Morgunblaðið - 28.02.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009
VÍST er að erlendir menn hafa ekki
gegnt embættum hér á landi um
áratugaskeið, en það tíðkaðist þó
skiljanlega áður en Ísland varð full-
valda ríki.
„Dæmin eru til, þó að Danir væru
nú ekki sólgnir í embætti á Íslandi á
þessum tíma,“ segir Sigurður Lín-
dal. Hann telur sennilegast, með
fyrirvara þó, að sá síðasti sem
gegndi embætti þrátt fyrir erlent
ríkisfang hafi verið Marinius Eskild
Jessen, skólameistari Vélskóla Ís-
lands, á árunum 1915 til 1955.
„Eftir að Ísland verður sjálfstætt
ríki 1918 með sambandslögunum
þá er jafnræðisákvæði í lögunum,
svo danskir og íslenskir ríkisborg-
arar njóta gagnkvæmra réttinda í
hvoru landinu fyrir sig. Íslendingar
gátu þá verið embættismenn í Dan-
mörku og Danir á Íslandi.“
Eftir að lýðveldið var stofnað
1944 héldu þeir menn sem þau
höfðu réttindum um gagnkvæman
ríkisborgararétt, en þau endurnýj-
uðust ekki. Þannig gátu menn eins
og Jessen gegnt áfram embætti
þrátt fyrir ákvæði stjórnarskrár-
innar. „En þetta var sérstakt
ákvæði sem er dottið upp fyrir og
ekkert hægt að skírskota í það.“
Vel þekkt
í eina tíð
Síðasti erlendi emb-
ættismaðurinn 1955
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
EIN ástæða þess að Svein Harald
Øygard tók að sér að stýra Seðla-
bankanum og þjóðinni út úr banka-
kreppu og efnahagshruni er hversu
harðdugleg íslensk þjóð er. Það
sagði hann á fyrsta blaðamannafundi
sínum sem nýr seðlabankastjóri.
Øygard tók ekki afstöðu til þess
hvort og hvenær stýrivextir yrðu
lækkaðir. Nú yrði aðalverkefnið að
styrkja gengi krónunnar. Spurður
hvort hann teldi Seðlabankann njóta
trausts svaraði hann játandi.
Øygard fær bestu einkunn
Svein Harald Øygard lauk meist-
araprófi í hagfræði frá Óslóarhá-
skóla árið 1985, með þjóðhagfræði
sem aðalgrein, þá 25 ára gamall.
Hann hefur víðtæka reynslu um all-
an heim af ráðgjafarstörfum og
framkvæmdastjórn hjá McKinsey &
Company.
„Svein Harald Øygard fær topp-
einkunn hjá þeim sem ég hef talað
við,“ segir Þórólfur Matthíasson,
hagfræðiprófessor við Háskóla Ís-
lands. Þórólfur lærði í sama skóla og
Øygard í Ósló og segir leiðbeinanda
sinn þar gefa seðlabankastjóranum
toppeinkunn. Fagmaður sem Øyg-
ard styrki bankann. „Hann hefur
þekkingu á því hvernig er að leiða
bankakerfið í gegnum kreppu, eins
og Norðmenn gerðu í upphafi tíunda
áratugarins.“
Jens Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, var fyrsti gestur nýs
seðlabankastjóra. Hann sagði norsk
stjórnvöld hafa bent þeim íslensku á
Øygard, sem hefði leitt til ráðningar
hans. Hann væri feikiduglegur og
fær. Það vissi hann sjálfur enda
væru þeir gamlir skólafélagar auk
þess að hafa starfað saman innan
Verkamannaflokksins.
Þórólfur telur tengingu Øygards
við Verkamannaflokkinn honum
ekki til trafala. Hann hafi lengi unnið
sem sérfræðingur eftir að hafa unnið
með stjórnmálaflokknum. Þar hafi
hann einnig verið á grundvelli eigin
getu og þekkingar. Hann hafi ekki
verið í kjöri.
Sjálfur segist Øygard vona að
starf hans sem aðstoðarfjár-
málaráðherra Noregs frá 1990 til
1994 og seta í efnahagsráði norska
Verkamannaflokksins, systurflokks
Samfylkingarinnar, til ársins 2000
styrki hann. Hann hafi víðtæka
reynslu úr störfum fyrir hið op-
inbera og úr einkageiranum, en
hann lauk 14 ára störfum sínum fyrir
McKinsey klukkan níu í gærmorgun.
