Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 26

Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Elsku Sigga frænka okkar. Ekki áttum við von á því að sitja á milli jóla og nýárs og skrifa eft- irmæli eftir þig, en þú, hetjan okk- ar, sem varst búin að berjast í rúm 45 ár, fórst frá okkur fyrir þessi jól. Sem barn fórstu í efiðar aðgerðir til Danmerkur og svo til Bandaríkj- anna, svo fórstu í síðustu aðgerðina núna 2. desember en úr henni komstu ekki aftur. Við bræðurnir og nafni vorum hálfráðalausir nú á síðasta aðfangadag, það tilheyrði jólunum að heimsækja þig eftir há- degi á aðfangadag, færa þér smá pakka og þiggja kaffi og smákökur hjá mömmu þinni, en hetjan sú hef- ur staðið við hliðina á þér allt þitt líf. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Fyrir hönd systkina minna votta ég Guðrúnu, börnum og barnabörn- um okkar dýpstu samúð og bið þess að Guð blessi ykkur öll. Már B. Gunnarsson. Elsku Sigga mín, þá er tíma þín- um hér lokið. Hann hefur verið þér erfiður en líka góður. Þú hefur verið umvafin góðu fólki alla tíð, ættingj- um og vinum sem hafa gert allt til að létta þér lífið og þú endurgoldið það í ríkum mæli því ekki hefur vantað þín hnyttnu svör og svo varst þú svo skemmtileg. Þú dvaldir oft hjá okkur í Borgarnesi, mér, Lolla, Dísu og svo voru afi og amma ekki langt undan, sérstaklega þegar þú varst barn og unglingur og þá gat nú verið fjör og líka gat hvesst á milli okkar en það stóð nú ekki lengi og við urðum aftur bestu vinkonur sem við vorum alltaf. Manstu einu sinn þegar þú varst hjá okkur og við ekki alveg sam- mála frænkurnar, hvessti þá hjá okkur en lognið kom eins og alltaf, ég dreif mig og bakaði sáttar- pönnsur, kom svo til þín mjög Sigríður Hulda Sigurþórsdóttir ✝ Sigríður HuldaSigurþórsdóttir fæddist í Reykjavík 5. apríl 1963. Hún lést á Landspítalanum 19. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar eru Guðrún Karls- dóttir, f. 18.12. 1935 og Sigurþór B Gunn- arsson, f. 18.1. 1936, d. 27.12. 1986. Systk- ini Sigríðar Huldu eru Áslaug, f. 4.1. 1958, maki Hannibal Kjartansson, f. 13.4. 1958, og Gunnar, f. 13.4. 1959, maki Ragnheiður Sigurþórsdóttir, f. 28.9. 1961. Útför Sigríðar Huldu fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. ánægð með mig og pönnsurnar, býð upp á pönnsur, þá segir þú mér að þér þyki vond- ar pönnsur og þá sprungum við úr hlátri. Eða þegar við vorum með afa í bíl og ég fór að syngja eitt- hvert bull um fólkið okkar og smá stríða Ásgeiri og fleirum. Og þegar við fórum með Kötu upp í Borgarnes, fengum stein í fram- rúðuna og hún í mél, við Kata trylltumst úr hlátri, þú átt- ir ekki orð yfir okkur að hlæja að þessu en svo sást þú líka spaugilegu hliðina og tókst undir hláturinn. Þú elskaðir að fá póst og sendi ég þér kort þegar ég var úti og ef ég fór ekki út þá var bara rukkað um kort- ið. Þú varst mikill ABBA-aðdáandi og þið frænkurnar Dísa og Hanna Lilja fóruð á ABBA-sýninguna núna í vetur, það var æðislega gaman hjá ykkur. Svo var líka Boney M (eða eins og amma sagði Bonsý M) í miklu uppáhaldi og voru plöturnar spilaðar út í eitt. Svona get ég haldið áfram með margar, margar minningar sem hrannast upp, mikið gat oft verið gaman hjá okkur. Guð geymi þig elsku Sigga mín og takk fyrir allt, við hittumst síðar, bökum pönnsur, rífumst, sættumst og verðum alltaf bestu vinkonur. Ég elska þig. Þín móðursystir Hjördís Edda Karlsdóttir. Sigga var frænka mín og vinkona í fjörutíu og fimm ár. Erfið veikindi fylgdu henni inn í þetta líf og hún fór ung í skurðaðgerðir innanlands sem utan. En þrátt fyrir erfiðleika var hún ótrúlega dugleg að takast á við sitt daglega líf. Ég er ekki viss um að við höfum alltaf gert okkur grein fyrir hversu erfitt það hefur verið