Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 31

Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Raðauglýsingar Tilkynningar                               ! " # $    # %&  ' ( ( )*$ + " ' ( ,  -(- -  # % ." & ( /  (0  " '  1    ( ' ( # +((   ##( # % "  (     2+( 3"0 '   ( (   (  " 4 (-0 +#( 2 (  3" '    ((  0    " "   '  (   ( &  ( 56(7  ' ( ,  (0 #     ' ( , 3"+#0 ."&   # , '   ( # 3" 6 +%%-,  "  (" "   (  823(   20  0 $  "0   2(.    " $  . 0  " 8   8 3#  #'(( ! +(    " (  -  6 (   ((   ,   "  2  (-                   : -  #  #      # %&  ' (((-  20   0  0    " ( $  .  ; ,  ##    -  " +( ((( 8     (( & 8'## ) -  10 # % .  2 TAG PÅ HØJSKOLE I DANMARK Mediehøjskole Offshore Højskolen Højskolen for Politik Højskolen for Internationalt Arbejde Prisen dækker: • fuld pension • enkeltværelse med bad og toilet • undervisning • materialer • og et meget højt serviceniveau kr. 15 .000 +stu diere jse kr. 3. 000 Få tilsendt vores brochure! Esbjerg Højskole Stormgade 200 • 6700 Esbjerg • Tlf. 79 13 74 00 • www.eh.dk • eh@eh.dk 13 ugers højskolekursus 1. marts - 2. juni 2009 Ýmislegt Er ESB langtímasamband? ESB, einu lausn margra, sem telja fullreynt, að hvorug ísl. krónanna sé nothæf, hvorki sú óverðtryggða né sú verðtryggða. Forysta ESB veit hve flókið, illa reglusett og valt ESB er og taldi nauðsyn að þvinga fram, án dóms, þjóðarábyrgð okkar á ICESAVE innlánum og tefja afgreiðslu IMF neyðarláns Íslands. Gengur það á upplýsingaöld? Verði óskað inngöngu, nær Ísland þá að uppfylla aðildarskilyrði áður en, (10 ár?), ESB leggur upp laupana? Brýnt er að velja Íslendingum, án tafa, nýjan gjaldmiðil, t.d. NKR eða USD, ef leyfist! Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti. Félagslíf MÍMIR 6009010519 lll°  HEKLA 6009010519 VI  GIMLI 6009010519 I Þrjátíu pör á jólamótinu fyrir norðan Bridsfélag Akureyrar hefur stað- ið fyrir opnu tvímenningsmóti milli jóla og nýárs um langt árabil þar sem spilarar af Norðurlandi hafa reynt að vinna sér inn flugelda. Í þetta sinn mættu 30 pör til leiks og gaman er að sjá hvað þetta mót er vinsælt á þessu svæði. Sjaldan eða aldrei hefur baráttan á toppnum verið eins jöfn en mótið vannst með einu stigi og aðeins voru 8 stig í 3. sætið. Það voru 5 efstu pörin sem fengu flugeldavinninga ásamt auka- verðlaunum. Páll Þórsson – Pétur Gíslason 58,8% Pétur Guðjónss. – Jónas Róbertss. 58,7% Reynir Helgas. – Frímann Stefánss. 58,2% Þórólfur Jónass. – Stefán Jónsson 56,0% Gylfi Pálsson – Helgi Steinsson 55,8% Starfið eftir áramót hefst á eins kvölds nýárstvímenningi og svo hefst Akureyrarmótið í sveita- keppni 13. janúar. Ennfremur styttist í Svæðamót N-E í sveita- keppni sem er 17.-18. janúar. Jólamót Bridsfélags Rangæinga Jólamót félagsins var haldið í golfskálanum á Strönd, laugardag- inn 27. desember sl., með stuðningi SS, MS og Kjarvals. Spilaður var barómeter og mættu 20 pör til leiks. Úrslit urðu þessi: Sigurður Skagfj. – Torfi Jónsson 62,72% Björn Snorras. – Guðjón Einarsson 59,80% Hermann Friðriks. – Gunnl. Sævars. 59,21% Guðm. Benediktss. – Óskar Pálss. 57,60% Brynjólfur Gests. – Helgi Hermanns. 