Morgunblaðið - 28.02.2009, Qupperneq 19
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009
’’ Lokaspurning þeirra varð síðan sú, hvaðgerist ef íslensku bankarnir komast ekki, eðaekki svo neinu nemi, á markaðina næstu tólfmánuði eða svo? […] En þessi spurning, svo
ónotaleg sem hún virtist, varð seðlabankamönn-
um skiljanlegri þegar leið á þessa fundaferð.
- Úr skýrslu Seðlabankans sem kynnt var nokkrum
ráðherrum og embættismönnum í febrúar 2008,
um fundaferð fulltrúa bankans til Lundúna, þar
sem þeim var brugðið vegna viðhorfa stærstu
bankanna þar til íslensks efnahagslífs.
’’ Niðurstaðan er þessi: Það er ljóst, að ís-lensku bankarnir [] hafa stefnt sér og þaðsem verra er, íslensku fjármálalífi, í mikla hættu,og jafnvel í hreinar ógöngur, með ábyrgðarlausri
framgöngu á undanförnum árum. Hættulegt er
að hafast ekkert að í þeirri von að markaðir opn-
ist óvænt og allur vandi verði þá úr sögunni.
- Úr sömu skýrslu Seðlabankans
frá því í febrúar 2008.
’’ Þessir bankar eru svo traustir að ekkert því-umlíkt er líklegt til að gerast nokkurn tím-ann. Ef eitthvað slíkt gerðist værir þú heldur aldr-ei að tala um alla fjárhæðina, því það er aldrei
þannig. En þrátt fyrir þetta er íslenskur efna-
hagur … með ríkið skuldlaust … þá væri það
ekki of stór biti fyrir ríkið til að kyngja, ef það
kærði sig um að kyngja honum.
- Davíð Oddsson í viðtali við Channel 4 News í Bret-
landi í byrjun mars 2008 um áhættuna í íslenskum
bönkum fyrir breska sparifjáreigendur.
’’… en þrátt fyrir and-streymi sem víða sést, ekkisíst í tengslum við hina al-þjóðlegu fjármálamarkaði og
þau miklu áhrif sem það kann
að hafa á svipaða starfsemi hér,
þá er ekki endilega líklegt að ís-
lenska þjóðin sé að sigla inn í
kreppu. Miklu líklegra er að nú
hægi nokkuð á og í versta falli tökum við nokkra
dýfu sem ætti þó ekki að þurfa að standa lengi.
Það höfum við gert fyrr og hrist fljótt af okkur
áhrifin af því, enda hefur íslenskt þjóðfélag jafn-
an sýnt mikla aðlögunarhæfni.
- Davíð Oddsson á ársfundi
Seðlabanka Íslands í mars 2008.
’’ … og ég held að það sé nú afskaplega vara-samt að tala um bankana þannig að þaðþurfi að bjarga þeim innan skamms tíma. Það erekkert sem bendir til þess. Bankarnir sjálfir hafa
gefið lýsingu á því hvernig þeir eru óháðir því að
ganga á erlenda markaði, miðað við þá lausa-
fjárstöðu sem þeir hafa. Það er ekkert sem bendir
til annars en að lausafjárstaða íslenskra banka
sé svipuð eða jafnvel betri en lausafjárstaða sam-
bærilegra banka annars staðar.
- Davíð Oddsson seðlabankastjóri í viðtali
við Ríkisútvarpið 10. apríl 2008.
’’Á heildina litið er niðurstaða Seðlabankansenn sú að fjármálakerfið sé í meginatriðumtraust. Íslenska bankakerfið uppfyllir kröfur semgerðar eru til þess og stenst álagspróf sem Fjár-
málaeftirlitið og Seðlabankinn hafa gert.
Lokaorð inngangskafla árlegs rits Seðlabankans
um fjármálastöðugleika, frá 8. maí 2008.
’’ Ásakanir þessar eru al-varlegar þar sem þær bein-ast einnig að íslenskum eftirlits-aðilum, sérstaklega
Fjármálaeftirlitinu en einnig
að hluta Seðlabankanum. Ít-
arleg greining þessara tveggja
lykilstofnana gefa ekkert annað
til kynna en að íslenska banka-
kerfið sé mjög stöndugt.
- Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra í blogg-
færslu 5. ágúst 2008, um fullyrðingar Markku Po-
hojla hjá Nordea-bankanum finnska, þess efnis að
íslensku bankarnir gætu fljótlega lent í miklum
vandræðum. Í færslunni mærði hann íslensku
bankana, en hún var tekin út af síðunni fljótlega
eftir hrun þeirra.
’’ Auðvitað voru þess háttar varnaðarorð ogupplýsingar iðulega settar fram annars stað-ar heldur en opinberlega, bæði á fundum íbankaráði, með forráðamönnum Fjármálaeft-
irlits og forráðamönnum bankanna og stjórn-
völdum í landinu. Var þá hægt að kveða enn fast-
ar að orði en gert var opinberlega. Bankastjórnin
átti þannig allmarga fundi með ráðherrum og
embættismönnum til að lýsa þungum áhyggjum
sínum.