Ákvörðunina tók Øygard án þess
að hafa samið um laun, en hann
reiknar með að ráð bankans bjóði
honum sambærileg kjör og fyrri
seðlabankastjórar höfðu.
Bjarni gagnrýnir stjórnsýsluna
Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, vill horfa fram
á við í stað þess að líta til pólitískra
tengsla Øygards. „Ég tel mikilvægt
að reyna að sameinast um það að
gefa nýjum seðlabankastjóra tæki-
færi, fyrst hann hefur nú verið sett-
ur,“ segir Bjarni Benediktsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Honum finnist þó bráðabirgða-
ástandið í Seðlabankanum bagalegt.
„Við sjálfstæðismenn vildum ekki
skapa það ástand og vorum þess
vegna andvígir þessari stjórnsýslu.
En ný ríkisstjórn býður upp á bráða-
birgðaseðlabankastjóra. Við þurfum
að lifa með því,“ segir hann.
Morgunblaðið/Kristinn
Á fyrsta degi í Seðlabankanum Svein Harald Øygard, nýr seðlabankastjóri, og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs. Stoltenberg var fyrsti gestur
Øygards sem hefur verið ráðgjafi hjá McKinsey í á annan áratug. Þeir eru gamlir skólafélagar og þekkjast einnig í gegnum Verkamannaflokkinn.
Øygard fær toppeinkunn
Svein Harald Øygard settur bráðabirgðaseðlabankastjóri eftir ábendingu
norsku ríkisstjórnarinnar Hann er sagður mjög fær og feikiduglegur
Snjall og með
milljónir í laun
» SVEIN Harald Øygard, setturseðlabankastjóri til bráðabirgða,
hefur beðið á hót-
eli í Reykjavík frá
því á mánudag
eftir að Alþingi af-
greiddi ný lög um
Seðlabankann.
Þetta kom fram á
mbl.is.
» Øygard hefurekki samið um
laun fyrir seðla-
bankastjórastólinn
en það er á forræði nýs bankaráðs að
semja um þau. Jóhanna Sigurð-
ardóttir, forsætisráðherra, skipar nýtt
bankaráð.
» Halldór Blöndal er fráfarandi for-maður bankaráðs Seðlabankans.
„Ég lít svo á að hann sé ráðinn miðað
við þær ákvarðanir bankaráðsins sem
fyrir hendi eru.“ Það sé þó í höndum
nýs bankaráðs.
» Norski fréttavefurinn E24.no segirfrá því að skattskyldar árstekjur
Øygards árið 2007 hafi numið 5,2
milljónum norskra króna eða um 7
milljónum íslenskra á mánuði miðað
við gengið í gær en tæpum sex millj-
ónum króna miðað við gengið í árslok.
» Øygard vann náið með norskaseðlabankanum í bankakreppunni
í Noregi í kringum 1990.
» Ráðning Øygards hefur vakið at-hygli í Noregi. Fjármálaráðgjafinn
Harald Magnus Andreassen hjá First
Securities segir við E24 að hann sé
mjög snjall og skilji vanda Íslands bet-
ur en margir Íslendingar.
Svein Harald
Øygard
Jens Stolten-
berg, forsætis-
ráðherra Nor-
egs, aftók eftir
fund með nýja
seðla-
bankastjór-
anum að Ísland
tæki upp
norska krónu.
Norska krónan
væri þjóðargjaldmiðill Norðmanna.
Norðmenn væru tilbúnir að gera
sitt til þess að hjálpa norrænum
frændum sínum svo að þeir gætu
styrkt krónu sína, banka- og efna-
hagskerfið. Það væri síðan í hönd-
um Íslendinga hvort þeir tækju
upp evru í gegnum aðild að Evr-
ópusambandinu.
„Það hefði að sjálfsögðu áhrif á
okkur. Þá yrði Evrópusambandið
enn stærra og Norðmenn stæðu
einir með Lichtenstein innan
EFTA,“ sagði hann en benti á að
Noregur væri eina landið í heim-
inum sem hefði farið í samninga-
viðræður við sambandið, verið
samþykkt sem aðildarríki, en fellt
inngöngu í tvígang í þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
„Svo aðild Noregs að Evrópu-
sambandinu er ekki á stefnu-
skránni í dag,“ sagði norski for-
sætisráðherrann í Seðlabankanum
í gær.
Norska krónan ekki framtíðargjaldmiðill hér
Jens Stoltenberg
NORSKIR fjölmiðlar gerðu því góð
skil í gær, að Norðmaðurinn Svein
Harald Øygard skyldi hafa verið
settur seðlabankastjóri á Íslandi.