55,70% Minningarmót um Benedikt Sigurjónsson í Siglufirði Milli jóla og nýárs, sunnudaginn 28. desember, var haldið árlegt minningarmót um fyrrum góðan fé- laga Bridsfélags Siglufjarðar, Bene- dikt Sigurjónsson, sem féll frá fyrir aldur fram fyrir nokkrum árum. Að venju voru höfðinglegar veitingar í boði af hálfu félagsins, auk veglegra verðlauna. Enn sem fyrr var Guð- laug Márusdóttir sem nýlega var getið um í bridsþættinum í bana- stuði og sigraði mótið af miklu ör- yggi, nú með sparisjóðsstjóranum, ömmubarninu sínu, Ólafi Jónssyni. Reyndar kom hún með farandbik- arinn sem fylgir þessu móti í far- teskinu, þar sem hún vann einnig í fyrra, en þá með tengdasyni sínum, Jóni Sigurbjörnssyni, fyrrum for- seta Bridgesambandsins. Hvernig úrslit verða að ári og hvaða makker hún kemur þá með er erfitt að ráða í. Röð efstu par var annars þessi: Guðlaug Márusd. – Ólafur Jónsson 148 Sigurður Hafliðas. – Björn Ólafsson 130 Bogi Sigurbjörnss. – Anton Sigurbjss. 118 Kristrún Halldórsd. – Anna L. Hertervig 116 Mánudaginn 15. desember lauk þriggja kvölda hraðsveitakeppni fé- lagsins þar sem sveitir voru mynd- aðar þannig að efsta par í Siglu- fjarðarmótinu í tvímenningi myndaði sveit með neðsta pari, par númer 2 með næstneðsta pari og áfram. Þannig mættu sjö sveitir til leiks. Strax fyrsta kvöldið tók Kristín Bogadóttir og hennar sveit- arfélagar afgerandi forystu sem aldrei var látin af hendi. Úrslit urðu annars þessi: Sveit Kristínar Bogadóttur 1.462 Sveit Boga Sigurbjörnssonar 1.386 Sveit Önnu Láru Hertervig 1.380 Í sveit Kristínar voru auk hennar Guðrún Jakobína Ólafsdóttir, Har- aldur Árnason og Ari Már Þorkels- son. Að lokum óskar stjórn Brids- félags Siglufjarðar öllum bridsspil- urum gleðilegs nýs árs, með þakk- læti fyrir liðið ár. Einnig bestu þakkir og árnaðaróskir til umsjón- armanns bridsþáttarins í Morgun- blaðinu, Arnórs Ragnarssonar, fyrir ánægjuleg samskipti. Ásmundur og Guðmundur Páll unnu minningarmótið um Jónas P. Sextíu pör mættu til keppni í minningarmótinu um Jónas P. Erl- ingsson. Hann var einn af okkar fremstu og virtustu spilurum. Spilaður var tvímenningur frá kl. 17 til 11.30. Ásmundur Pálsson og Guðmund- ur Páll Arnarson unnu þetta mót, en þeir hertóku fyrsta sætið í loka- umferðinni. Efstu pör: Ásmundur Pálss. – Guðm. P. Arnars. 60,1 Þröstur Ingimarss. – Hermann Láruss. 59,6 Gísli Steingrímss. – Gabríel Gíslason 59,6 Baldv. Valdimars. – Hjálmtýr Baldvins. 57,9 Helgi Sigurðss. – Helgi Jónsson 56,0 Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðarson 56,0 Valur Sigurðss. – Símon Símonarson 55,9 Hermann Friðrikss. – Jón Ingþórsson 54,7 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson norir@mbl.is Snarpir austanvind- ar blása og tími ljóss og friðar að nálgast. Í huga mér kemur kær vinur og mágur, því hann var svo sannarlega mikill jólamaður. Í okkar síðasta samtali í síma á ferð hans í faðm hátíðar heima fyrir kemur í ljós að síðasta vakt hefur verið staðin á Fljótsdal og stefna tekin í áttina heim. Eins og honum einum var lagið hafði allt verið gert klárt þar fyrir jólin og framundan var hvíld og friður. Morguninn eftir opnast himnagátt- ir og harmafregn skellur á mér og fjölskyldu minni, orðið hafði slys og mágur minn var látinn. Veiði- maðurinn mikli hafði endað sína lífsferð við veiðilendur sínar, á Austfjörðum, sem hann hafði sótt svo mikið til, sér til ánægju og hvíldar. Fjöllin há og veiðiárnar margar hafði hann spannað í nokk- ur sumur eftir að hann fluttist austur. Ég hitti mág minn í fyrsta sinn er ég kynntist systur hans. Í móð- urætt sína rekja þau systkinin ætt sína í Meðalland og hefur alla tíð fylgt þeim meiði sjálfsbjörg sterk og dugnaður. Kærleikur var mikill með þeim systkinum sem einstakur var. Fjölskyldan bjó lengst af á Þórsgötu og ólust þau systkin sam- an upp þar. Rúnar fór ungur til sjós á millilandaskip og var þá sigldur lygn sjór. Síðan komu brimsjóir og boðaföll en þá þurfti sterk bein, til að standast áföllin. Í hjónabandi sínu sem upp úr slitn- aði eignaðist Rúnar tvo drengi þá Martein Steinar og