Morgunblaðið - 05.01.2009, Page 37

Morgunblaðið - 05.01.2009, Page 37
37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2009 Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins 551 1200 | midasala@leikhusid.is Miðasalan er opin alla daga frá kl. 12:30 til 18:00 og öll sýningarkvöld til kl. 20. Miðapantanir teknar í síma alla virka daga frá kl. 10:00. Stóra sviðið Hart í bak Fös 9/1 kl. 20:00 Ö Sun 18/1 kl. 20:00 Ö Lau 24/1 kl. 20:00 Sun 25/1 kl. 20:00 Ath. aukasýningar í sölu Kardemommubærinn Lau 21/2 frums. kl. 14:00 U Sun 22/2 kl. 14:00 Ö Sun 22/2 kl. 17:00 Ö Lau 28/2 kl. 14:00 Ö Sun 1/3 kl. 14:00 Ö Sun 1/3 kl. 17:00 Ö Sumarljós Lau 10/1 6. sýn. kl. 20:00 Sun 11/1 7. sýn. kl. 20:00 Fös 16/1 8. sýn. kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Fim 22/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00 Verk byggt á skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin Kassinn Heiður Þri 20/1 fors. kl. 20:00 Ö Mið 21/1 fors. kl. 20:00 Ö Fim 22/1 fors. kl. 20:00 Ö Lau 24/1 frums. kl. 20:00 U Sun 25/1 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Athugið snarpt sýningatímabil Kúlan Klókur ertu - Einar Áskell Sun 11/1 kl. 13:30 Sun 11/1 kl. 15:00 Örfáar aukasýningar í janúar Borgarleikhúsið 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 10:00-18:00, miðvikudaga til föstudaga kl. 10:00-20:00, og laugardaga og sunnudaga kl. 12:00-20:00 Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið) Lau 10/1 kl. 19:00 U Sun 11/1 kl. 19:00 U Lau 17/1 kl. 19:00 U Sun 18/1 aukas kl. 19:00 Lau 24/1 kl. 19:00 U Sun 25/1 kl. 16:00 Ö Lau 31/1 kl. 19:00 U Yfir 50 uppseldar sýningar! Tryggið ykkur nú miða í janúar! Fló á skinni (Stóra sviðið) Fös 9/1 kl. 19:00 Ö Fös 16/1 kl. 19:00 Ö Fös 23/1 kl. 19:00 Ö Fös 30/1 kl. 19:00 Yfir 130 Uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins! Laddi (Stóra svið) Þri 20/1 kl. 20:00 Ö ný aukas Lau 24/1 ný aukas kl. 20:00 Fim 29/1 ný aukas kl. 20:00 Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla svið) Fös 6/2 frums kl. 20:00 U Lau 7/2 2kortas kl. 19:00 U Lau 7/2 aukas kl. 22:00 Ö Sun 8/2 3kortas kl. 20:00 U Mið 11/2 4kortas kl. 20:00 U Fim 12/2 5kortaskl. 20:00 U Fös 13/2 6kortaskl. 19:00 U Fös 13/2 aukas kl. 22:00 Lau 14/2 aukas kl. 19:00 Lau 14/2 aukas kl. 22:00 Fös 20/2 7kortas kl. 19:00 Lau 21/2 8kortas kl. 19:00 Lau 21/2 aukas kl. 22:00 Lau 21/2 aukas kl. 22:00 Sun 22/2 9kortas kl. 20:00 Miðasala hefst í dag kl. 10.00 Rústað, eftir Söru Kane (Nýja sviðið) Fös 30/1 frums kl. 20:00 U Lau 31/1 2. kort kl. 20:00 U Sun 1/2 3. kort kl. 20:00 U Fim 5/2 4. kort kl. 20:00 Ö Fös 6/2 5. kort kl. 20:00 Ö Lau 7/2 6. kort kl. 20:00 Ö Miðasala hefst 9.janúar. Ath! bannað börnum og alls ekki fyrir viðkvæma. Leikfélag Akureyrar 460 0200 | midasala@leikfelag.is Falið fylgi (Rýmið) Fös 16/1 frums. kl. 20:00 U Lau 17/1 2. kort kl. 19:00 U Lau 17/1 hátíðar kl. 22:00 U Fim 22/1 3. kort kl. 20:00 U Fös 23/1 4. kort kl. 19:00 U Lau 24/1 5. kort kl. 19:00 U Lau 24/1 aukas kl. 22:00 Sun 25/1 6. kort kl. 20:00 U Fim 29/1 7. kort kl. 20:00 U Fös 30/1 8. kort kl. 19:00 U Lau 31/1 9. kort kl. 19:00 U Sun 1/2 10. kortkl. 20:00 U Fim 5/2 11. kortkl. 20:00 U Fös 6/2 12. kortkl. 19:00 U Lau 7/2 13. kortkl. 19:00 U Sun 8/2 14. kortkl. 20:00 U Forsala hefst 5. janúar 2009 Systur (Leikfélag Akureyrar) Fös 23/1 1. sýn. kl. 20:00 Lau 24/1 2. sýn. kl. 20:00 Danssýning Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Lau 10/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Þri 20/1 aukas. kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 17:00 þorrablót eftir sýn.una Fös 30/1 kl. 20:00 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið) Fös 9/1 kl. 20:00 U Lau 17/1 kl. 20:00 U Fös 23/1 kl. 20:00 Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið Draumasmiðjan 8242525 | elsa@draumasmidjan.is