Morgunblaðið - 05.01.2009, Side 32
32 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
4 3 9
1 8 2 5
3 1
5 3 9 7 4
7 9 1 3
3 9 2 8 6
4 2
4 7 5 6
8 6 9
8 3 4
6 1 3 8
4 5 6
9 7 2
4 2 5 3
7 8 1
9 8 7
1 5 2 9
4 2 1
7 8 9 4 5
7 8
5 6 7
3 8 6
9 8 1 7
4 2 8
5 4 9
1 7
9 6 3 2 1
4 7 6 9 3 5 1 8 2
2 1 9 8 7 4 5 6 3
8 3 5 6 2 1 4 9 7
1 4 2 3 9 8 7 5 6
5 9 3 4 6 7 2 1 8
7 6 8 1 5 2 9 3 4
6 2 1 5 4 3 8 7 9
9 5 4 7 8 6 3 2 1
3 8 7 2 1 9 6 4 5
7 9 6 3 1 5 4 8 2
1 5 2 8 4 9 6 7 3
4 3 8 6 2 7 9 1 5
3 8 4 5 7 2 1 9 6
9 6 5 1 8 3 7 2 4
2 7 1 9 6 4 3 5 8
8 2 9 7 3 6 5 4 1
6 4 7 2 5 1 8 3 9
5 1 3 4 9 8 2 6 7
1 5 6 2 4 8 9 3 7
3 2 4 7 9 5 8 6 1
9 7 8 1 6 3 2 4 5
2 6 3 4 8 7 5 1 9
5 8 7 9 1 6 4 2 3
4 9 1 3 5 2 6 7 8
6 4 9 8 7 1 3 5 2
7 3 5 6 2 9 1 8 4
8 1 2 5 3 4 7 9 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er mánudagur 5. janúar, 5. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: En hjálparinn, andinn
heilagi, sem faðirinn mun senda í
mínu nafni, mun kenna yður allt og
minna yður á allt það, sem ég hef sagt
yður. (Jóh. 14, 25.)
Víkverji er alltaf jafn feginn þegarjólahaldinu er að ljúka. Eins og
aðdragandi jólanna er nú skemmti-
legur þá er það nú svo að nokkurs
óhófs gætir jafnan yfir sjálf jólin og
því ekki laust við belging og óþægindi
af salt- og sykurneyslu í kjölfarið. Það
er nauðsynlegt að snúa því við strax
svo ekki verði dröslast með slenið
langt inn á nýárið. Víkverji er því feg-
inn að allir afgangar séu uppétnir og
hægt að endurnýja matarbirgðirnar á
skynsamlegan hátt.
x x x
Börn Víkverja eiga það til að snúasólarhringnum við yfir jólin því
það þarf jú að lesa jólabækurnar og
enginn betri tími til þess en á kvöldin
og á nóttunni. Víkverji minnist þess
sjálfur með ánægju að hafa legið yfir
jólabókunum langt fram á morgun í
jólafríunum og ekki farið á fætur fyrr
en um hádegi. Það voru góðar stundir
og vill Víkverji því ekki vera of harð-
ur við börnin hvað þetta varðar. En
það er viss léttir að skólinn skuli hefj-
ast aftur í dag og regla komist á lífið á
ný. Jafnvel þó að það verði mörgum
börnum erfitt vegna syfju.
x x x
Víkverji er ánægður með veðriðum þessar mundir og snjóleysið
sem enn ríkir. Lífið verður svo miklu
auðveldara þegar veðrið heldur sig á
mottunni og ekki þarf að skafa bílinn
á hverjum morgni. Grámóskan er
óneitanlega meiri í snjóleysinu en
Víkverja þykir það alveg þess virði.
Það er betra að hafa þoku og gráma
en snjó upp að hnjám.
x x x
Víkverji var ánægður með ára-mótaskaupið og naut þess í góð-
um félagsskap. Borgarstjórnarmálin
voru með afbrigðum fyndin, spjátr-
ungar og frekjudósir voru túlkaðar af
mikilli snilld. Hláturinn í salnum fór
þó nokkuð í taugarnar á Víkverja því
að þessi lifandi stemning sem átti að
skila einhverju nýju var hálf-
misheppnuð. Það var eins og hlátri og
klappi væri stýrt og þetta varð þving-
að og vandræðalegt.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fjötur, 4 renn-
ingurinn, 7 ilmur, 8
askja, 9 ílát, 11 labba, 13
valda, 14 stíf, 15 ró, 17
atlaga, 20 snák, 22 hor-
aður, 23 laun, 24 dreg í
efa, 25 togi.
