. Mikil breyting hef- ur orðið hjá heim- ilum fyrir aldraða varðandi starfs- mannaráðningar TRÚFÉLÖGIN á Íslandi hvetja landsmenn til að hafa kveikt á hvítu ljósunum áfram nú þegar jólahátíðin er á enda. Markmiðið er að halda ljósunum lifandi út febrúar og vilja trúfélögin þar með „auka birtuna í lífi okkar, einmitt núna þegar þjóðin á í vanda og skammdegið stendur sem hæst,“ eins og segir í fréttatil- kynningu. Það var samstarfshópur innan Ímark sem hafði frumkvæði að verk- inu og lagði fram beiðni til AUGA, stuðningssjóðs samtaka og fyrir- tækja í auglýsingaiðnaðinum. AUGA samþykkti verkefnið og litu auglýs- ingarnar dagsins ljós um helgina í öllum helstu miðlum landsins. Látum hvítu ljósin lifa  BJARNI Kristófer Kristjánsson, dósent við fiskeldis- og fiska- líffræðideild Háskólans á Hólum, varði 12. desember sl. doktorsritgerð sína „Fine scale phenotypic diversity of Arctic charr (Salvelinus alpinus) in relation to ecological characters“ (Svipfarsbreyti- leiki bleikju á fín- um skala í tengslum við vist- fræðilega þætti), við dýrafræði- deild Háskólans í Guelph í Kanada. Andmælendur voru dr. Anne Magurran frá Há- skólanum í St. Andrews í Skotlandi og dr. Andrew McAdam frá Háskól- anum í Guelph. Í prófdómnefndinni sátu einnig dr. Skúli Skúlason, dr. Josef D. Ackerman og dr. Patricia Wright, sem var formaður dóm- nefndar. Leiðbeinendur Bjarna voru dr. Skúli Skúlason, dr. David L.G. Noakes og dr. Josef D. Ackerman. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að vistfræðilegir þættir eru mik- ilvægir fyrir þróun og viðhald líf- fræðilegs fjölbreytileika. Þetta er í fyrsta skipti sem tenging milli vist- fræðilegra þátta og svipfars er gerð á jafn fínum skala (í útliti og vistfræði) og gert er hér. Því er mikilvægt þeg- ar leitast er við að vernda og nýta líf- fræðilegan fjölbreytileika að taka til- lit til vistfræðilegra þátta. Bjarni fæddist árið 1971, stúdent frá Flensborgarskólanum 1991, B.Sc. í líffræði frá Háskóla Íslands 1994, fjórða árs verkefni í sjávarlíffræði frá sama skóla 1997 og M.Sc. í dýrafræði frá Háskólanum í Guelph 2001. Bjarni er sonur Kristjáns Bersa Ólafssonar og Sigríðar Bjarnadótt- ur. Doktor í dýrafræði  ÞÓRA Más- dóttir hefur varið doktorsritgerð í talmeinafræði við Newcastle Uni- versity í Bret- landi. Ritgerðin nefnist „Phono- logical develop- ment and dis- orders in Icelandic-speaking children“. Markmið rannsókn- arinnar var tvíþætt, annars vegar að athuga þróun málhljóða og hljóð- kerfis hjá tveggja og þriggja ára ís- lenskum börnum og hins vegar að kanna tal fjögurra og fimm ára barna sem voru með greinanlega röskun á framburðarþroska miðað við jafnaldra. Rannsóknin leiddi m.a. í ljós að framburður eldri barna með frávik svipar til framburðartilbrigða yngri barna með eðlilegan mál- þroska. Þó virtist frávikshópurinn vera með ákveðin framburðar- einkenni sem ekki voru til staðar hjá yngri hópnum, auk þess sem sértæk, einstaklingsbundin frávik voru meira áberandi hjá börnunum sem skipuðu frávikshópinn. Niðurstöður rannsóknarinnar segja einnig til um hvaða hljóðferli eru einstök fyrir ís- lenska tungu og skipta máli þegar verið er að kanna framburð barna með frávik. Rannsóknin verður m.a. lögð til grundvallar framburðarprófi fyrir börn. Leiðbeinandi Þóru var Stephanie F. Stokes, prófessor við Newcastle University. Þóra fæddist 12. júní 1961. Hún útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 1986 með BA-próf í íslensku og al- mennum málvísindum. Hún útskrif- aðist með MA-gráðu í talmeinafræði frá Indiana University í Bandaríkj- unum, árið 1990. Foreldrar Þóru eru Guðríður Pétursdóttir og Már El- ísson. Hún er gift Magnúsi Ólasyni lækni og eiga þau eina dóttur, Þór- hildi. Þóra starfar á Heyrnar- og tal- meinastöð Íslands. Doktor í tal- meinafræði UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að sam- gönguráðuneytið verði að breyta reglugerð um leigubifreiðar. Guðjón Þ. Andrésson, formaður Bifreiða- stjórafélagsins Andvara, sem leitaði eftir áliti umboðsmanns á málinu, er mjög ánægður með þessa niður- stöðu. Málsatvik eru þau að leigubílstjóri þurfti að fara í stóra læknisaðgerð og eftir að hafa jafnað sig á henni varð hann fyrir slysi sem lengdi þann tíma sem hann var frá vinnu. Þetta varð til þess að hann var sviptur at- vinnuleyfi þar sem hann hafði verið veikur lengur en sjö mánuði, en ákvæði um slíkt er að finna í reglu- gerð um leigubifreiðar. Guðjón sendi inn kvörtun til Um- boðsmanns Alþingis í maí á síðasta ári þar sem farið var fram á að reglu- gerð um leigubifreiðar yrði felld úr gildi þar sem hún stæðist ekki lög um leigubifreiðar. Niðurstaða umboðsmanns er að leggja til við samgönguráðuneytið að reglugerðin verði tekin til endur- skoðunar. Guðjón sagðist vera ánægður með þessa niðurstöðu. Það væri í hæsta máta óeðlilegt að svipta mann atvinnuleyfi vegna veikinda. egol@mbl.is Breyta þarf reglu- gerðinni Sviptur atvinnuleyfi vegna veikinda LÍF og fjör var í árlegri nýárs- göngu eigenda cavalier king charl- es spaniel-hunda í gær. Genginn var hringur í kringum Tjörnina í Reykjavík og voru hátt í 50 hundar með í för. Hundar eru líkir manninum að því leyti að þeim þykir gaman að hitta jafningja sína. Er þá gjarnan mikið hnusað og þefað og rakk- arnir lyfta oft löpp og spræna pínu- lítið, svona til að þeirra lykt verði ríkjandi. Hundar af tegundinni cavalier king charles spaniel eru sagðir fjör- miklir og þokkafullir, með blíðleg- an svip, hugaðir og vinalegir, með stór dökk og kringlótt augu. Cavalier-félagið hefur þegar birt göngudagskrá fram í apríl á slóð- inni cavalier.is. sia@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Alltaf gam- an að hitta félagana

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.