Morgunblaðið - 28.02.2009, Page 38

Morgunblaðið - 28.02.2009, Page 38
38 MessurÁ MORGUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009 AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan í Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11, hefst með bibliu- fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Halldór Eng- ilbertsson prédikar. Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 10.30. Boðið verður upp á biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 11.30. Eric Guðmundsson prédikar. Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum | Sam- koma í Reykjanesbæ í dag, laugardag, kl. 11. Farið verður yfir biblíulexíuna. Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðþjónusta kl. 10.45. Jón Hjörleifur Stefánsson prédikar. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Sam- koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Halldór Magnússon prédikar. Bíblíufræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50. Boð- ið er upp á biblíufræðslu á ensku. AKRANESKIRKJA | Æskulýðsmessa kl. 14. Ungmennakórar kirkjunnar syngja og fermingarbörn aðstoða. AKUREYRARKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Prestur sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur, stjórn. Eyþórs Inga Jónssonar. ÁRBÆJARKIRKJA | Æskulýðsguðsþjón- usta á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar kl. 11. Þátttaka yngri meðlima safnaðarins einkennir stundina, barnakór kirkjunnar syngur. Æskulýðs-léttmessa kl. 20. Í létt- messunni koma fram unglingar úr æsku- lýðsstarfi kirkjunnar og sýna afrakstur vetrarins. Tónlistaratriði verða leikin undir stjórn æskulýðsleiðtoga kirkjunnar og leiklistaratriði leikin. ÁSKIRKJA | Æskulýðsdagurinn. Sunnu- dagaskóli kl. 11. Umsjón Hildur Björg og Elías. Messa kl. 14. Sóknarprestur pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt Margréti Svavarsdóttur djákna, félagar úr Kór Ás- kirkju syngja, organisti er Bjartur Logi Guðnason. Helga Aðalheiður Jónsdóttir leikur á blokkflautu og Kristín Lárusdóttir á gömbu. Kaffi á eftir. Sjá askirkja.is. ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta á Kirkjuvöllum 1, kl. 11. Ferming- arbörn aðstoða, prestur er sr. Bára Frið- riksdóttir, stúlknakór kirkjunnar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds- dóttur. Einnig er brúðuleikur. Kaffi á eftir. BESSASTAÐAKIRKJA | Æskulýðsdag- urinn haldinn hátíðlegur kl. 11. Söngur og brúður koma í heimsókn og börn úr KFUM og KFUK starfinu á Álftanesi ásamt ferm- ingarbörnum koma að stundinni. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar, Bjartur Logi Guðnason er organisti og leiðtogar í söfn- uðinum aðstoða. BORGARNESKIRKJA | Æskulýðsguðs- þjónusta kl 14. Barnakórinn syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur, Eygló Egils- dóttir segir biblíusögur. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Almennur söngur. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Þema guðs- þjónustunnar er hlutverk hvers og eins okkar. Börnin mega koma í búningum ef þau vilja. Ný fjársjóðskista verður tekin í notkun. Rannveig Iðunn og Ása Björk hér- aðsprestur leiða stundina, en Palli org- anisti leiðir sönginn. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Æskulýðsdagurinn. Prest- ur sr. Gísli Jónasson, Nína Björg Vilhelms- dóttir predikar, börn og unglingar aðstoða og eldri barnakór syngur. Unglinga- hljómsveitin Insomnia spilar. Kaffi í safn- aðarheimili á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Samvera fyrir alla fjölskylduna. Hljómsveit ungmenna, organisti Renata Ivan. Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Renata Ivan, einsöngur Agnes Amalía Kristjónsdóttir, Kirkjukór Bústaðakirkju og prestur er Pálmi Matthíasson. Kaffi. Réttó reunion kl. 16 í tali og tónum. Toxic og Jónas R, Rympill/Mottó, Tríó Guðjóns Coburn, Una, Doddi, Tímasóun, Þórður Hermanns, Álf- heiður Erla og Skósveinarnir, Kristín Mar- íella o.fl. Gestgjafi Þorvaldur Jónasson. DIGRANESKIRKJA | Æskulýðsmessa kl. 11 í umsjá barna og unglingastarfs kirkj- unnar. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson, tónlistin er í höndum Meme group. Léttar veitingar í safnaðarsal á eftir. Sjá digra- neskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Æskulýðsmessa kl. 11, í umsjá sr. Þorvaldar Víðissonar. Barnakór syngur og sunnudagsskólalögin sungin, krakkar úr TTT starfinu leiða bænagjörð. Barn borið til skírnar. Unglingamessa kl. 20. Hljómsveit KSS leiðir tónlist, en prest- ar og unglingaleiðtogar leiða stundina. EGILSSTAÐAKIRKJA | Æskulýðsguðs- þjónusta kl. 11 sem er sameiginleg fyrir söfnuðina á Héraði. Stefán Bogi Sveins- son prédikar, barnakór leiðir sönginn. Kyrrðarstund á mánudag kl. 18. Bibl- íulestralota hefst 3. mars kl. 19.30- 20.30, í safnaðarheimilinu að Hörgsási 4. Kaflar úr Markúsarguðspjalli lesnir og leið- beint um persónulega íhugun orðsins. FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðs- þjónusta á æskulýðsdaginn kl. 11. Sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs leiða stundina. Börn úr æskulýðsstarfinu taka þátt í þjónustunni undir stjórn Sigríð- ar R. Tryggvadóttur. Listasmiðjan Litróf syngur og dansar undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Organisti er Guðný Ein- arsdóttir, meðhjálpari og kirkjuvörður Kristín Ingólfsdóttir. Leikritið „Ég á mig sjálf“ verður sýnt í kirkjunni kl. 20. þetta er forvarnarverk um átröskunarsjúkdórm- inn Anorexíu. Aðgangur er ókeypis. Árleg Góugleði kirkjunnar verður miðvikudaginn 4. mars kl. 18. Kvöldverður og fjölbreytt dagskrá. Skráning í síma 557-3280. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Stund fyrir alla fjölskylduna. Um- sjón hafa Edda og Skarphéðinn Þór. Kvöldvaka kl. 20. Matti Ósvald Stef- ánsson heilsufræðingur flytur hugleið- ingu: Hvað er best að gera í miklu and- streymi. Anna Sigga Helgadóttir söngkona og Skaphéðinn Þór Hjartarson organisti leiða sönginn. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Barn borið til skírnar. Ásta Sigríður Sveinsdóttir fyrrum söngkona Gus Gus syngur eitt lag í tilefni skírnarinnar. Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari. Anna Hulda sér um barnastarfið og fer með börnin eftir stutta dvöl í kirkjunni í safnaðarheimilið að fylgjast með músa- pésa og mýslu. Anna Sigga og Carl Möller leiða tónlistina ásamt kór Fríkirkjunnar. FÆREYSKA sjómannaheimilið | Möti kl. 17. Lestur og kaffi á eftir. GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Friðrik Hjartar og Nanna Guðrún djákni þjóna, fé- lagar úr Kór Vídalínskirkju leiða sönginn og organisti er Jóhann Baldvinsson. Rúta ekur frá Vídalínskirkju kl. 13.30, frá Jóns- húsi kl. 13.35 og frá Hleinum kl. 13.40. GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Arn- aldur Bárðarson þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju leiða söng undir stjórn Hjartar Steinbergssonar. Barnastarf á sama tíma, sameiginlegt upphaf í messu safn- aðarins. Barnastarfið er í umsjón Val- mars, Péturs, Sædísar og Kolbrár. Fjöl- skylduguðþjónusta í tilefni Æskulýðsdags Þjóðkirkjunnar kl. 13. Þrír kórar kirkjunnar, Barnakór, Drengjakór og Æskulýðskór koma fram og leiða söng í athöfninni. GRENSÁSKIRKJA | Æskulýðsdagurinn. Morgunmatur kl. 10, bænastund 10.15. Fjölskyldumessa kl. 11. Ræðumaður er Jó- hanna Sesselja Erludóttir æskulýðsfulltrúi. Samskot til ABC-barnahjálpar. Messuhóp- ur. Kirkjukór Grensáskirkju syngur, org- anisti Árni Arinbjarnarson og prestur er sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi á eftir. Kyrrð- arstund á þriðjudag kl. 12. Hversdags- messa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Auður Inga Einarsdóttir prédikar, Rósa Jóhannesdóttir syngur og leikur á fiðlu og organisti er Kjartan Ólafs- son. GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Fjöl- skyldumessa kl. 11. Prestur dr. Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadótt- ir, barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur, meðhjálp- ari Sigurjón Ari Sigurjónsson. Fyrsta kaffið í nýju kirkjunni eftir messu. HALLGRÍMSKIRKJA | Æskulýðsdagurinn. Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum, Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, organisti Hörður Áskels- son. Dagstund í minningu Sigurbjörns Ein- arssonar kl. 14-16. Tónlistarflutningur, opnun myndlistarsýningar Hörpu Árnadótt- ur og Af hverju afi?. Leikgerð Jóns Hjart- arsonar eftir barnabók Sigurbjörns. HÁTEIGSKIRKJA | Æskulýðsdagurinn. Messa kl. 11. Fermingarbörn lesa ritning- arlestra, Guðbjörg Hilmarsdóttir 18 ára söngnemi syngur, organisti Douglas Brotc- hie, prestur Helga Soffía Konráðsdóttir. Barnastarf í umsjá Sunnu og Páls Ágústs. Léttar veitingar á eftir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Æskulýðsguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar, Þorvaldur Halldórsson leiðir safn- aðarsöng og Jónsi kemur í heimsókn, krakkar úr æskulýðsstarfinu aðstoða. Sunnudagaskóli kl. 13. Batamessa kl. 17. Messan er á vegum Vina í bata, 12 spora starfsins í kirkjunni. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Sjá hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræðisherinn Akureyri | Samkoma kl. 17. Gideonfélagar sjá um samkomuna. Hjálpræðisherinn Reykjanesbær | Kaffi- húsakirkja undir yfirskriftina „nýr dagur ný tækifæri“, kl. 17. Ræðumaður er Wouter van Gooswilligen, lofgjörð, bæn, fé- lagsskapur, kaffieitingar. Dagskrá í boði fyrir börnin. Hjálpræðisherinn Reykjavík | Samkoma kl. 20. Umsjón hefur Anne Marie Reinholdt- sen og ræðumaður er Ólafur Jóhannsson. Heimilasamband fyrir konur mánudag kl. 15. Bæn þriðjudag kl. 20. Kvöldvaka fimmtudag kl. 20 með happdrætti og veit- ingum. Umsjón hefur vistheimilið Bjarg. Dagsetrið á Eyjarslóð er opið alla daga kl. 13-18. HRÍSEYJARKIRKJA | Guðsþjónusta á æskulýðsdaginn kl. 11. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Brauðs- brotning kl. 11. Ræðumaður er Heiðar Guðnason. Alþjóðakirkjan í kaffisalnum kl. 13. Ræðumaður er Fanuel Kapute. Almenn samkoma kl. 16.30. Æskulýðsdagurinn, ORÐ DAGSINS: Freisting Jesú. (Matt.4) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Siglufjarðarkirkja. STIGAHÆSTI skákmaður heims, búlgarski stórmeistarinn Venselin Topalov vann öruggan sigur yfir Gata Kamsky í einvígi þeirra sem lauk í Sofia á fimmtudaginn. Loka- tölur urðu 4 ½ : 2 ½. Topalov hefur þar með tryggt sér rétt til að skora á heimsmeistarann Anand. Einvígi þeirra fer fram á hausti komanda. Topalov varð heimsmeistari FIDE haustið 2005 eftir glæsilega tafl- mennsku á heimsmeistaramóti sem fram fór í Morelia í Mexíkó haustið 2005. Í Elista í Kalmykíu ári síðar dróst Búlgarinn síðan á að tefla ein- hverskonar sameiningareinvígi við Vladimir Kramnik um heimsmeist- aratitilinn. Kramnik vann óvæntan og sanngjarnan sigur í keppni sem síðar hlaut nafnið „Toilet-gate“ og snerist um tíðar salernisferðir hans og grunsemdir um tölvunotkun. Tölvumisnotkun er raunar á allra vörum þessa dagana því á hinu geysisterka Aeroflot-móti í Moskvu sem lauk fyrir stuttu síðan hætti stigahæsti keppandinn Aserinn Shakriyar Mamedyarov í mótinu og í yfirlýsingu sem hann gaf út af því til- efni sakaði hann andstæðing sinn í 6. umferð, Rússann Igor Kurnosov, um að hafa notað töluforritið Rybku við ákvörðun leikja. Sá sem þessar línur ritar athugaði m.a. skák sem Kurno- sov vann í 2. umferð og kom á daginn að síðustu ellefu leikir hans voru fyrsta val forritsins Deep Rybka 3. Þess má þó geta að atburðarásin