Lóðrétt | 1 klett, 2
ókyrrðin, 3 framkvæma,
4 kná, 5 fiskur, 6 systir,
10 glyrna, 12 væn, 13
starartjörn, 15 efa-
blendni, 16 goð, 18
spjalla, 19 benti á, 20
megni, 21 hönd.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rótartaug, 8 unaðs, 9 næðið, 10 ann, 11 lútan,
13 aurar, 15 stagl, 18 álfur, 21 ugg, 22 ráðin, 23 Óðinn,
24 makalaust.
Lóðrétt: 2 óvart, 3 ausan, 4 tunna, 5 urðar, 6 bull, 7 æð-
ur, 12 agg, 14 ull, 15 særð, 16 auðna, 17 lunda, 18 ágóða,
19 fliss, 20 röng.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4
Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3 Rd7 8.
h5 Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 e6 11.
Bf4 Da5+ 12. Bd2 Bb4 13. c3 Be7 14.
c4 Dc7 15. O-O-O Rgf6 16. Re4 O-O 17.
g4 Rxg4 18. De2 f5 19. Hdg1 Hae8 20.
Re1 e5 21. Rg3 exd4 22. Rxf5 Hxf5 23.
Dxg4 Hf7 24. Bxh6 Bf6 25. Bd2 Re5 26.
De2 d3 27. De4 Db6 28. b3 Dc5 29. h6
Da3+ 30. Kd1 Dxa2
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í Elista í
Rússlandi. Franski stórmeistarinn Eti-
enne Bacrot (2705) hafði hvítt gegn
ungverska kollega sínum Peter Leko
(2747). 31. Dh7+! og svartur gafst upp
enda óverjandi mát bæði eftir
31…Kxh7 32. hxg7+ og 31…Kf8 32.
Bb4+.
Hvítur á leik
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ungi maðurinn.
Norður
♠K107
♥--
♦ÁD107
♣D109654
Vestur Austur
♠-- ♠DG6
♥K10865 ♥DG9742
♦K9652 ♦84
♣872 ♣KG
Suður
♠Á985432
♥Á3
♦G3
♣Á3
Suður spilar 6♠.
Frank Stewart segir eftirfarandi
sögu úr kúbblífinu: Í suður var ungur
maður, vel skólaður í tæknihliðum
spilamennskunnar. Ungi maðurinn var
nýliði í klúbbnum og vildi sýna hvað
hann gæti. Hann trompaði hjartaút-
spilið, lagði niður ♠K og sá að vörnin
átti slag á tromp. Þar með leit út fyrir
að ♦K yrði að liggja fyrir svíningu, en
til að sýna kunnáttu sína lagði sagnhafi
næst niður ♣Á – ef kóngurinn er
blankur er tígulsvíningin óþörf. Sagan
hefði aldrei orðið til ef austur hefði
fylgt með gosanum í ásinn, en hann lét
kónginn! Ungi maðurinn rétti úr sér í
sætinu þegar hann svínaði næst lauf-
tíu, en lak svo hálfur undir borðið þeg-
ar austur drap á gosann. Austur var
enginn snillingur, en hann var með
gömul tvískipt gleraugu og ruglaðist
stundum á karlpeningnum í stokknum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nýtt verkefni er að hefjast. Verð-
launin verða ekki veitt fyrir mestu hæfi-
leikana, heldur þeim sem þróar með sér
eins mikla hæfileika og mögulegt er.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ertu eitthvað pirraður í dag?
Kannski af því að þú ert með of mikið á
þinni könnu og tíminn að hlaupa frá þér.
Láttu hana bara róa, leitaðu á önnur mið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú finnur eflaust eitthvað til
þess að gefa góðum málstað í dag. Vertu
því jafnan viðbúinn og mundu að hver er
sinnar gæfu smiður.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefðir gott af því að tala við
góðan vin í dag. Leitaðu á önnur mið því
það er fullt af öðrum fiskum í sjónum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Heppnin virðist vera með þér núna
og þú munt áður en langt um líður upp-
skera laun erfiðis þíns. Í dag er kjörið
tækifæri til að byrja upp á nýtt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú verður ekki lengur undan því
vikist að sinna því fólki sem þú hefur van-
rækt að undanförnu. Athugaðu að vin-
kona þín nennir ekki að gera allt fyrir þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Æ sér gjöf til gjalda segir máltækið.