Segja þeir hann mikinn hæfileika-
mann, sem tekið hafi að sér versta
seðlabankastarf á Vesturlöndum.
Í viðtali við Aftenposten segir
Øygard, að hann sé í engum vafa
um, að Íslendingar muni vinna sig
út úr erfiðleikunum og nefnir hann
þrennt í því sambandi. Í fyrsta lagi,
að það hafi verið afgangur á fjár-
lögum fyrir hrunið; að íslenskt
vinnuafl sé vel menntað og í þriðja
lagi, að Íslendingar séu vanir því að
leggja hart að sér.
Svein Harald Øygard segist taka
að sér starfið með mikilli auðmýkt
enda gangi hann ekki að því grufl-
andi, að það verði erfitt. Í því felist
hins vegar líka mikil ögrun fyrir sig
sem hagfræðing.
Erfitt verk
en ögrandi
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
SVEIN Harald Öygard hinn norski
er ekki skipaður seðlabankastjóri,
heldur settur til bráðabirgða. Ekki
er því fyllilega ljóst hvort seta hans í
embætti stangast á við 20. gr. stjórn-
arskrárinnar þar sem segir að engan
embættismann megi skipa nema
hann hafi íslenskan ríkisborgararétt.
Eftir sem áður er vafaatriði hvort
það standist lög að setja erlendan
mann í embætti og þeim mun meiri
vafi eftir því sem viðkomandi situr
lengur í embætti, að mati Sigurðar
Líndals lagaprófessors.
Samkvæmt lögum eru menn skip-
aðir til 5 ára, en settir tímabundið til
hámarks tveggja ára. „Það er spurn-
ing hvort seðlabankastjórinn ætlar
eitthvað að láta til sín taka, eða hvort
hann ætlar bara rétt að verma stól-
inn í fáeinar vikur þangað til næsti
seðlabankastjóri kemur,“ segir Sig-
urður.
„Mér skilst nú að honum sé ætlað
meira hlutverk en það og þá verður
þetta miklu minni munur á setningu
og skipan.“ Þannig hníga aukin rök
að því að túlka stjórnarskrána þann-
ig að hún eigi einnig við um setta
embættismenn, eftir því sem þeir
eru atkvæðameiri og störf þeirra
meira í ætt við störf þeirra sem eru
settir með hefðbundnum hætti.
Eigi ekki við um þetta tilfelli
Í stjórnarskránni er ekkert tekið
sérstaklega fram um ríkisfang
þeirra sem settir eru í embætti sem
gefur rými þeirri túlkun að ekki eigi
það sama við um þá eins og þá emb-
ættismenn sem eru skipaðir.
Forsætisráðuneytið lítur svo á
samkvæmt svari til blaðamanns að
20. gr. stjórnarskrárinnar setji ekki
skorður við því að löggjafinn veiti
stjórnvöldum heimild til að setja er-
lendan ríkisborgara tímabundið í
embætti. Skýr greinarmunur sé
gerður á setningu í embætti annars
vegar og skipan hins vegar í starfs-
mannarétti. Þá sé sérstaklega tekið
fram í bráðabirgðaákvæði með
breytingarlögum um Seðlabankann
að um þessa tímabundnu setningu
Sveins Haralds Öygards gildi ekki
skilyrði sem sett er í lögum um ís-
lenskan ríkisborgararétt.
Vafi um túlkun á stjórnarskrá
BIRGIR Ár-
mannsson, al-
þingismaður og
nefndarmaður í
viðskiptanefnd
Alþingis, ætlar
að „íhuga mjög
alvarlega“ að
leita álits um-
boðsmanns Al-
þingis á því hvort
ákvæði nýrra
laga um Seðlabankann brjóti í bága
við stjórnarskrá. Það er hvort setja
megi erlendan ríkisborgara í emb-
ætti seðlabankastjóra.
Sigurður Líndal lagaprófessor
benti á að vafi léki á því hvort það
stæðist lög að setja erlendan mann í
embættið. Birgir kvaðst hafa skoð-
að þetta atriði í gær og rætt það við
lögfræðinga. „Ég get ekki betur séð
en að Sigurður hafi mikið til síns
máls þar eð ákvæðið í stjórn-
arskránni er fortakslaust gagnvart
skipun í embætti. Þar segir einfald-
lega að engan megi skipa í embætti
nema hann sé íslenskur ríkisborg-
ari. Ég er sammála því sjónarmiði
að um setningu hljóti að gilda það
sama og um skipun í embætti.“
Íhugar að
leita álits
Birgir Ármannsson
alþingismaður