var afar þvinguð. Þó yfirdómarinn Hollendingurinn Guert Guijjsen hafi ekki gefið mikið fyrir yfirlýsingu Mamedyarov þá hljóta slíkar grunsemdir eða væni- sýki öllu heldur að knýja á um að gerðar verði ráðstafanir á skákmót- um til að girða fyrir uppákomur af þessu tagi. Magnús Carlsen vann Anand Fyrri hálfeik er nú lokið á hinu geysisterka Linares-móti og hefur heimsmeistarinn Anand átt við ramman reip að draga en gæti þó með góðum endaspretti blandað sér í baráttuna um efsta sætið. Hann hef- ur þegar tapað fyrir Magnúsi Carl- sen og Aronjan. Staðan: 1. Alexander Gristjúk (Rússland) 5 v. ( af 7 ) 2. – 3. Vasilí Ivantsjúk (Úkraínu) og Magnús Carlsen (Nor- egi) 4 v. 4. – 5. Wisvanathan Anand (Indlandi) og Levon Aronjan (Arme- níu) 3 ½ v. 6. Leinier Dominguez (Kúbu) og Yue Wang ( Kína ) 2 ½ v. Óvænt endalok Ekki bar kappið fegurðina ofurliði í skákþrautakeppni sem haldin var samhliða Courus-mótinu í Wijk aan Zee í janúar sl. Þar voru mættir til leiks ýmsir kunnir jaxlar úr þessari deild skáklistarinnar og var þar fremstur í flokki stærðfræðiprófess- orinn og stórmeistarinn dr. John Nunn. Honum var spáð sigri en 22 keppendur settust niður að rýndu í níu geysilega erfið dæmi. Mest voru 45 stig í boði og keppendur fengu þrjár klukkustundir til að skila inn lausnum. Öllum á óvart varð Nunn að láta sér annað sætið lynda en sig- urvegari óþekktur 18 ára Hollend- ingur Twan Burg sem náði 35 stig- um. Eftirfarandi dæmi var meðal þeirra sem keppendur fengu að glíma við: Gady Costeff Hvítur leikur og heldur jafntefli. 1. g5! Ekki 1. Hxd2 De8! sem hótar 2. … f6+ o.s.frv. 1. … d1(D)+ 2. Hxd1 g6+! 3. Kh6 Hxd1 3. Da4+ Ke7 4. Dxd1 Kf8! Hótar 5. … Kg8 og 6. … Df8 mát 5. Dd4! Db2! Þessi leikur virðist gera útslagið. 6. Dh8+!! Dxh8 7. f6! Svartur er nú drottningunni yfir en hvítur er í pattstöðu. Reyna má 7. … De7 en eftir 8. fxe7 Kxe7 9. Kg7 er niðurstaðan einnig jafntefli. Minningarmótið um Jón Þorsteinsson Bræðurnir Jóhannes Gísli og Jón Gunnar Jónssynir fundu margar at- hyglisverðar og flóknar stöður sem komu upp í skákum frægra meistara á borð við Capablanca, Karpov, Lar- sen, Petrosjan, Tal og Keres á u.þ.b. 70 ára tímabili. Úr þessum stöðum tefldu keppendur á minningar- mótinu um Jón Þorsteinsson í MH um síðustu helgi með hvítu og svörtu, tvær skákir við hvern and- stæðing með 15 mínútna umhugs- unartíma. Taflið hófst yfirleitt í kringum 15. leik. Greinarhöfundur vann nokkuð öruggan sigur og tap- aði ekki skák. Fjölmargir öflugir skákmenn tóku þátt í mótinu. Alls voru keppendur 48 talsins. Loka- staðan: 1. Helgi Ólafsson 14 v. (af 18 ) 2. Bragi Þorfinnsson 13 v. 3. – 4. Stef- án Kristjánsson og Þröstur Þór- hallsson 12 ½ v. 5. Jón Viktor Gunn- arsson 12 v. 6. Jón L. Árnason 11 ½ v. 7. – 12. Guðmundur Kjartansson, Björn Þorfinnsson, Benedikt Jónas- son, Hjörvar Steinn Grétarsson, Sigurður Daði Sigfússon og Tómas Björnsson 11 v. Fjölmörg aukaverðlaun voru veitt: Hjörvar Steinn Grétarsson fékk verðlaun fyrir bestan árangur 16 ára og yngri en þar varð Birkir Karl Sigurðsson í 2. sæti. Öldunga- verðlaun komu í hlut Benedikts Jónassonar, en næstur var Bragi Halldórsson. Bestum árangri í flokki keppenda undir á bilinu í flokki keppenda undir á stigabilinu 2100 – 1900 náði Tómas Björnsson en næstur kom Daði Ómarsson. Verðlaun keppenda á bilinu 1900 – 1600 hlutu Jóhanna Björg Jóhanns- dóttir, Patrekur Maron Magnússon og Ólafur Kjartansson. Í flokki keppenda undir 1600 stigum náði Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir bestum árangri en næstir komu Dagur Kjartansson og Páll Andra- son. Verðlaun fyrir flesta 2:0 sigra hlaut Þröstur Þórhallsson. Topalov vann Kamsky – Vænisýki í Moskvu Helgi Ólafsson | helol@simnet.is SKÁK Sofia, Búlgaría Áskorendaeinvígið 17. – 26. febrúar 2009

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.