Björgvin Elís sem dó ungur aðeins átján ára. Veit ég að það var mági mínum Þór Rúnar Baker ✝ Þór Rúnar Bakerfæddist í Reykja- vík 11. mars 1945. Hann lést af slysför- um í Berufirði 7. des- ember síðastliðinn og var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 22. desember. mikil og óyfirstígan- leg raun og bar hann ætíð harm sinn í hljóði. Enn reyndi á stoð og styrk því fjöl- skyldan þurfti svo fyrir þremur árum einnig að horfa á eft- ir syni og bróður Karli Markúsi sem féll frá á besta aldri. Rúnar var lærður matreiðslumaður og var engum í kot vísað að sitja veislu hjá honum eða njóta ráð- gjafar þar að lútandi, því þar var snillingur á ferð. Eins var eftir- tektarvert á lífsferli Rúnars þessi einstaka tillitssemi og hlýja til ein- staklinga sem minna máttu sín. Hann hélt þeim jafnvel jól því allir skyldu njóta friðar og gleði á jól- um. Laghentur var mágur minn og nutum við systir hans, ég og fjöl- skyldan, oft á tíðum góðs af því. Mágur minn flíkaði ekki mikið tilfinningum sínum eða trú, en ég hafði smávon um að mér tækist að styrkja þann hluta hjá honum. Ég held að mér hafi tekist að opna undir það síðasta þá síðu hjá hon- um, því ég skynjaði meiri mýkt og opinberun í lífi hans. Rúnar hafði eignast vinkonu. Fannst mér þá margt breytast og lund mágs míns verða léttari. Viljum við sérstak- lega þakka henni fyrir sína tilveru. Ég held að það hafi verið kaflinn sem hann var að bíða eftir í lífi sínu. Ég hef trú á að þótt við get- um ekki talað saman nú í síma vikulega eins og áður munum við hafa samband á annan hátt. Ég mun leitast til að hlúa að, í þinn stað, ef mögulegt er, móður þinni, systur, frændsystkinum og syni. Hafðu þökk fyrir allt. Ég kveð þig að sinni, kæri vinur „Í bljúgri bæn“. Þinn mágur og vinur, Guðmundur A. Gunnarsson. Elsku frændi okkar, Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Með fáum orðum viljum við minnast frænda okkar, Þórs Rúnars Baker sem nú hefur verið burt kallaður í blóma lífsins. Fljótt skipast veður í lofti, þú líka farinn frá okkur. Ekki áttum við von á að missa þig svona fljót- lega eftir fráfall bróður þíns, Karls Bender. Mikill missir er að þér, vinur, og er ykkar beggja sann- arlega sárt saknað. Ávallt minn- umst við þess þegar þú komst af sjónum og það undantekningar- laust færandi hendi. Dósaskinka, kjólar og heilu farmarnir af fram- andi leikföngum. Í seinni tíð voru ráð við matargerð auðsótt til þín enda varstu afbragðskokkur. Þú hnýttir flugur allra manna best og varst duglegur við að nota þær í veiðiferðum þínum. Minnisstætt er þegar sá „yngsti“ fór í eina slíka með þér ásamt pabba og Bensa eldri. Urðu þín kynni af Bensa eldri líklega til þess að þinn eigin Bensi kom til sögunnar. Varð hann þér afar kær. Þú varst góður frændi, hjartahlýr og áttir þér draum sem þú deildir með þeim „elsta“ sem hann er skrefi nær í dag og vonar að þú verðir með honum í anda. Ekki má svo gleyma flugferðinni upp á jökul með „miðj- unni“ þar sem þú lékst á als oddi. Við vitum að þú ert eflaust búinn að hitta son þinn og bróður og þið byrjaðir að ræða veiði og allt sem þið áttuð eftir ósagt hver við ann- an. Í huga okkar sjáum við ykkur fyrir okkur á eftirfarandi hátt: er- uð að undirbúa ykkur fyrir næstu veiðiferð, njótið samfunda á ykkar hátt og hlustið í sameiningu á Clapton. Prúðir sækja lón og læki laxar þá. Sumir krækja silungsá. Veiðitækir, sporðasprækir, spretti hörðum á fjalli fýsast ná. (Jónas Hallgrímsson.) Við söknum þín og biðjum að heilsa strákunum, Friðrik Örn, Eva Dögg og Brynjar Freyr. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.