Morgunblaðið - 05.01.2009, Síða 13

Morgunblaðið - 05.01.2009, Síða 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is Útsalan er hafin v/Laugalæk • sími 553 3755 JÓHANN Óli Guðmundsson segir Þórdísi Sigurð- ardóttur fara með rangt mál haldi hún því fram að brottrekinn forstjóri Tals, Hermann Jónasson, hafi gert samning við Símann án samráðs við stjórn Tals. Þórdís er stjórnarformaður Tals og Jóhann Óli stjórnarmaður og stór hluthafi. Jóhann Óli sendi fjölmiðlum í gær afrit af fund- argerð stjórnar Tals frá 11. desember þar sem Her- mann Jónasson þá forstjóri fór yfir vandræðin sem blöstu við viðskiptavinum fyrirtækisins frá áramótum vegna uppsagnar Símans á reikisamningi. Þeir yrðu sambandslausir við hluta af landinu ef ekki næðist að leysa málið með Vodafone eða samningi við Símann fyrir 1 janúar. „HJ var falið að leysa málið á næstu dög- um með hag félagsins og viðskiptavina að leiðarljósi,“ segir í fundargerð sem Jóhann Óli sendi. Hann segir að engar athugasemdir hafi verið gerðar við þessa fund- argerð á stjórnarfundi Tals 30. desember. Þá var Her- manni Jónassyni sagt upp vegna trúnaðarbrests. bjorgvin@mbl.is Stjórn Tals var upplýst Ósátt Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Tals, deilir nú við Jóhann Óla Guðmundsson meðstjórnarmann. Harðar deilur milli stjórnarmanna vegna Símasamnings ÞETTA HELST ... ● Jake Tapper, stjórnmálaskýrandi bandarísku ABC-sjónvarpsstöðv- arinnar í Hvíta húsinu, heldur því fram að Obama vilji skapa um 600 þúsund ný opinber störf þegar hann tekur við emætti forseta Bandaríkj- anna. Þetta fær hann út með því að rýna í útvarpsræðu Obama frá því á laug- ardaginn. Þá sagðist forsetinn tilvon- andi ætla að skapa þrjár milljónir nýrra starfa. Áður hefði hann sagst ætla að búa til eða verja tvær millj- ónir starfa. Og 80% af þessum nýju störfum ættu að vera innan einka- geirans. Afgangurinn yrði þá innan stjórnkerfisins. bjorgvin@mbl.is Vill fleiri opinber störf ● Björgólfur Guð- mundsson er á lista Forbes- tímaritsins yfir þá milljarðamær- inga sem töpuðu nánast öllu á liðnu ári. Í fyrra hafi hann átt eignir að upphæð 1,1 milljarð Bandaríkjadala. Hins vegar hafi fall bankakerfisins á Íslandi gert það að verkum að allt þurrkaðist út. Þegar listi Forbes yfir ríkustu menn heims var birtur í mars í fyrra var Björgólfur Guðmundsson í 1.014. sæti. Sonur hans, Björgólfur Thor, var í 307. sæti. bjorgvin@mbl.is Björgólfur Guðmundsson Á taplista Forbes ● Enn hefur engin lausn fengist í það hvernig mál fjármálafyrirtækja, sem hafa fengið lán í Seðlabanka Ís- lands með veðum í verðlitlum eða verðlausum bankabréfum, verður leyst. Sem dæmi þurfti Straumur fjár- festingarbanki að leggja 18,3 millj- arða króna viðbótartryggingu fyrir lánum sínum í SÍ 21. október sl. Það var til þess að dekka helming lána Straums hjá Seðlabankanum. Til að setja þessa tölu í eitthvert samhengi var markaðsverðmæti Straums í lok föstudagsins um 19,4 milljarðar króna. bjorgvin@mbl.is Veðlán enn óleyst FRÉTTASKÝRING Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is JÓNAS Fr. Jónsson, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, bendir á að búið sé að gefa út yfirlit yfir verkferla til að endurreisa íslenska bankakerfið. Nú þegar hefur Fjármálaeftirlitið gert samning við óháðan, alþjóðlegan matsaðila um gagngert endurmat á eignum og skuldum nýju bankanna. Endurmati þessu skal lokið nú í jan- úar. Lánardrottnum bankanna hafa verið kynntar matsaðferðirnar