- Davíð Oddsson seðlabankastjóri
í ræðu hjá Viðskiptaráði 18. nóvember 2008.
’’ Annars vegar að banka-kerfið væri orðið alltof stórtfyrir íslenska efnahagskerfiðmiðað við að við erum með sjálf-
stæðan seðlabanka og sjálfstæða
mynt en það hefur verið að
þróast á undanförnum árum,
meðal annars í tíð Davíðs sem
forsætisráðherra. Hitt sem við
vorum að ræða var mikilvægi þess að byggja upp
varnir fyrir bankakerfið okkar.
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, við
fréttamenn eftir þingflokksfund 18. nóvember 2008,
að lýsa efni þeirra sex funda sem hún og Geir H.
Haarde áttu með seðlabankastjóra fyrr á því ári.
’’ Ég man samt ekki eftirþví að [Seðlabankinn]hafi lagt eitthvað til sem viðurðum ekki við. En við rædd-
um hins vegar í kjölfar slíkra
funda yfirleitt við bankastjór-
ana og fórum yfir þessi mál ít-
arlega með þeim og á grund-
velli þeirra upplýsinga fengu
menn þá mynd að staðan væri
betri en hún var.
- Geir H. Haarde forsætisráðherra í samtali við Mbl.
sjónvarp 18. nóvember, þar sem hann staðfesti að
Seðlabankinn hefði margoft lýst yfir áhyggjum af
bönkunum á fundum með ráðherrum ríkisstjórn-
arinnar.
’’ Hvað fór fram á einhverjum óskilgreindumfundum með seðlabankastjóra og einhverjumráðherrum hef ég ekki hugmynd um.- Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á Alþingi
4. desember. Hann upplýsti þá að hann og Davíð
Oddsson hefðu ekki hist í tæpt ár, frá nóvember 2007
til september 2008.
’’ Formenn stjórnarflokkanna áttu engan fundmeð seðlabankastjóra í júnímánuði síðast-liðnum. Slíkur fundur var hins vegar haldinn þann8. júlí. Þar féllu ýmis orð af hálfu seðlabankastjóra
en hann sagði hins vegar ekki að 0% líkur væru á
að bankarnir myndu lifa af erfiðleikana á fjár-
málamörkuðunum.
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í yfirlýsingu 4. desem-
ber, vegna frétta um ummæli Davíðs Oddssonar.
Hann bætti því síðar við í Kastljósinu að hann hefði
sagt núll prósent líkur á að þeir lifðu af „hjálp-
arlaust“.
’’ Hann mun vera að vitna í símtal við migsem ég man nú ekki sjálfur eftir. […] Það semsagt er í svona símtali er náttúrlega ekki opinberafstaða bankans.
- Geir H. Haarde forsætisráðherra í frétt Morg-
unblaðsins 5. desember, þar sem hann sagði mestu
skipta að Seðlabankinn hefði allt síðasta ár haft
miklar áhyggjur af stöðu viðskiptabankanna, þótt
e.t.v. hefði mátt lesa annað út úr stöðugleikaskýrslu
bankans frá því í maí.
’’ Ég varð aldrei var við aðseðlabankastjóri reyndi aðhafa samband við mig eða aðraráðherra til þess að vara við yf-
irvofandi hruni bankanna.
Hann kom á ríkisstjórnarfund
sem var haldinn sérstaklega
vegna þess að bankarnir voru
að hrynja, deginum eftir að
hrunið byrjaði, það er að segja
deginum eftir Glitni, og sagði þá að allt væri að
fara í kaldakol. Hann hafði aldrei komið með
neinar slíkar viðvaranir áður.
- Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í hádeg-
isfréttum Ríkisútvarpsins, 25. febrúar 2009, um við-
varanir Seðlabankans vegna yfirvofandi bankahruns.
’’Bæði fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrver-andi utanríkisráðherra hafa staðfest að sexsamráðsfundir hafi verið haldnir með þeim ogbankastjórn Seðlabankans. Össur Skarphéðinsson
verður sjálfur að meta hvers vegna hann hafi ekki
verið hafður með á slíkum fundum og hvers vegna
forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðherrar kynntu
honum ekki þær upplýsingar sem þar komu fram.
- Bankastjórn Seðlabankans gerir í síðdegisfréttum
Ríkisútvarpsins 25. febrúar 2009 athugasemdir við
ofangreind orð Össurar Skarphéðinssonar.
’’Ef það er rétt, þá barst hún ekki til mín.- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í Morgunblaðinu 26.febrúar 2009, um skýrslu „eins færasta fjár-málastöðugleikasérfræðings Evrópu“ sem DavíðOddsson kveðst hafa afhent ríkisstjórninni 30. sept-
ember.