Leyfðu hlutunum að gerjast og taktu svo
málið skipulega fyrir. Nauðsynlegt er að
kynnast nýju fólki og öðrum skoðunum en
þú ert vanur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þótt alltaf sé gaman að kynn-
ast nýju fólki skaltu fara þér hægt og
kynna þér málin áður en þú tekur nokkra
ákvörðun um framhald.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Einbeittu þér að hverju verk-
efni fyrir sig og leystu þau eitt af öðru.
Með lagni og léttri lund hefst þetta allt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Settu það í forgang að verða
öðrum að liði því það gefur sjálfum þér
mest. Búðu þig undir að til þín verði leitað
varðandi önnur störf.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú átt enn langt í land með að
klára það verkefni, sem þú beinir mestri
orku að. Ekki taka áhættu þó að þú viljir
vera sjálfstæður og teljir að þú þarfnist
ekki leiðsagnar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þig langar til að hafa muni er
tengjast fortíðinni í kringum þig. Sýndu
þolinmæði gagnvart mönnum og mál-
efnum og sæktu það sem þú vilt með lip-
urð og festu.
Stjörnuspá
5. janúar 1848
Franskir skipbrotsmenn komu
að landi í Breiðdal. Þeir höfðu
lagt af stað frá Noregi til
Frakklands í október en hrak-
ist í hafi.
5. janúar 1874
Stjórnarskrá „um hin sérstöku
málefni Íslands“ var staðfest
af konungi. Hún tók gildi 1.
ágúst. Alþingi fékk þá löggjaf-
arvald og fjárveitingavald.
Þetta var fyrsta stjórnarskrá
landsins. Henni var breytt 18.
maí 1920 og hún gilti að mestu
óbreytt fram að lýðveld-
isstjórnarskránni 17. júní
1944.
5. janúar 1931
Fyrsta barnið fæddist á Land-
spítalanum, en hann var tek-
inn í notkun tveimur vikum áð-
ur. Þennan sama dag 62 árum
síðar, árið 1993, voru nítján
fæðingar á fæðingardeild
Landspítalans, en það var met.
5. janúar 1941
Dreift var fjölrituðu bréfi til
breskra hermanna og þeir
hvattir til að ganga ekki í verk
Íslendinga sem voru í verk-
falli. Breska herstjórnin leit á
þetta sem áskorun til her-
manna um að efna til uppreisn-
ar. Fjórir menn voru dæmdir
fyrir verknaðinn. Þetta var
nefnt dreifibréfsmálið.
5. janúar 1946
Kvikmynd um lýðveldishátíð-
ina 17. júní 1944 var frumsýnd.
Þetta var fyrsta kvikmyndin
sem tekin var á Íslandi með
tónum, tali og í „eðlilegum lit-
um“.
5. janúar 1983
Lægð, ein sú dýpsta sem sögur
fara af (932 millibör), gekk yfir
landið og olli truflunum á sam-
göngum en ekki teljandi tjóni.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
ÞJÓÐSÖGURNAR herma að síðasti jólasveinninn fari heim á þrett-
ándanum, en þá eru þrettán dagar liðnir frá aðfangadag. Flestir
fagna lok jólahátíðarinnar á þrettándanum með einhverjum hætti.
Það er m.a. gert með því að skjóta upp flugeldum.
Þrettándinn á morgun
Morgunblaðið/RAX
Nýirborgarar
Kaupmannahöfn Nadia
Úrsúla fæddist 24. októ-
ber kl. 17.26. Hún vó 3.750
g og var 54 cm löng. For-
eldrar hennar eru Elín
Helga Gunnarsdóttir og
Jón Páll Rink.
Neskaupstaður Hilmir
Bjólfur fæddist 28. októ-
ber kl. 6.09. Hann vó 3.740
g og var 52 cm. Foreldrar
hans eru Halla Dröfn Þor-
steinsdóttir og Sigurjón
Þórir Guðmundsson.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum
á barn@mbl.is