og þeir fengið að koma með ábendingar. Samningur hefur verið gerður við alþjóðlega fjármálaráðgjafarfyrir- tækið Oliver Wyman til þess að hafa umsjón með og annast þetta endur- mat á nýju bönkunum. Sami aðili mun einnig gera samskonar mat á gömlu bönkunum. Verðmat langtímaeigna Aðferðunum, sem notaðar verða við matið, er ætlað að endurspegla þau verðmæti sem felast í eignum nýju bankanna til langs tíma litið. Ekki á að miða við verð sem fæst fyr- ir eignirnar við þvingaða sölu við erf- iðar markaðsaðstæður. Í tilviki gömlu bankanna er til- gangur matsins aðeins að setja við- miðunarramma fyrir starf skila- nefndanna fyrir kröfuhafa. Hafa skilanefndir ráðið sér alþjóðlega ráð- gjafa til þess að skipuleggja sam- skipti við kröfuhafa. Það verkefni sem einnig liggur fyr- ir í endurreisn bankakerfisins er gerð fjárhagsreikninga fyrir nýju bankana. Fær Ríkisendurskoðun að ráða alþjóðleg endurskoðunarfyrir- tæki til þess að aðstoða stjórnendur nýju bankanna við gerð þeirra. Meðal verkefna við gerð þessara reikninga er að finna út hvað eignir nýju bankarnir hirtu úr þeim gömlu umfram skuldbindingar. Samkvæmt yfirliti Fjármálaeftir- litsins er það vandasamt og flókið verkefni sem þurfi meðal annars að vinna í samráði við kröfuhafa gömlu bankanna. Jafnframt sé ljóst að margskonar lausnir komi til greina í þessu efni. Nýtt hlutafé fyrir febrúarlok Nú þegar liggur fyrir bráðabirgða efnahagsreikningur fyrir nýju bank- ana. Þegar þessu endurskoðunar- starfi er lokið og búið að staðfesta stofnefnahagsreikninga bankanna er ríkisstjórnin reiðubúin til að leggja þeim til eigið fé. Verður miðað við að eiginfjárhlut- fall bankanna verði að minnsta kosti 10%. Sé miðað við fyrstu efnahags- reikningana er gert ráð fyrir að þetta muni kosta ríkissjóð 385 milljarða króna. Lokatala fer þó eftir því verð- mæti eigna nýju bankanna sam- kvæmt úttekt Oliver Wyman. Hlutaféð verður reitt af hendi fyrir lok febrúar. Fyrir lok mars 2009 á að liggja fyr- ir úttekt fyrrverandi forstjóra fjár- málaeftirlits Finnlands, Kaarlo Jännäri, á regluumgjörð og fram- kvæmd bankaeftirlits hér á landi. Markmiðið er að efla viðbúnað gegn hugsanlegum fjármálakreppum í framtíðinni. Eignir endurmetnar í janúar  Fjármálaeftirlitið hefur gert samning við alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki til að endurmeta eignir nýju bankanna  Fyrr fá þeir ekki nýtt hlutafé frá ríkinu                    ! "  #   $%%  & % %   " %      %    $ '      %%%      %  ( #%  %) * +&$ % ,  % &   '  -   #  %       '             #  % %  % &    $   ! %   #%    !    %  && %   " %   " "  '  .  #/    0   1      !  3  4  %  #    % # '   5 % #%   $  #%     !   " %2     '  0  1   %%    '       6) %     %      %     % + 78 8 ) %     #%       !#    % ● Stjórnendur fjárfestingarsjóðs Nova- tors, Novator Credit Opportunities, eru að leita réttar síns vegna fjár- svikamáls sem bandaríski lögfræðing- urinn Marc Dreier stóð fyrir. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, aðal- eiganda Novator, segir þetta mál í vinnslu og engin niðurstaða liggi fyrir. Dreier var handtekinn snemma í desember á síðasta ári, grunaður um að hafa svikið allt að 380 milljónir dollara af vogunarsjóðum með blekk- ingum. Novator gæti tapað á annan tug milljóna Bandaríkjadala vegna kaupa á fölsuðum verðbréfum eins og margir aðrir vogunarsjóðir. bjorgvin@mbl.is Sjóður Novators leitar réttar í fjársvikamáli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.