’’Það voru mest fundir um gjaldeyrisvarasjóð-inn.- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í Morgunblaðinu 26.febrúar 2009, um þá fundi sem hún sat með seðla-
bankamönnum í aðdraganda bankahrunsins.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
Í UNDANFARA efnahagshrunsins
tjáðu stjórnendur Seðlabanka Ís-
lands sig oft um ástand bankanna,
bæði innan stjórnkerfisins og út á
við. Þar var talinn reginmunur á því
sem mætti segja á bak við luktar
dyr, við áhrifafólk, og því sem yrði
sagt opinberlega. Svo mikill var
munurinn að eftir á er varla hægt að
sjá að þar tali fulltrúar sömu stofn-
unar, frá einni tilvitnun til annarrar.
Deilt hefur verið um það hverjir
fengu viðvaranir og hverjir ekki.
Hverjir höfðust ekki að sem skyldi,
miðað við upplýsingarnar sem þeir
höfðu? Hverjir bera á endanum póli-
tíska ábyrgð?
Krísudeildin í ríkisstjórninni
Ráðherrar í ríkisstjórn banka-
hrunsins sinntu hver sínu mál-
efnasviði og báru ábyrgð á því. Mál-
efnasviðin tengdust efnahagsmálum
mismikið en fyrst ber að nefna for-
sætisráðuneyti Geirs Haarde, sem
fór með efnahagsmál. Þá fjár-
málaráðuneyti Árna Mathiesen, sem
fór með ríkisfjármál og viðskipta-
ráðuneyti Björgvins G. Sigurðs-
sonar, sem fór með málefni banka.
Þar sem stjórnarflokkar bera póli-
tíska ábyrgð á verkum ríkisstjórnar
var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
leiðtogi Samfylkingarinnar, í hópi
krísuráðherranna. Össur Skarphéð-
insson iðnaðarráðherra fyllti það
skarð í veikindaleyfi hennar og sýndi
áhrifamátt sinn innan Samfylking-
arinnar þannig. Efnahagsmálin
stóðu öðrum ráðherrum fjær, nema
ef til vill Þorgerði Katrínu Gunn-
arsdóttur menntamálaráðherra,
varaformanni Sjálfstæðisflokksins
og staðgengli Geirs, sem þurfti þó
lítið að láta til sín taka vegna banka-
hrunsins sjálfs. Að minnsta kosti
fimm ráðherrar gætu sem sagt talist
til efnahagsdeildarinnar í rík-
isstjórn, eða krísudeildarinnar.
Björgvin utangátta
Það liggur fyrir að banka-
málaráðherrann Björgvin var ekki
hafður með í ráðum þegar erfið
staða banka var rædd og svartar
skýrslur kynntar. Hann hitti for-
mann bankastjórnar Seðlabankans
ekki í heilt ár fyrir hrunið. Davíð tók
þó fram, í ræðu hjá Viðskiptaráði í
nóvember, að forsvarsmenn Fjár-
málaeftirlitsins, undirmenn Björg-
vins, hefðu verið hafðir með í ráðum.
Hann hefur því verið ansi utangátta
ef hin raunverulega staða fór fram
hjá honum, eins og bloggfærsla hans
frá því í ágúst gaf til kynna. Þar
mærði hann bankana og styrk
þeirra. Ráðherrann hefur þó axlað
sína ábyrgð og sagt af sér.
Össur út undan
Össur var heldur ekki hafður með,
eins og fram kom í tilkynningu frá
bankastjórn Seðlabankans í vikunni.
Hann var þar sagður þurfa að meta
sjálfur hvers vegna Geir, Ingibjörg
og Árni hefðu ekki kynnt honum efni
krísufundanna fyrir hrunið, sem
voru sex talsins.
Þau þrjú sátu því þessa fundi en
ekki aðrir ráðherrar. Þeir Geir og
Árni hafa tilkynnt að þeir bjóði sig
ekki fram til Alþingis nú í vor. Kraf-
an um afsögn þeirra hefur verið há-
vær í vetur, en þeir hafa sagt að
rannsóknarnefnd Alþingis muni
leiða ábyrgð þeirra í ljós. Árni hefur
nú svarað kallinu um breytingar
með því að bjóða sig ekki fram til
þings, en Geir hefur látið af stjórn-
málaþátttöku vegna veikinda.
Úr hópi þremenninganna er að-
eins óvissa um framhaldið hjá Ingi-
björgu Sólrúnu. Framboðsfrestur
rennur út á hádegi í dag.
Hverjir voru með í ráðum?
Þrír ráðherrar voru í innsta hring fyrir hrun og höfðu allar fyrirliggjandi upplýsingar um hættuna
Tveir þeirra munu ekki bjóða sig fram til þings en einn hefur ekki gefið upp hvort hann fer fram á ný
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Síðari ríkisstjórn Geirs Haarde Einstök ráðherraembætti hafa auðvitað mismikið með efnahagsmálin að gera, en þrjú þeirra voru höfð með í ráðum öðrum fremur í aðdraganda bankahrunsins.