fyrir hana að mæta í sína vinnu og komast í gegnum daginn. Sigga var mjög næm á fólk og fann strax ef eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Hún hafði góðan húmor og hafði gaman af að hlæja og skemmta sér á góðum stundum. Hún var einlæg og hreinskilin og kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd. Á æsku- og unglingsárum áttum við báðar heima í Hlíðunum og við hittumst oft. Sigga var lagin í hönd- unum, hafði fallega rithönd og tjáði sig vel með því að teikna og mála. Hún gaf mér margar myndir ótrú- lega litríkar og fallegar og inn í þær setti hún miklar tilfinningar. Sigga elskaði tónlist og þá sér- staklega Abba og Boney M. Við gát- um endalaust spjallað um þær Ag- nethu og Fridu í Abba og það var ógleymanleg stund þegar við sáum Abba-tónleikamyndina saman í Austurbæjarbíói í gamla daga. Þeg- ar Boney M kom til Íslands fyrir mörgum árum og áritaði plötur í Kringlunni fór Sigga þangað og hitti fyrir hljómsveitarmeðlimi. Sigga og Liz Mitchell, ein af söng- konunum, féllust í faðma og spjöll- uðu lengi saman. Þannig var Sigga, ef hún hafði áhuga á einhverju fylgdi hún því eftir og lifði sig inn í það. Hún átti frábæra fjölskyldu sem studdi við bakið á henni í einu og öllu. Hún hafði sérlega gaman af að fylgjast með systkinabörnunum sín- um og hafði gaman af að segja mér sögur af þeim. Og hún fylgdist líka vel með stórfjölskyldunni allri. Seinna eftir að hún flutti frá móður sinni og á sambýli var hún þó alltaf í miklum tengslum við fjölskylduna sína. Hún átti fallegt heimili í Muru- rimanum síðustu árin. Ég á fjölmargar minningar um hana Siggu mína og við brölluðum margt saman í gegnum tíðina. Hin seinni ár hitti ég hana ekki eins oft og áður. Hún var mér sérlega kær og mun alltaf eiga stað í hjarta mínu. Sigríður Bachmann. Elsku besta Sigga mín. Með þess- um orðum langar mig til þess að minnast þín og þakka þér fyrir þann ómetanlega auð að hafa fengið að kynnast þér og verða þér samferða um veg lífsins síðastliðinn áratug. Ég get ekki fært það í orð hversu þakklát ég er fyrir að hafa kynnst þér og hversu mikið þú gafst mér. Þú varst svo einstök manneskja að skarð þitt verður aldrei fyllt og eftir fráfall þitt situr eftir holt rúm í hjarta mínu. Það rúm verður nú fyllt með ómetanlegum minningum um einstaka konu sem ég hefði vilj- að vera samferða miklu lengur. Það var þitt mesta sérkenni hversu mik- ið þú jóst úr hjartabrunni þínum til þeirra sem snertu hjarta þitt. Þegar þú hafðir einu sinni hleypt manni inn í hjarta þitt þá áttir þú fastan sess í hjarta manns alla ævi. Þú gafst svo ómetanlega mikið af þér með öllum þínum fögru orðum, heillandi brosi og glettnislegu augnaráðinu að missirinn verður fyrir vikið mikill og sár. Ég vildi óska þess að fleiri hefðu náð að kynnast þér því að þú hefðir getað kennt hverjum einasta manni eitthvað nýtt og veitt honum úr djúpum brunnum þínum. Ég man svo vel hvað þú stóðst þig alltaf vel þegar þess þurfti og hversu næm þú varst á alla í kringum þig. Um leið og ég hripa niður þessi minning- arorð þá hlusta ég á ABBA og ótal minningar sveima um hugann. Ég man eftir göngunni okkar löngu þar sem við dáðumst saman að blómum og spjölluðum, ég man eftir húsmæðraorlofinu okkar og ég man eftir því hversu vænt mér þótti um að þú kæmir í afmælisveisluna mína í vor. Ég veit að enginn mun fylla þitt skarð kæra vinkona og ég á ekki von á því að hitta marga á lífsleiðinni sem ná munu eins djúpt inn í hjarta mitt og þú. Ég er þakk- lát fyrir hverja stund og hverja minningu sem við áttum en örlögin hafa gripið í taumana og tíminn er búinn. Guð hefur kallað einn sinn allra besta engil aftur í ljósið en eft- ir stöndum við og horfum hrygg á eftir þér. Öllu því besta þarf að deila og þess vegna hefur þú verið kölluð til langt fyrir aldur fram. Minning um yndislega manneskju mun lifa og lýsa okkur hinum áfram veginn. Takk fyrir mig, elsku Sigga mín, það voru forréttindi að fá að feta lífsins veg við hlið þér. Mig langar til þess að enda þessa kveðju á orðum úr Spámanninum eftir Ka- hlil Gibran sem mér finnst eiga vel við. Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af tárum. Og hvernig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glað- ur, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glað- an. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. En ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. Elsku Guðrún, Gunnar, Áslaug og aðrir ættingjar og vinir. Ykkur votta ég innilega samúð mína á þessum erfiðu tímum. Kristbjörg Þórisdóttir. Elsku Sigga mín. Ég trúi ekki ennþá að þú sért farin svona alltof fljótt frá okkur. Erfiðast finnst mér að vera svona langt frá þér en þá nota ég bara tímann til að rifja upp allar okkar yndislegu stundir. Við erum búnar að þekkjast í sex ár og margt hefur drifið á daga okk- ar. Eftirminnilegast er hvað þú varst alltaf góð við mig og vildir mér alltaf það besta. Ef þú varst til dæmis að kaupa þér eitthvað fallegt eða fá þér eitthvað að borða vild- urðu alltaf gefa mér með. Einnig er mér hátt í huga hvað þú varst alltaf dugleg og snyrtileg, vildir alltaf hafa fínt og fallegt í kringum þig. Við keyptum nú saman margan kertastjakann og blómin til að gera íbúðina þína enn fallegri. Sérstak- lega var gaman að setja upp jóla- skrautið með þér, það fannst þér alltaf jafn skemmtilegt og einnig smá erfitt að taka það niður eftir jólin. Ég gleymi því aldrei þegar þú spurðir mig hvort ég hefði ekkert millinafn og ég útskýrði að ég héti nú bara einu nafni. Það fannst þér alls ekki nógu gott og spurðir mig hvort þú mættir kannski finna á mig fallegt millinafn og ég játaði því. Síðan eftir nokkrar vikur sagðir þú við mig að þú værir búin að hugsa málið vandlega og þú værir komin með millinafn handa mér, Guðný Rósa. Ef ég gleymdi að skrifa Rósa á teikningarnar þínar fallegu minntir þú mig kurteislega á hvort ég væri ekki að gleyma ein- hverju. Allar þær ferðir sem við fórum saman eru mér minnisstæðar, það var alltaf gaman að fara eithvað með þér. Hvort sem það var göngu- túr, bíltúr, leikhús, tónleikar eða eitthvað annað. Þú naust þín svo í botn og sást alltaf það fallega og góða í öllu. Þú kenndir mér svo margt, elsku Sigga mín og ég er betri manneskja eftir að hafa þekkt þig. Megir þú hvíla í friði og ég votta allri þinni fjölskyldu mína samúð. Þín vinkona, Guðný Jónsdóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Elsku yndislega vinkona mín. Þegar ég kveð þig í hinsta sinn fyll- ist hjarta mitt mikilli sorg og sökn- uði en um leið er ég mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér þar sem þú varst svo einstök mann- eskja. Maður kynnist nú alveg örugglega bara einni Siggu á lífs- leiðinni. Það tók yfirleitt dálítinn tíma að kynnast þér, þó mér hafi fundist sá tími óvenju stuttur hjá okkur. Þeg- ar þú svo hleyptir manni inn áttir þú mann alveg og sést það best á þeim vinaskara sem þú hefur sank- að að þér í gegnum árin. Þrátt fyrir að vinátta okkar hafi kannski ekki staðið í mörg ár þá vorum við mjög nánar og áttum margar yndislegar stundir saman. Eins og þegar við fórum í sum- arbústað saman sumarið 2007 ásamt fleira góðu fólki; verslunar- ferðirnar, kaffihúsaferðirnar og all- ar hinar gæðastundirnar. Frost og funa-ferðin okkar núna í sumar var alveg æðisleg. Þar vorum við bara tvær vinkonurnar og nut- um við okkar sko vel. Þar gátum við gert allt sem okkur fannst svo gott að gera saman svo sem borðað góð- an mat, hlustað á ABBA, Palla eða Bony M, kíkja í búðir, skreppa