Ég á mig sjálf (farandsýning) Lau 17/1 kl. 15:00 F Fim 29/1 kl. 00:00 F Fim 29/1 kl. 00:00 F Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Janis 27 Lau 10/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00 Iðnó 562 9700 | idno@xnet.is Systur Lau 31/1 frums. kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Dómur Morgunblaðsins Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Dubbeldusch (Hafnarfjarðarleikhúsið) Lau 10/1 kl. 20:00 Sun 11/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00 Steinar í djúpinu (Hafnarfjarðarleikhúsið) Sun 18/1 aukas. kl. 20:00 Sun 25/1 aukas. kl. 20:00 Takmarkaður sýningarfjöldi Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Febrúarsýning2009 (Stóra sviðið) Fim 5/2 frums. kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Sun 8/3 kl. 20:00 GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið 4201190 | grindviska.gral@gmail.com 21 MANNS SAKNAÐ (Grindavík) Sun 11/1 aukas. kl. 20:00 Sun 18/1 aukas. kl. 20:00 Sun 25/1 aukas. kl. 20:00 Sun 1/2 aukas. kl. 20:00 FRÁBÆR GJAFAKORT Í JÓLAPAKKANN!!! - Upplýsingar á grindviska.gral@gmail.com Möguleikhúsið 5622669 / 8971813 | moguleikhusid@moguleikhusid.is Langafi prakkari (ferðasýning) Þri 24/2 kl. 12:40 F ísaksskóli Þri 24/2 kl. 13:50 F ísaksskóli Sæmundur fróði (ferðasýning) Fös 16/1 kl. 10:00 F ártúnsskóli ÞAÐ kann að koma á óvart hvaða tónlistarmenn héldu oftast tón- leika á stórum tónleikastöðum í Bretlandi á nýliðnu ári: það voru gömlu rokkrefirnir í Status Quo. Af upprunalegu meðlimunum eru Francis Rossi og Rick Partfit enn að – sá síðarnefndi kemst formlega á ellilaun síðar á árinu. Hann segir samt við The Sun að ekkert jafnist á við að leika op- inberlega. Status Quo léku fyrir um 300.000 gesti á 35 tónleikum. Á næstflestum tónleikum, eða 34, léku Take That. Í kjölfarið komu Kaiser Chiefs, Sugarbabes og Spice Girls. Óbreytt ástand Félagarnir í Status Quo rokka enn í gallabuxunum – á fleiri tónleikum en flestir. Status Quo enn vinsælir Um tveir áratugir eru síðan ég fyrst sá Jóhann Jó- hannsson og heyrði. Hann fór þá fyrir prýðilegri nýrokksveit, Daisy Hill Puppy Farm, sem óneit- anlega minnti á hina bresku Jesus & Mary Chain. Síðan hefur sitthvað gerst og gott á ferli Jóhanns. Hljómsveitin Lhooq var vel heppnuð og tvímæla- laust með athyglisverðustu verkefnum tónskálds- ins, en landsmenn þekkja sjálf- sagt betur til hins gáskafulla Apparat Organ kvartetts sem og hljómsveitarinnar Ham. Það er þó sólóferill Jóhanns sem stendur upp úr, með ýmsum einkar vel heppnuðum kompó- neringum við leikrit, dansverk og kvikmyndir. Og margar eru þær fáanlegar á harla fínum plötum eins og Engla- börn og Virðulegu forsetar. Fordlândia nefnist nýjasta plata Jóhanns, í höf- uðið á goðsagnakenndu landsvæði sem bílafram- leiðandinn Henry Ford festi kaup á í frumskógum Amazon forðum daga. Lengra nær þó bílateng- ingin ekki, því hér er auðvitað ekki um eitthvert dekkjaverkstæðisrokk að ræða. Rifinn rafgít- arhljómur Jóhanns frá dögum Daisy Hill hefur fyr- ir löngu orðið að víkja fyrir slaghörpum ýmiskonar og útsetningum fyrir hefðbundin symfónísk hljóð- færi. Tónsmíðar Jóhanns á Fordlândiu eru um- deilis áhrifamiklir, en auk þess heyrist Jóhann sjálfur rifja farsællega upp gömul rafgítarkynni. Úr upphafsverkinu leiðir Jóhann okkur beint og snilldarlega inn í það næsta, „melodia (i),“ þar sem klarínetta tekur samviskusamlega við g-moll kefl- inu. Guðni Franzson blæs þar og vel, þennan stutta en stórgóða ópus. Áfram líða svo verkin, eitt af öðru og alls ellefu talsins. Áðurnefndur g-moll er framan af í hávegum hafður og Jóhann lætur verk- in viljandi kallast svolítið á. Þannig má segja að fyrrnefnd „melodia“ sé hér raunar í fjórum mis- munandi útgáfum og hæglega mætti svo leika nokkurn veginn sömu laglínuna ofan á enn fleiri ópusa. Það er sumsé ákveðinn