Morgunblaðið - 05.01.2009, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.01.2009, Qupperneq 34
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is VÍKINGUR Heiðar Ólafsson píanó- leikari er um þessar mundir að út- setja og skrifa íslensk sönglög til einleiks á píanó. Sönglögin verða hluti af tónleikum hans á Listahátíð í Reykjavík í vor en það verða jafn- framt fyrstu einleikstónleikar Vík- ings í Háskólabíói. „Ég hef lengi haft það bak við eyr- að að útsetja íslensk sönglög fyrir einleikspíanó. Ég hugsa þá líka til þess að ég geti spilað þau í útlönd- um.“ Sönglögin taka á sig svip einleiksverka fyrir píanó Víkingur segist verða búinn að umrita átta til tíu lög í vor og er bú- inn með fjögur þeirra. „Þessar mel- ódíur sumar sem við eigum tel ég að séu með því fegursta sem hefur verið samið. Tökum sem dæmi Ave Maríu eftir Kaldalóns, sem ég er búinn að útsetja fyrir löngu, hún er ótrúlegt tónverk. Fræðilega séð er alveg brilliant strúktúr á þessari einföldu laglínu. Ég veit ekki hvort Sigvaldi Kaldalóns var nokkuð að pæla í því þegar hann samdi lagið, en þannig er það samt.“ Sum íslensku sönglagaskáldanna höfðu takmarkaða tónlistar- menntun, og segir Víkingur að vissu- lega hafi þau ekki alltaf gert píanó- inu nægilega hátt undir höfði. „Það er erfitt að segja það þannig að það hljómi rétt, en ég tel að með góðum píanóútsetningum og meira afger- andi píanóparti megi lyfta þessum fallegu laglínum enn hærra, án þess að ég vilji draga athyglina um of að píanóinu.“ Eiga erindi við fleiri Víkingur Heiðar ætlar ekki að láta staðar numið með sönglögin á Listahátíð. Þau fara með honum lengra. „Mig langar að fara með þau út í heim og taka þær upp, því ég er viss um að þau eiga erindi við stærri hlustendahóp.“ Kínverjar kunnu vel að meta Fyrr í vetur var Víkingur Heiðar í tveggja vikna tónleikaferð í Kína. Þar prófaði hann tvö sönglaganna á kínverskum hlustendum. „Jafnvel þar, svona ótrúlega langt í burtu og í menningarsamfélagi sem er svo ólíkt okkar, voru viðbrögðin við íslensku sönglögunum gríðarlega sterk. Á sumum stöðunum var ég að halda fyrstu píanótónleika sem höfðu nokkru sinni verið haldnir þar. Samt var fólk að tala um okkar lög, þótt það hafi verið að hlusta á Beethoven, Brahms og Bach á undan. Ég hef mikla trú á þessari tónlist og því sem hægt er að gera með hana.“ Velur þau fallegustu Valið á lögunum er einfalt. Vík- ingur Heiðar velur einfaldlega þau sem honum finnst fallegust. „Ég verð þó að passa mig því að ég er svo veikur fyrir fallegum og hægum lög- um. En ég er nú búinn að gera kraft- mikla útsetningu á Á Sprengisandi, sem ég á fullt í fangi með að spila, og geri kannski fleiri slíkar. Ég er þó mest búinn að vera í Sigvalda og Emil Thoroddsen núna til að byrja með. Þetta eru lögin sem maður fékk með móðurmjólkinni og standa mér næst. Þetta er gaman, og mér finnst frábært að syngja línuna með píanó- partinum – þá get ég ráðið bæði því hvernig laglínan er sungin og hvern- ig píanóið hljómar með. Kannski er það of mikil stjórnsemi sem brýst þarna fram?