í bíl- túr, teikna, spjalla eða bara að sitja saman í þögninni. Það var einmitt svo sérstakt við þig kæra vinkona, það var svo gott að vera í kringum þig bara sitja hjá þér og segja ekk- ert og gera ekkert. Ef manni leið ekki alveg nógu vel þá var alltaf svo gott að koma inn í fallegu íbúðina þína og fá að setjast niður hjá þér. Þá leið manni alltaf betur og ég tala nú ekki um ef maður fékk að sjá fal- lega brosið þitt. Þú vissir sko alltaf ef manni leið ekki vel, því eins og systir mín orðaði það svo vel þá var tilfinningagreind þín svo langt fyrir ofan það sem gerist hjá meðal- manni. Minningar um allar góðu stund- irnar geymi ég eins og gull í hjarta mér kæra vinkona. En áður en ég kveð þá verð ég að nefna samband þitt og mömmu þinnar hennar Guð- rúnar. Það var svo ofsalega fallegt, hvernig þið pössuðuð hvor upp á aðra. Elsku Guðrún, Gunnar og Ás- laug, ykkur og fjölskyldum ykkar sendi ég mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Elsku Sigga mín, ég gæti sagt endalaust fallega hluti um þig en það er bara eitt sem mig langar að segja við þig að lokum: Takk fyrir að hafa leyft mér að kynnast þér og hvíldu í friði, dýrmæta vinkona mín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þín Helga Margrét Haraldsdóttir. Elsku Sigga sæta, við trúum ekki að þú sért farin og eigum við eftir að sakna þín mjög mikið. Að eignast vinkonu eins og þig er ómetanlegt. Við eigum aldrei eftir að gleyma þér og þeim góðu minningum sem við eigum um þig. Abba-tónlistin á allt- af eftir að minna okkur á þig. Sum- arbústaðaferðin í sumar var mjög eftirminnileg og stendur upp úr ferðin á Gullfoss, þar sem að þú naust þín svo vel. Kvöldið var ekki síður skemmtilegt þegar við töluð- um saman langt fram eftir, borð- uðum osta og drukkum bjór. Stakkst þú svo upp á að við stelp- urnar myndum fara í pottinn. Þar var hlegið og haft gaman og létum við hann „BOB“ okkar þjóna okkur í pottinum eins og við værum drottningar, sem þú svo sannarlega varst. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Elsku Sigga, takk fyrir tímann sem við áttum með þér. Þín verður sárt saknað og ætlum við að kveðja þig með þessum orðum TÚRILÚ. Elsku Guðrún og fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Guð veri með ykkur. Signý Hrund Svanhildardóttir og Klara Sjöfn Kristjánsdóttir. Nú farin ertu frá okkur elsku vin- kona. Eftir situr mikill söknuður og eftirsjá. Þú varst yndisleg mann- eskja og eru allir sem kynntust þér ríkari fyrir vikið. Það tók ekki lang- an tíma að sjá hversu gífurlegan persónuleika þú hafðir að geyma. Með honum heillaðirðu okkur öll. Það sem mun lifa lengst í minnum okkar er fallega bros þitt og smit- andi hlátur. En það er erfitt að velja eitthvað eitt, því þú varst okkur svo eftirminnileg á allan hátt. Allar skemmtilegu stundirnar og andar- tökin sem verða seint gleymd. Fyrstu stundirnar með þér fólu yf- irleitt í sér að teikna mynd og dróstu fram mikinn listamann í okk- ur öllum. Það var á þessum stund- um sem vináttan óx og órjúfanleg tengsl sem aldrei verða rofin. Við munum alla okkar daga hugsa til þín með hlýju og væntumþykju og finna leið til að viðhalda þessum sterku tengslum. En við áttum einnig með þér ynd- islegar stundir, þar sem þögnin réð ríkjum og þar fengum við tækifæri til að mæta þér þar sem þú varst hverju sinni. Því að geta þagað sam- an segir svo mikið um þá vináttu sem við öll fundum fyrir með þér. Það var svo ómetanlegt að finna traustið sem þú barst til okkar. Við fengum það margfalt tilbaka með vináttu þinni sem þú hafðir enda- laust að gefa okkur. Það sem meira er, við höfðum svo margt af þér að læra. Þú kenndir okkur nærgætni og þolinmæði. Ekki síður að njóta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.