strúktúr hljóma og stefja gegnumgangandi á Fordlândiu; en með- höndlunin er góðu heilli svo listræn og fjölbreytileg að aldrei verður platan mónótónísk á að hlýða. Tóntegundirnar eru og fleiri en „bara“ g-moll. Erfitt er að taka eitthvað eitt út úr svo sterkri heild sem Fordlândia vissulega er. „Chimaerica“ hreyfði þó sérstaklega við mér, enda einstaklega fagurt orgelverk og raunar svo töfrandi að eftirlæti mitt, sjálft „Adagio“ Albinonis, kom strax upp í hugann. Ekki skal þó skilja sem svo að um ein- hvers konar stælingu sé að ræða. Því fer fjarri. Jó- hann er fullmótaður og stílhreinn listamaður sem fellur hvorki í þá gryfju að stæla um of né að láta einhvern tilgerðarlegan „frumleika“ bera lagrænu ofurliði. Fordlândia er frábær vitnisburður um eitt af okkar allra bestu tónskáldum, Jóhann Jóhanns- son. fram allt angurværar; hér er einhver ljúfsár tregi sem jafnan er fagur og aldrei yfirþyrmandi. Smíð- arnar eru vel lagrænar og í eðli sínu fremur ein- faldar, þótt útsetningar séu margbreytilegar og um margt flóknar. Platan hefst á forkunnarfögru og næstum fjór- tán mínútna löngu titilverkinu, í g-moll, þar sem dýnamíkin er í öndvegi. Þannig stóð ég mig að því að hækka græjurnar í botn, svo nema mætti lága og kraumandi upphafstónana. Um mínútu síðar þurfti ég svo auðvitað aftur að lækka! Þótt verkið sé langt og grunnhljómarnir fáir, þar sem þrástefj- að er ótt og títt, tekst Jóhanni að halda manni hug- föngnum með snilldarlegri útsetningu. Áðurnefnd dýnamíkin er þar lykilatriði, auk óteljandi hárfínna og síbreytilegra blæbrigða sem leiða þó aldrei til óþægilegrar ómstríðu. Þessu skilar Fílharmónían í Prag af mikilli prýði, þar sem strengirnir eru sér- Fyrirtaks Fordlândia TÓNLIST Geisladiskur Jóhann Jóhannsson – Fordlândiabbbbm Frábær „Fordlândia er frábær vitnisburður um eitt af okkar allra bestu tónskáldum.“ Orri Harðarson Fordlandia DANIEL Craig hefur nýlokið hring- ferð um fjölmiðla heimsins, við að kynna nýjustu Bond-myndina, en er mættur aftur í kynningasirkusinn, með gjörólíka kvikmynd. Í Defiance leikur hann bónda af gyðingaættum, einn þriggja bræðra í Hvíta- Rússlandi, sem stunduðu skæru- hernað gegn hersveitum nasista. Á leikferlinum hefur Craig, sem er fertugur, leikið ólíkar mann- gerðir, allt frá glæpamanni yfir í ljóðskáld. Hann hefur barist gegn því að festast í hlutverkum. „Í fyrsta skipti sem ég kom til L.A. virtust öll hlutverk sem buðust vera nasisti eða illmenni,“ sagði hann í The Times. „En ég vildi geta leikið hvað sem er.“ Hlutverk James Bond hefur nú gert Craig að einum þekktasta Breta samtímans, og hann er orðinn sterkefnaður, en hann segist reyna að líta ekki á leikinn sem viðskipti heldur muna hvað fékk hann til að verða leikara til að byrja með. „Ég hef alltaf viljað leika,“ segir Craig, en móðir hans fór oft með hann í leikhús í Liverpool, þar sem þau bjuggu. „Mér þótti það hreint makalaust að fólk skyldi vera eina mínútu á sviði, og koma svo af því og vera allt öðruvísi. Það voru töfrar. Og hafði mjög mikil áhrif á mig.“ Skýst ekki á barinn Craig viðurkennir að velgengnin sé ánægjuleg en segist þó enn ekki hafa áttað sig á henni. „Auðvitað hefur þetta breytt öllu. Lífinu var snúið á haus. Allt í einu þekkja mig allir. Ég get ekki farið út án þess að þekkjast. Í sannleika sagt þá er það hroðalegt. Maður getur ekki lengur skotist á barinn. Á móti segir fólk, ertu ekki leikari, viltu ekki hafa þetta svona? En ég leik ekki til að verða þekktur. Ég leik vegna þess að ég fæ mikið út úr því. Ég er ekki að kvarta, en ég hef þurft að endurmeta hvernig ég horfi á heiminn, á það líf sem ég lifi. Ég vissi að ég myndi þurfa þess – en ég hafði ekki undirbúið það.“ Reuters Leikarinn Craig og unnustan, fram- leiðandinn Satsuki Mitchell. Craig segir líf- inu snúið á haus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.