“ spyr Víkingur og hlær og spurður hvort hann stefni þá að því að gera söngvara óþarfa, hlær hann meira og segir: „ja, kannski að einhverju leyti. En þó, þetta er allt öðruvísi, útlendingarnir hafa til dæmis aldrei heyrt lögin sungin, með texta. Lögin standa bara full- komlega fyrir sínu þannig.“ Víking Heiðar langar að prófa sig meira áfram á þessari braut, og eftir námið hefur hann meiri tíma til að sinna hugðarefnum eins og eigin tónsköpun. „Núna hef ég meiri tíma en áður og nýt þess mjög. Ég finn það að mig langar að fikta mig áfram við eigin verk. Það er ekki auðvelt að byrja á því af alvöru þótt ég hafi byrjað að fikta við það tíu ára. Ég hef mörg og háleit viðmið, og það gerir þetta ekki auðveldara að þekkja Bach og Beethoven þá félaga alla mjög vel. Ég er kannski svolítið spéhræddur til að byrja með, en finn að ég verð að halda áfram. Þetta er nýtt fyrir mér og svo hrikalega gef- andi. Það kitlar mig að prófa hvert ég kemst með eigin músík. Næsta verk verður að velja mér falleg ljóð og smíða mín eigin sönglög. Þetta er mjög skemmtilegt og ég finn að ég fer að hugsa öðruvísi um tónlistina þegar ég kem að henni frá hlið tón- skáldsins. Það hefur áhrif á túlkun mína sem píanóleikara og veitir mér betri sýn yfir heildina í tónlistinni. Um þessar mundir hrífst ég mest af slíkri alhliða nálgun á tónlist. Sjáðu til dæmis hvað Daniel Barenboim er flottur. Hann er bæði píanóleikari, kammermúsíkant og hljómsveit- arstjóri! Hann hefur verið mér mikil fyrirmynd á árinu.“  Víkingur Heiðar Ólafsson er farinn að semja tónlist  Hann vinnur nú að útsetningum íslenskra sönglaga fyrir einleikspíanó  Tónleikar á Listahátíð Morgunblaðið/G.Rúnar Víkingur „Þessar melódíur sumar sem við eigum tel ég að séu með því fegursta sem hefur verið samið.“ Ég hef mikla trú á sönglögunum 34 Menning MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 VIÐ opnun sýn- ingarinnar Sol- itude í Neues Kunsthaus Ahrenshoop í Norðaustur- Þýskalandi á dög- unum, hlaut Hrafnhildur Sig- urðardóttir myndlistarkona verðlaunin „Neu- es Kunst hat Freunde“ fyrir verk sitt Offlæði – Waste. Á sýningunni getur að líta verk eftir listamenn frá Þýskalandi, Lett- landi og Íslandi sem unnin voru út frá völdum bókmenntatextum eða ljóðum. Verkið Offlæði – Waste rím- aði við ljóð Andra Snæs Magnasonar Regnboginn, en ásamt honum var Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur textasmiður á sýningunni. Aðrir ís- lenskir myndlistarmenn sem þátt tóku voru Jeanette Castoni, Ragn- hildur Stefánsdóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir, en Rúrí var sér- stakur heiðurslistamaður sýning- arinnar með verk sitt Sökkvun – Flooding, Nature Lost. Offlæði verðlaunað Verk eftir Hrafnhildi Sigurðardóttur Hluti verðlauna- verks Hrafnhildar. Í SÁDI-Arabíu er öll tónlist önnur en trúarleg tónlist tengd íslam bönn- uð. Klassísk tónlist, jafnt arabísk sem vestræn, heyrist því ekki op- inberlega, en netvæddir ein- staklingar geta þó leyft sér að stel- ast í aðra músík í skjóli fjögurra veggja heimilis- ins. Fyrir skömmu skrifaði sádískur blaðamaður, Ha- lima Mudhaffar, grein í eitt helsta dagblað landsins, Al-Watan, þar sem hann hvatti til þess að tónlistarbanninu yrði af- létt og tónlistarkennsla tekin upp í skólum, einkum