Morgunblaðið - 28.02.2009, Síða 27
Daglegt líf 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009
Á öskudag þegar góutungl kviknaði í norðri
gengu börnin á Blönduósi á milli fyrirtækja og
sungu fyrir sætan mola í munn. Á tímum þar
sem vopnaburður er litinn hornauga, brugðu
blessuð börnin á það ráð að grípa til þeirra
vopna sem þóknanleg þykja í dag en það eru
mótmælaspjöldin. „Helvítis fokking fokk“
mátti lesa af spjöldum sem og önnur kunn-
ugleg orð sem fallið hafa í samfélagi hinna full-
orðnu síðustu misserin.
Þó svo hið lævi blandna loft óvissunnar í ver-
aldargenginu leiki um landsmenn alla er mis-
jafnt hve mikil áhrif það hefur á heilsu sam-
félaganna. Hér er talað um vandann en það er
eins og hann sé einhverstaðar annarstaðar.
Menn halda áfram að byggja sundlaug og
stefnan sett á að hún verði tekin í gagnið sum-
arið 2010. Í tengslum við þetta er bygging á
nýjum líkamsræktarsal sem ljúka á nú í ár.
Gaman er líka að geta þess að verið er að grafa
grunn fyrir nýju einbýlishúsi þannig að enn er
bara talað um vandann en unnið að uppbygg-
ingu og vona menn að svo verði áfram.
Almenn ánægja var með það að horfið var frá
því að sameina yfirstjórn heilbrigðistofnana á
Norðurlandi. Héraðshælið á Blönduósi sem
stendur á Blöndubökkum rétt ofan við þjóðveg
1 er stolt okkar A-Húnvetninga og bæjarprýði.
Óttuðust margir að störf myndu tapast og
þjónusta skerðast yrði af sameiningu en nú
anda menn léttar og standa þéttar vörð um
þessa stofnun sem skapar mörgum atvinnu.
Fyrir liggur að undirritaður verði samstarfs-
samningur við Hólaskóla um háskólasetur í
textíl- og hafísfræðum í Kvennaskólanum á
Blönduósi. Binda menn vonir við að Kvenna-
skólinn gamli öðlist fræðsluhlutverk á ný en
þessi virðulega bygging sem hýsti ungar kon-
ur í heimilis- og hússtjórnarnámi langt fram
eftir síðustu öld var á sínum tíma grundvöllur
farsæls menningar- og kynlífs í héraðinu.
Þennan síðasta dag febrúarmánaðar samein-
ast félagar í Lionsklúbbum sýslunnar ásamt
mökum og gestum á hinu árlega troskvöldi á
Skagaströnd þar sem fram verður borið lost-
æti úr djúpum hafsins áamt andlegu fóðri ætt-
uðu ofan sjávarmáls. Morgunblaðið/Jón SigurðssonFramkvæmt Krani í grunni sundlaugar.
BLÖNDUÓS
Jón Sigurðsson fréttaritari
Edmund Lester Pearson (1880 –1937) var bókfræðingur og
bókavörður. Hann gaf út almanak
sem var uppfullt af alvörulausri
kímni, margir tóku það þó hátíð-
lega. Sigurður Ingólfsson tók upp á
því að þýða „Bölvun til handa bóka-
þjófum“ eftir Pearson, en undir
kvæðið er ritað: „Af veggspjaldi, að
sagt er úr San Pedro klaustrinu,
Barcelona (óþekkt tímasetning)“.
Gef að sá er stelur stakri bók
og stingur héðan, ávallt ragur teljist.
Að sérhver blessuð síða er hann tók
í sálu hans sem spóluormur dveljist
veki þar upp drepsótt, drauga og svín
sem draga hann með allri kvöl og pín
til fundar við þann orm sem aldrei deyr
í iðrum jarðar hvar hann undirseljist
til fordæmdra og andi aldrei meir
og eilíflega í vítislogum kveljist.
Nauðsynlegt er að taka það fram
að ekkert klaustur er í San Pedro,
en bölvunin stendur fyrir sínu.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af bölvun
og bókum
MARGIR eiga í erfiðleikum með að
bæta mataræði sitt og hefur mat-
arrýnir The New York Times,
Mark Bittman, nú lagt orð í belg.
Aðferð Bittmans er einföld: Allan
daginn borðar hann grænmetisfæði
en eftir kl. 18 á kvöldin er allt leyfi-
legt. Í bókinni Food Matters: A
Guide to Conscious Eating With
More Than 75 Recipes, skrifar Bitt-
man um það hversu heilsueflandi
grænmetis- og ávaxtaneysla sé sem
og vistvæn. „Frá því ég vakna á
morgnana borða ég aðeins ávexti,
grænmeti og grófar kornvörur,“
segir Bittman. „En í kvöldmatnum
borða ég nánast hvað sem er.“
Bittman gerði þessar breytingar
á matarvenjum sínum eftir að hann
greindist með of hátt kólesteról og
of háan blóðsykur. Þá var hann orð-
inn 35 kg of þungur og átti erfitt
með svefn. Honum var ráðlagt að
hætta að borða kjöt en sem mat-
arrýnir gat hann ekki hugsað sér
það og ákvað að fara milliveginn.
„Ég ákvað að gerast grænmet-
isæta til sex á kvöldin,“ segir Bitt-
man. Það hafi reynst vel og heilsan
batnað.
Grænmeti
fram að
kvöldmat
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sp
ar
að
u