grunnskólum. „Vís- indalegar rannsóknir hafa sýnt fram á að tónlist gagnist börnum á marg- an hátt og stuðli að tilfinningalegu jafnvægi og bæti minni og náms- hæfileika,“ sagði Mudhaffar í grein- inni. Hann tók þó skýrt fram að hann ætlaðist ekki til þess að sádísk börn yrðu kynnt fyrir því háværa drasli sem hann segir vestræna dæg- urtónlist vera, heldur ætti hann við hágæðatónlist sem vestræn tónskáld eins og Beethoven, snillingurinn Mozart og arabíski klassíkerinn Mo- hammed Abdel Wahab og fleiri hefðu samið. Í grein sinni taldi blaðamaðurinn sádíski upp fleiri kosti þess að hlusta á tónlist, en bætti svo við að því mið- ur hefðu öfgatrúarmenn í landinu komið í veg fyrir að almenningur gæti notið lista og því væri tímabært að berjast gegn stefnu þeirra og hvetja menntamálaráðuneytið til að taka skref í átt að því að listir verði almennt viðurkenndar sem náms- greinar. „Bann við því að hlustað sé á tónlist, og jafnvel við því að hún sé notuð í leiksýningum eykur hættuna á því að heilu kynslóðirnar vaxi úr grasi án þess að hafa nokkurn tíma heyrt góða tónlist.“ Blaðamaður gagnrýnir tónlistarbann Mohammed Abdel Wahab HLJÓMSVEITIN Riot, Hall- dór Bragason, Björn Thorodd- sen, Karl Olgeirsson, Ásgeir Óskarsson og Jón Rafnsson, heldur tónleika á Rósenberg í kvöld kl. 21. Seiðurinn sem Riot fremur verður lífræn hreyfing loftmólikúla sem verða notuð til að mótmæla poppi, blús, djasstónlist og jóðli. „eins og olía og vatn“, sagði Ríkarður Örn Pálsson gagnrýnandi eitt sinn um samspil gítarleikaranna Halldórs og Björns „...þegar mættust virtúó- skammerdjassfimi Thoroddsens og sálarþrunginn blússláttur Halldórs er stundum skartaði nístandi flöskuhálsskrensi af stálgyrtum litlafingri.“ Tónlist Riot mótmælir á Rósenberg Dóri skartar stál- gyrtum litlafingri. KARL Aspelund heldur fyr- irlestur á miðvikudagskvöld kl. 20-22 í húsakynnum Heimilis- iðnaðarfélagsins að Nethyl 2e. Fyrirlesturinn ber yfirskrift- ina „Um kvenbúninga heimsins á upphafsárum nýrrar aldar“ en einnig verður boðið upp á umræður. Karl undirbýr dokt- orsritgerð um þjóðbúninga. Hann kennir fatahönnun við University of Rhode Island og stundar doktorsnám við Boston University. Áhugasvið hans er samspil fatahönnunar og sjálfsmyndar þjóða og um þessar mundir er hann að hefja rannsókn á stöðu og merkingu þjóðbún- inga kvenna á Íslandi í dag. Hönnun Karl talar um kven- búninga heimsins Karl Aspelund Í KVÖLD, mánudag, verður fyrsti gjörningur ársins á veg- um Bebopfélags Reykjavíkur en félagið er að hefja sitt þriðja starfsár. Um tónleika á Kaffi Kúltúre við Hverfisgötu er að ræða og hefjast þeir klukkan 22. Félagarnir Haukur Gröndal og Óskar Guðjónsson ríða á vaðið á þessari fyrstu uppá- komu ársins, en þeir eru tveir af okkar kunnustu saxófónleikurum. Gert er ráð fyrir því að ýmsir hljóðfæraleikarar stígi á svið og leiki með þeim Hauki og Óskari. Bebopfélagið stefnir að því að halda tónleika fyrsta mánudag hvers mánaðar. Djass Haukur og Óskar hjá Bebopfélaginu Haukur Gröndal og Óskar Guðjónsson. Mótmælendur Ís- lands – skilja þeir ekki að góðir hlutir gerast hægt? 41 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.